Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 78

Frjáls verslun - 01.03.1981, Page 78
leicTari Ef við viljum hafa áætlunarflug verðum við að borga fyrir það Flugleiðir hafa enn komist í brennidepil um- ræðna hér á íslandi. Nú er það vegna þess að ein ferðaskrifstofanna, Samvinnuferðir, hefur samið við danska leiguflugfélagið Sterling um leiguflug milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar. Bauð Sterling Samvinnuferðum flugið á mun lægra verði en Flugleiðir gátu ráðið við og hefur Sterling setið undir ásökunum um að stunda undirboð til að skapa verkefni fyrir vannýttan flugvélaflota sinn. Sjónarmið stjórnenda Samvinnuferða hlýtur að- eins að vera eitt í máli, sem þessu: Að leita bestu kjara til að styrkja samkeppnisaðstöðu sína gagn- vart öðrum íslenskum ferðaskrifstofum eða styrkja fjárhagslega afkomu. Því er það eðlilegt að fyrir- tækið semji við þann aðila, sem lægst verð býður enda brjóti það ekki í bága við langtíma hagsmuni fyrirtækisins. Flvort það minnki atvinnumöguleika hjá öðru íslensku fyrirtæki er í raun ekki mál Sam- vinnuferða. Stjórnendur Flugleiða þurfa að gæta fleiri sjón- armiða: Þeir þurfa að ábyrgjast viðunandi fjár- hagslega afkomú fyrirtækisins gagnvart hluthöfum og geta því ekki leyft sér að ganga lengra en orðið er í skefjalausri verðsamkeppni. Þeir eru einnig ábyrgir gagnvart stjórnvöldum og neytendum fyrir því að halda upp viðunandi ferðatiðni til og frá íslandi allan ársins hring. Sú skylda veikir enn frekar sam- keppnisaðstöðu fyrirtækisins gagnvart erlendum leiguflugfélögum, sem eru algerlega óbundin af. mörkuðum og leita aðeins þangað, sem farþega- straumurinn er mestur í það og það sinn. Þegar sjónarmið innlendra viðskiptaaðila eru ill- sættanleg, sem í þessu tilviki, er það ráðherra að skera úr um hvaða sjónarmið séu mikilvægust, enda er það hans að veita erlendu fyrirtæki flugleyfi. Hann verður að taka tillit til langtíma hagsmuna neytenda og reyna að samræma þau sérsjónarmið- um Flugleiða. Það getur ekki verið sanngjarnt að ætla Flugleiðum að halda uppi ferðum allt árið en leyfa svo erlendum aðilum að koma inn á markað- inn þegar hann er í hámarki og nokkur von er um hagnað. Það þarf einnig að taka tillit til þess að kostnað- arþættir áætlunarfélags eru að miklu leyti aðrir en leigufélags. Áætlunarfélag þarf að halda uppi viða- miklu sölukerfi og bókunarþjónustu, sem leigufélög sleppa við. Hér eru Flugleiðir engin undantekning. og fyrirtækið verður að fá að verðleggja þjónustu sína með tilliti til þessa. Það er engin tilviljun að flest Evrópulönd vernda áætlunarflugfélög sín með einum eða öðrum hætti. Hér þarf að setja ákveðnar reglur, sem tryggja öruggt áætlunarflug. Getgátur um að íslendingar séu hnepptir í herkví hárra fargjalda eru ekki viðeigandi á hinu háa Al- þingi. Þeim sem vilja vita er vel Ijóst að Flugleiðir hafa verið mun frjálslyndari í fargjaldastefnu sinni en flest evrópsk flugfélög, enda njóta íslendingar hagstæðari fargjalda en flestir Evrópubúar. Að danir komist til íslands yfir vetrarmánuðina á hag- stæðari fargjöldum en íslendingar til Danmerkurer óþarft að tortryggja. Með því að bjóða mjög ódýr fargjöld hingað þegar umferð er í lágmarki tryggja Flugleiðir lágmarks ferðatíðni og starfsfólki sínu atvinnu. Viðskipti þessara ferðamanna við hótel. bílaleigu og veitingastaði Flugleiða hérlendis gera fyrirtækinu kleift að bjóða fargjöld undir kostnað- arverði sjálfs flugrekstrarins. Af augljósum ástæð- um getur fyrirtækið ekki boðið sömu kjör héðan. Auðvitað getum við enn lækkað kostnað og þar með fargjöld til og frá íslandi. Það mætti til sanns vegar færa að með því að reka ekki áætlunarflug- félag heldur treysta á viðkomu erlendra félaga á leið yfir Atlantshaf og leiguflug á þeirn árstímum, sem grundvöllur er fyrir þeim gætum við fengið enn lægri fargjöld. En það yrði á kostnað þjónustunnar og samræmdist vart langtíma hagsmunum neyt- enda. 78

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.