Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 12
/
STIKLAÐ A STORU
Harrls lávarður f ræðustólnum á vlðskiptaþingi.
Nýjungar á kaupþingi
Töluverðar nýjungar hafa
komið fram hjá fyrirtækinu
Kaupþing hf. sem nýlega tók
til starfa í Húsi verslunar-
innar við Kringlumýrarbraut.
Þar er, sem kunnugt er
starfrækt alhliða ráðgjafar-
þjónusta og fasteignasala,
ásamt fleiru.
Eitt hiö allra nýjasta er á
svið fasteignasölunnar. Bú-
ið er að taka í notkun tölvu
við fasteignaviðskiptin. Inn í
tölvu þessa eru færðar allar
upplýsingar um eignir sem á
boðstólum eru hverju sinni
og einnig óskir og þarfir
þeirra kaupenda sem sýna
áhuga á viðskiptum. Þannig
má labba sig inn í Kaupþing,
lýsa óskum sínum um stærð,
herbergjafjölda, staðsetn-
ingu og útlit þess húsnæðis
sem leitað er að. Þegar tölv-
an hefur meðtekið þessar
upplýsingar, hefst hún þeg-
ar ,,handa" við að leita eftir
hvort slíkt húsnæði er að
finna á söluskrá fyrirtækis-
ins. Ef ekkert finnst sem
hentar nákvæmlega þeim
lýsingum sem gefnar voru,
færir hún fram það sem
næst kemst óskum kaup-
andans. Þetta virkar svo að
sjálfsögðu einnig öfugt.
Önnur nýjung er að hægt
er að fá sölu- og kaupsamn-
inga framreiknaða til nú-
gildis um leið og tilboð eru
gerö. Þannig getur seljandi
séð um leið hvers virði þeir
peningar eru raunverulega
sem hann fær til afborgunar
af skuldabréfi eftir þrjú til
fjögur ár. Og að sama skapi
getur kaupandi reiknað út
hversu mikil greiðslubyrði
hans verður þegar fram líða
stundir. Að sjálfsögðu eru
hækkanir áætlaðar við slíka
framreikninga, en óneitan-
lega er þetta þjónusta sem
lengi hefur vantað og mætti
gjarnan komi á fleiri stöðum,
svo sem hjá bönkum og
öðrum lánastofnunum.
Frumskógarpólitík
Heiðursgestur Viðskipta-
þings Verslunarráðs sem
haldið er um miðjan febrúar
var hagfræðingurinn Harris,
sem prýddur er lávarðartign
að auki og á sæti í lávarðar-
deild breska þingsins. i ræðu
sinni gerði hann að umtalsefni
samkeppni og val í viðskiptum
annars vegar og stjórnmálum
hins vegar. Fór hann ómjúk-
um orðum um þá þróun sem
orðiö hefur í öllum vestrænum
lýðræðisríkjum aö ríkisafskipti
hafa stóraukist, þrátt fyrir að
víða sætu í valdastólum menn
sem í hjarta sínu væru slíku
andvígir. Um þetta sagði lá-
varðurinn m.a.:
„Stjórnmálamenn reyna
ekki að afla sér valds með því
að beina máli sínu til einstakra
neytenda, sem allir hafa sama
haginn af góöri þjónustu á
lágu verði. Þeir reyna þetta
heldur með því að snúa sér til
sérhagsmunahópa, einstakra
framleiðenda, leigjenda,
bænda, verkalýðsrekenda,
lífeyrisþega, foreldra, náms-
manna og jafnvel kvenna. Allir
sjórnmálaflokkar kaupa at-
kvæði af kjósendum með
sérstökum fríðindum, styrkj-
um, verðlagshöftum, vernd-
unartollum, skattaafslætti
lagalegum sérréttindum
verkalýðsfélaga, svonefndri
„ókeypis" velferð og öllum
öðrum hugsanlegum ráðum.
Við vitum það öll, að þessi
fríðindi kosta sitt. En það
veldur stjórnmálamanni, sem
keppist við að kaupa sér vald,
litlum áhyggjum ... kostnaö-
urinn dreifist á óteljandi skatt-
greiðendur og er oft falinn í
söluskatti, tollum og vöru-
gjaldi sem leggst við verð
vöru.
Árangur í stjórnmálasam-
keppni næst þannig með því
að dreifa almannafé, svo allir
sjái og laumast síðan í vasa
manna. Þetta er bein spilling
... Stjórnmálamenn kaupa
atkvæði af kjósandanum á
einskis kostnað annar en hins
trúgjarna kjósandi."
Niðurstaða lávarðarins er
síðan sú að það er ekki kaup-
sýslumaðurinn heldur stjórn-
málamaðurinn sem starfar
samkvæmt lögmáli frumskóg-
arins. Það er því óheft ríkis-
vald sem ætti að telja lögmál
frumskógarins.
Orð í tíma töluð. Væri ekki
ráð nú þegar kosningaloforð-
in fara að hellast yfir okkur í
ómældu magni og heitari en
nokkru sinni, að senda öllum
stjórnmálamönnum sem lofa
gulli og grænum skógum, afrit
af ræðu þessa ágæta lávarö-
ar. Kannski þeir fari að átta sig
á því að einstaklingurinn er
fullkomlega fær um að færa
eigið fé á milli eigin vasa.
Stjórnmálamaðurinn er þarna
óþarfa milliliður og lengir ekki
aðeins leiðina, heldur veldur
því að aurarnír skila sér bæði
seint og illa.
Nýtt Hótel
á Akureyri
Heyrst hefur að eigendur
Sjalians á Akureyri hugsi nú til
byggingar nýs hótels á Akur-
eyri. Mundu þeir með því
bæta úr brýnni þörf því hótel-
skortur stendur mikið í vegi
fyrir ferðamannastraumi til
bæjarins, hvort sem er sumar
eða vetur. Kvíða margir þeim
vanda, sem óhjákvæmilega
hlýtur að koma upp þegar
Flugleiöir hefja áætlunarflug
milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar næsta sumar.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur
lengi haft uppi áform um
stækkun Hótel KEA en ekkert
orðið úr framkvæmdum og
hafa þær áætlanir reyndar
verið á hilluna lagðar í bili
a.m.k. En hvað KEA gerir ef
einstaklingar fara af stað er
svo annað mál. Kaupfélagið
hefur hingað til veitt einka-
rekstrinum einarða sam-
Frh. á bls. 89
12
j