Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 85

Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 85
bækur Stundaglasið — hagnýt bók um skipulagningu tímans Stundaglasið, bók um tíma- skipulagningu, heitir nýlega útkomin bók. Því miður kennir ekki margra grasa á íslenskum bókamarkaði í þessari grein bókmennta. Eru þó margir þeirrar skoðunar að Islending- ar svona yfirleitt séu manna verstir staddir um allt tíma- skipulag sitt. Raunar er bóka- kostur á íslensku um ýmis hagræðingarmálefni fátæk- legur mjög enn sem komið er. Vonandi verður ráðin bót á þessum skorti á hagnýtu les- efni fyrir forráðamenn og raunar alla starfsmenn fyrir- tækja á komandi árum. Okkur dettur þá í hug að e.t.v. muni fyrirtækin f landinu ráða þenn- an vanda sjálf á sama hátt og útgefendur Stundaglassins eftir Edwin C. Bliss. Þaö óvenjulega við þessa bók er í rauninni margt. Meðal annars það að bókin er ekki föl á almenn- um markaði, hún er ekki til sölu, en hinsvegar gefin ýmsum viðskipta- vinum útgefendanna, sem eru Hafskip h.f. og Karnabær h.f. Eins konar ,,mottó“ bókarinnar er eftirfarandi: Gærdagurinn er ógild ávísun Morgundagurinn er loforð um borgun Dagurinn í dag er reiðufé, not- aðu það! Þetta mættu eflaust margir skoða og íhuga. En lítum aðeins á efni bókarinn- ar. I henni er rætt á stuttan en skýran hátt um hluti eins og þessa samkvæmt efnisyfirliti: Að læra af reynslunni, áfengi, atferlismótun, flöskuhálsar, hlé, stresstaskan, flokkun tímanotkunar, óreiða, samskipti, ferðatími, einbeiting, símafundir, afrit, bréfaskriftir, neyðarástand, tímamörk, vald- dreifing, diktafónninn, afkasta eða markvirkni, líkamsþjálfun, ótti, pappírsflóðið, skjalavistun, upp- lýsingaflóð, truflanir, listar, fundir, minnisblöð, starfsaðstaða, kostn- aður við pappírsvinnu, skrif- finnskupróf, skipulagning, for- gangsverkefni, hraðlestur, spenna og tímanotkun, tímaskráning, skipulagning tímans, bréfakarfan, vinnusýki. Og hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í kaflafyrir- sögnum bókarinnar. Þýðingu bókarinnar gerðu þau Fríða Ingvarsdóttir og Hans Othar Jóhannsson og er það lipurlega af hendi leyst. Bókin er 121 blaðsíða, skreytt skemmtilegum teikni- myndum. Ef við kíkjum aðeins á einn kafla í bókinni og veljum t.d. kafla sem heitir Fundir, þá hljóðar hann svo: Fundir llla skiplagóir fundir undir slæmri stjórn eru einhver mesta tímaeyðsla sem hugsast getur. Hafðu það í huga ef það er innan þíns verkahrings að halda fundi. Spurðu sjálfan þig: ,,Er þessi fundur afsökun til að fresta ein- hverri framkvæmd? Get ég sjálfur tekið ákvörðunina án þess að ráð- færa mig við aðra? Því ekki það?“ Athugaðu hvort þú getur ekki not- að símann ef nauðsynlegt er að ráðfæra sig við aðra. Reyndu að koma í veg fyrir fundinn, því hver mínúta sem fer til spillis, er marg- földuð með fjölda fundarmanna. Ef fundurinn er nauðsynlegur, skaltu boða hann skriflega og taka mjög skýrt fram hvað skuli taka til ákvörðunar en ekki bara segja frá umræðuefninu. Ef þú til dæmis boðar vissan fjölda fólks til fundar á skrifstofu þinni til að ,,ræða“ um vöruteg- undir ertu raunverulega aö biðja það um að koma til að rabba sam- an. Hugleiddu áhrif svohljóðandi minnisblaðs: Til: Guðrúnar Jónsdóttur, Magnúsar Hallvarðssonar, Péturs Gunnarssonar, Frióriks Friðriks- sonar. Viðfangefni: Vörutegundir. Vinsamlegast mætið á einnar klukkustundar fund á skrifstofu minni n.k. þriðjudag kl. 15.00 til að ákveða eftirfarandi um vöruteg- undir: 1. Er vöruúrval okkar orðið of flókið fyrir framleiðslu og sölu? 2. Væri hagkvæmt að framleiða færri umbúðarstærðir? 3. Er markaðurinn opinn fyrir breytingunni? 4. Ef til fækkunai á vöruteg- undum kæmi eða stærðum um- búðanna, hverjar ætti að taka fyrir fyrst? Þeir sem fá slíkt minnisblað munu koma til fundar fullkomlega meðvitaðir um nauðsynlegar upp- 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.