Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 78
vegna er nauðsynlegt ef teppi
verður fyrir valinu að heillíma
það á gólfið, svo það hreyfist
ekki. Parket og önnur viöargólf
eru einna viókvæmust af þeim
efnum sem hér hafa valist og
verður þar eðli þess varnings
sem umleikinn er að ráöa. Þó
fljótandi gólfefni og jafnvel
málning á beran steininn séu
hér nefnd, má segja að hvort
tveggja henti þó öllu frekar þar
sem um grófari lager er að
ræða. Marmari og steinskífur
— eða flísar koma tæpast til
greina sökum þess hve efnin
eru hörð.
b) Kaffistofa:
Á kaffistofuna kemur margt
til greina. Þaö sem hafa þarf þó
í huga er aö auðvelt sé að þrífa
gólfið og þá ekki síst bletti.
Marmara og steinskífur þarf til
dæmis að verja og þétta með
grænsápu eða öðrum efnum til
því þessi náttúrulegu efni vilja
safna í sig fitunni, séu þau ekki
varin. Marmarinn er einnig viö-
kvæmur fyrir sýrum og getur til
dæmis sítrónusafi skilið eftir
sig Ijótan blett. Kókósteppi eru
því ekki talin hér meó vegna
þess hve erfitt er að bletta-
hreinsa þau. Um önnur teppi
má segja að nauðsynlegt sé að
hafa það á hreinu fyrirfram
hvernig haga skal til um
hreinsun alls kyns bletta. Þar
ræður mestu um hvers kyns
efni hefur farið ofan í teppið.
Fljótandi gólfefni og málning
eru almennt of gróf til að þykja
smekkleg á kaffistofu eða
mötuneyti, nema á stærri stöð-
um svo sem í verksmiðjum eða
fiskvinnslustöðvum. Þar er
umgangur allt annars eðlis og
efni þessi mjög hentug sökum
þess hve auðvelt er að þrífa
þau.
c) Snyrtlngar:
Á snyrtingum er um að gera
að hafa efni sem auðvelt er að
þvo og þrífa. Þess vegna henta
bæði marmari, flísar og dúkar
mjög vel. Nú eða þá fljótandi
gólfefnin þar sem umgengni er
vafasamari.
d) Söludeild:
Söludeildin er oft á tíðum
andlit fyrirtækisins. Þar er
mikið lagt upp úr fallegu útliti
og jafnframt því að varningur-
inn njóti sín vel. Umgengni er
mikil og því þörf á endingar-
góðu efni. Hér koma í rauninni
öll efni til greina nema máln-
ingin og fljótandi gólfefnin.
Hvort tveggja er í grófara lagi.
Ennþá einu sinni er þó rétt að
ítreka að hér verður eðli þess
varnings sem á boðstólum er
að ráða nokkru um.
e) Skrifstofur:
Útlit ræður alltaf nokkru um
hvað valið er á gólfið á skrif-
stofunni, en fleiri atriði þarf þó
að hafa í huga. Til dæmis koma
harðari efni varla til greina
vegna þess hversu mjög þau
hafa áhrif á hljóðeinangrun. Á
skrifstofum þar sem verið er að
vinna með reiknivélar, ritvélar
eða önnur hávær tæki, skiptir
miklu máli aö dregið sé sem
mest úr hávaðanum. Gólfiö er
þar mikilvægt en einnig og ekki
síður frágangur á loftum. Þá er
nauðsynlegt að loftræsting sé
höfð í huga og einnig hlýleiki.
Flestireyða nú orðið meiri tíma
á vinnustað sínum en heima
við, svo notaleiki umhverfisins
skiptir ákaflega miklu máli.
Teppi, parket, korkur og
kókósteppi eiga það sameigin-
legt að hafa dempandi áhrif á
hljómburð og henta því öll
ágætlega.
f) Tölvuherbergi:
Tölvunotkun er nú að verða
mjög almenn og á enn eftir að
fara vaxandi. Það er afar áríð-
andi að vanda til við frágang
gólfa í herbergjum þar sem slík
Parkett gæti hentað vel á kaffistofunni.
tæki standa, því efni sem leiða
illa rafmagn geta haft mjög
truflandi áhrif á rafeindatæki.
Nú er farið að framleióa sér-
stök gólfefni til nota í tölvuher-
bergi, jafnt teppi sem dúka. Er
æskilegast að hafa náið sam-
ráð bæöi við tölvu- og gólf-
efnaframleiðendur áður en
ráðist er íframkvæmdina. Þá er
ekki síður mikilvægt að vandað
sé til undirvinnu og lagningar
gólfefnis. Má nefna aó til eru
sérstök leiðandi lím og margir
hafa gripið til þess að leggja
koparvír í slíkt lím, áður en
gólfefnið sjálft er lagt til aó
tryggja hámarksleiðni.
g) Fundarherbergi:
Flestir geta sennilega verið
sammála um að fundarher-
bergi séu skemmtilegri eftir því
sem þau eru hlýlegri. Þarna
koma menn til að ræða saman
um alls kyns málefni yfir kaffi-
bolla eða öðrum veitingum og
vilja gjarnan að andrúmsloftið
78