Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 23
Skulu hér nefnd nokkur dæmi,
sum hafa komist á síður dagblað-
anna, um önnur hefur verið hljótt.
Mokaði kjötinu upp með mold og
öllu saman
Offramleiðsa er hér á landi á
hrossakjöti, eins og raunar er í
flestum greinum landbúnaðar.
Nokkuð hefur verið gert í því að
afla markaða erlendis fyrir
hrossakjöt, og þar kom, að Frakk-
ar reyndust fúsir að kaupa all
nokkuð magn til reynslu. Skyldi
kjötið hanga í ákveðinn tíma og
skorið sérstaklega að ósk Frakk-
anna, áður en flogið yrði með það
til Parísar. Þar kom, að fyrsti farm-
urinn skyldi fara utan, og var heil-
um bílfarmi komið á yfirbyggða
vörubifreið er flytja skyldi vöruna
til Keflavíkurflugvallar. Á leiðinni
vildi hins vegar ekki betur til en
svo, að kjötið féll af stöngunum í
bílnum er það hékk á, og hluti
farmsins fór alla leið út úr bifreið-
inni og hafnaði í vegarkantinum.
Er nú ekki að orðlengja það, að
flutningsmennirnir gerðu sér lítið
fyrir, hengdu kjötið aftur upp, og
sópuðu það mesta af því sem farið
hafði niður í mölina og rykið. Komu
þeir farminum í tæka tíð til Kefla-
víkur, og sáu hinir ánægðustu á
bak flugvélinni er hún hélt áleiðis
til meginlands Evrópu með sum-
arstaðið íslenskt stóð innanborðs,
niðurskorið og sneitt eftir kúnstar-
innar reglum.
Ánægjan var hins vegar ekki
eins mikil hjá Frökkum er þeir fór
að kenna ketið ytra. Allt meira og
minna marið, og það sem verra var
og ótrúlegra: Ekki varð betur séð
en möl og sandur væri á hluta
kjötsins, og þurfti enga smásjá til
að sjá það. Kjötinu var því fleygt,
þar sem ekki kom til mála að bjóða
nokkurri siðmenntaöri þjóð uppá
það, og ekki kom til tals að senda
greiðslu til íslands fyrir vöruna.
Ekki mun öll von úti um að takast
megi að selja hrossaket til Frakk-
lands, en svo mikið er víst, að ekki
er það að þakka útflytjendunum
sem hér er frá sagt. Þeir hafa ekki
aðeins skaðað sjálfa sig, heldur
beint og óbeint alla útflytjendur á
íslandi.
23