Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 91
Hvað kostar að láta
gera portrettmálverk?
Það hefur færst í vöxt hérlendis á síðustu árum, að fyrirtæki,
félög og stofnanir láti gera portrettmálverk af forystumönnum og
stjórnendum fyrirtækjanna eóa félaganna vió hin ýmsu tímamót í
ævi viðkomandi manna eða fyrirtækja. Jafnframt er þaö all al-
gengt að starfshópar eða vinir og kunningjar taki sig saman og
láti gera málverk af einhverjum félaga eða samstarfsmanni, til
dæmis í tilefni sextugs eða sjötugsafmælis, eða vegna starfsaf-
mælis eða annars slíks. Frjáls verslun fór á stúfana og kannaói
hvað listmálarar það eru einkum, sem gera portrettmyndir, hvað
það kostar og hve langan tíma tekur að láta gera slíkar myndir.
Það virðast einkum vera sex listmálarar, sem haslað hafa sér
völl á þessu sviði myndlistarinnar, og allir eru þeir um leið þjóð-
kunnir málarar á öðrum svióum. Þetta eru þeir Balthazar, Gísli
Sigurðsson, Örlygur Sigurðsson, Eiríkur Smith, Sigurður Sig-
urðsson og Ragnar Páll. Balthazar og Örlygur eru líklega einna
stórtækastir á þessu sviði, en hinir mála einnig talsvert. Verð á
portrettmyndum er mjög mismunandi, en þó sjaldan lægra en 30
þúsund krónur, og upp í um þaó bil sextíu þúsund krónur. Hittist
þannig á að viðkomandi listamaður hafi tiltölulega rúman tíma
þegar hann er beðinn að taka að sér gerð portrettsverks, má
áætla að lágmarkstími til að Ijúka verkinu og fá hana síðan inn-
rammaða, séu átta til tíu vikur — tveir til tveir og hálfur mánuöur.
Við gerö portretta eru einkum þrjár aðferðir notaðar. í fyrsta
lagi, aö viðkomandi aðili sitji fyrir hjá listamanninum, komi svo oft
sem þurfa þykir, á meðan unnið er að verkinu. Þessa aðferð nota
þeir til dæmis mest, Balthazar og Örlygur Sigurðsson. í ööru lagi
er sú aðferð talsvert notuð, að listmálarinn byrjar á því að taka
Ijósmynd af ,,fórnarlambinu“, síðan er valin besta myndin til að
fara eftir, og loks situr hlutaðeigandi fyrir við lokavinnslu mynd-
arinnar, eða kemur og situr fyrir nokkrum sinnum á meóan unnið
er að verkinu. Þeir, sem nota þessa aðferð eru meðal annarra þeir
Eiríkur Smith og Gísli Sigurðsson. í þriðja lagi eru síðan gerð
portrett eftir Ijósmynd eða myndum eingöngu, og er það einkum
gert þegar um er að ræða látið fólk, eða þegar ætlunin er að koma
viðkomandi á óvart með gjöf af þessu tagi.
í portrettmálverkagerð er einkum um að ræða tvær meginað-
ferðireða útfærslur: (fyrsta lagi erhið „hefðbundna" portrett, þar
sem máluð er brjóstmynd eða almynd í því sem næst eðlilegri
líkamsstærð. í öðru lagi er það svo „frjálst" portrett, þar sem
fyrirmyndin er látin vera í einhverju umhverfi er hæfa þykir, á