Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 29
hólsvík, og svona áfram og áfram.
Hér mætti halda stórkostlega sýn-
ingu og skemmtan í viku eða
skemur, ég hef ekki áhyggjur af því
að ekki verði nóg um að vera.
Útlendingarmyndukomahingað
á þeim tíma sem léleg nýting er á
hótelum og tiltölulega lítið að gera
hjá flugfélögunum. Þeir myndu
kaupa hingað ,,pakkaferðir“, það
er flugfar og hótelgistingu, auk
aðgöngumiða að öllum atriðum
sýningarinnar, matarmiða og þess
háttar. íslendingum og þeim er
ekki kæmu á þessum kjörum gæf-
ist síðan kostur á að kaupa sig inn
á hvert atriði fyrir sig.
Við íslendingar hrósum okkur
oft af því að vera sérstök þjóð sem
býr í sérstöku landi. Við eigum ekki
að vera feimin við að notfæra okk-
ur það, að hafa tekjur af ferða-
mönnum eins og allar aðrar þjóðir
gera. Við förum til útlanda og dá
umst að menningu og listum, sjá-
um frábæra skemmtikrafta og
listamenn, borðum góðan mat og
kaupum vörur, sem við sjáum ekki
dags daglega hér heima. — Þetta
getum við boðið útlendingum
uppá hér. Við eigum að bjóða sjó-
stangaveiði, sund í heitu vatni,
hestaferðalög um nágrenni höf-
uðborgarinnar, ökuferð í Eden í
Hveragerði, lofa útlendingum að
bragða reykt lambakjöt, hangi-
kjötið okkar, kynna þeim jafnvel
svið og þorramat, sýna þeim orku-
verin, og svona endalaust áfram!
Við höfum margt að bjóða ekki
síöur en aðrar þjóðir. Frábæra
listamenn — jafnvel óperu á
heimsmælikvarða — sérkennileg-
an mat, óvenjulegt landslag, ein-
kennilegt land byggt þjóð með
stórbrotna menningu og athyglis-
vert þjóðlíf. Það er ekki vandi að
laða útlendinga að landinu ef rétt
er á spilum haldið."
Átak á vegum SÁÁ
Það hefur vart farið fram hjá
mörgum, að nú stendur yfir mikið
fjáröflunarátak á vegum SÁÁ,
Samtaka áhugafólks um áfengis-
vandamálið. Átaki þessu er beint
að sjúkrastöð SÁÁ sem verið er að
reisa við Grafarvog í Reykjavík.
Aðferðin við þessa fjáröflun er
nokkuð nýstárleg. Hún felst í því
að flest heimili og fyrirtæki í land-
inu fá þessa dagana send gjafa-
bréf með beiðni um samþykki og
er viðtakendum ætlað að senda
bréfin til baka. Reyndar eru það
karlmenn á aldrinum 30—70 ára
sem skrifaðir eru fyrir þréfunum,
en þar sem vitað er að almennur
áhugi er fyrir því að styrkja málefni
SÁÁ eru bréfin höfð tvö, annað
áritað, en hitt ómerkt fyrir þá aðra
sem vilja vera með.
Gjalddagar gjafabréfanna eru 5
talsins, sá fyrsti 5. júní næstkom-
andi en sá síðasti ári seinna eða 5.
júní 1984. Afborgun í hvert skipti
er 360 krónur, en bréfin eru bæði
vaxtalaus og óverðtryggð, auk
þess sem slíkar greiðslur eru að
fullu frádráttarbærar til skatts.
En þar með er ekki allt upp talið.
Hvert bréf gildir jafnframt sem
happdrættismiði. Fimm sinnum,
eða á hverjum gjalddaga, verða
dregnir út 10 vinningar að upp-
hæð kr. 100.000 hver eða samtals
ein milljón króna í hvert skipti.
Söfnunin er gífurlega umfangs-
mikil og munu milli fimm og sex
hundruð manns starfa að henni í
allt. Þar á meðal er fjöldi áhuga-
manna og félaga og má nefna
JC-hreyfinguna sem heitið hefur
myndarlegum stuðningi. Það er
útgáfufyrirtækið Frjálst framtak
hf., sem annast söfnunina fyrir
hönd SÁÁ, en framkvæmdastjóri
hennar er Valdimar Jóhannesson.
Mikil eftirvænting ríkir í hugum
SÁÁ-manna og annarra sem
áhuga hafa á baráttunni við
áfengisvandamálið, með að taka í
notkun nýju sjúkrastöðina. Þar
munu rúmast um 60 sjúklingar og
er ætlað að opna í október. Á þeirri
sjúkrastöð sem fyrir er rekin að
Silungaþolli dvelja að jafnaði um
38—40 manns en mikill fjöldi er
alltaf á biðlista svo þörfin er brýn.
Auk þessa eru starfræktar tvær
eftirmeðferðarstöðvar að Sogni í
Ölfusi og Staðarfelli í Dölum, svo
samtals eru það um 100 manns
sem SÁÁ sinnir daglega í barátt-
unni við áfengisvandamálið.
Það þarf vart að tíunda hvílíkt
böl áfengið hefur leitt yfir marga,
ekki einungis þá sem neyta þess í
óhófi, heldureinnig aðstandendur
þeirra, ættingja og vini. Þegar
hefur SÁÁ náð undraverðum
árangri, þó aðeins séu um fimm ár
síðan samtökin voru stofnuð. En
vandinn er enn mikill og þörfin á
aðstoð brýn.
29