Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 83
PVC-dúkar eða flísar:
PVC er skammstöfun fyrir
Poly-Vinyl-Chlorid sem erefniö
í vinyl-dúkunum eöa flísunum
sem lengi hafa veriö vinsæl á
gólf. Dúkar hafa ýmsa kosti.
Þaö er auðvelt aö þrífa þá,
mjúkt aö ganga á þeim og
hægt er aó velja úr mjög
mörgum og mismunandi gerö-
um. Endingin ereinnig misjöfn.
Nú er farið aö framleiða dúka
þar sem mynstur nær alveg í
gegnum dúkinn, en lengst af
var mynstriö aðeins á yfirborö-
inu. Þetta þýðir að sjálfsögóu
meiri endingu, eöa réttara sagt
aö slitnir fletir sjást síöur en
áöur. PVC-dúkar og flísar fást í
öllum verðflokkum og væntan-
lega má ganga út frá aó dýrari
gerðir tryggi meiri gæöi.
Steinskífur eða flísar:
Hægt er aö fá innfluttar
steinskífur og flísar hér í miklu
úrvali og í misjöfnum stæröum.
Einnig er á boðstólum íslensk
framleiösla úr blágrýti, grágrýti
og fleiri bergtegundum. Litir
eru mjög mismunandi, eftir því
hvaöan grjótiö kemur. En
óhætt er að fullyrða aö hér er
um mjög sterk efni að ræöa.
Stein- og leirflísar fást einnig
meö innbrenndri lakkhúó og
alls kyns mynstri. Má sem best
leggja margar þeirra jafnt á
gólf og veggi. í eldhús, snyrt-
ingar og víöar er nauösynlegt
aö þétta hráar og náttúrulegar
flísar vel meö grænsápu eða
ööru verjandi efni til að varna
því aö fita eða önnuróhreinindi
gangi inn í steininn. Auðveldar
þetta einnig mikið þrif á gólf-
unum. Verð eru afar misjöfn,
en þó er óhætt að segja að
flísar þessar séu yfirleitt frekar
dýrar.
Marmari:
Marmari er ekki síöur end-
ingargott efni en steinflísarnar.
Hann hentar mjög víða á gólfið,
en um báða þessa síðast-
nefndu flokka gildir aó hart er
að ganga á þessum gólfum og
þau eru ekki vel fallin til að
draga úr hávaða eöa glymj-
anda. Slíkt má þó dempa
nokkuð meó því að setja á þau
mottur eða dregla. Auðvelt er
að þrífa marmarann, en hann
er nokkuð viðkvæmur fyrir sýr-
um. Marmari er enn nokkuð
dýrt gólfefni, en verðið hefur
þó lækkaö nokkuð á undan-
förnum árum.
Gervigúmmídúkur:
Gervigúmmídúkur er tiltölu-
lega nýtt efni og einnig nýlega
komið á markað hér. Dúkurinn
er upphleyptur með tökkum
eða doppum og oftlega nefnd-
ur takkadúkur. Þessi gervi-
gúmmídúkur hefur aflað sér
mikilla vinsælda, enda á end-
ing hans að vera mjög mikil.
Sem dæmi má nefna aö hann
er mikið tekinn á stofnanir og
aóra staði þar sem umferó er
mikil, svo sem flughafnir og
járnbrautarstöðvar. Dúkinn má
fá f ýmsum þykktum og mörg-
um litum, bæði einlitan og tví-
litan.
Korkur:
Korkur hefur verið ákaflega
vinsæll til nota hér undanfarin
ár, ekki síst í heimahúsum.
Korkurinn er bæði hlýlegt og
skemmtilegt efni. Fæst hann í
flísum, bæöi vinylhúðaður og
,,hrár“. Þegar nota á kork á
umferðarþungum stöðum er
hiklaust hægt að mæla með
þeim óhúðaða. Er hann þá
lakkaóur með sterku lakki.
Ástæðan er sú að náttúrulega
korkinn má fá mun þykkari en
þann húðaða og þegar lakkið
slitnar er lítið annað aö gera en
að slípa upp gólfið og lakka
aftur. Er það þá sem nýtt. Þeg-
ar sá vinylhúðaði fer að láta á
sjá, er aftur lítió hægt að gera.
Svo er þaó skemmtilegur bón-
us að náttúrulegi korkurinn
kostar jafnvel ekki meira en
þriðjung þess sem sá húðaði
kostar. Ráðlegt er að spyrja
sérfróða um hvaöa lím henti
best hverju sinni. Sé það rétt
valið, á korkurinn aö þola
næstum hvað sem er og jafn-
framt er mjög auðvelt að þrífa
hann.
Kókósteppi:
Kókósteppi náóu strax mikl-
um vinsældum er þau komu
hér á markað fyrir nokkrum ár-
um. Yfir þeim er mikill léttleiki
og féllu þau sérlega vel að
hvítu málningunni og furunni
sem til skamms tíma voru hér
alls ráðandi. Gæði kókósteppa
eru mjög misjöfn, en um þau öll
má segja aö þau séu ekki sér-
lega auðveld til þrifa. Á móti
kemur að lítið sést á teppunum
nema þá ef eitthvað hellist
niður eða blettir myndast á
annan hátt. Þá vandast heldur
um hreinsun. Kókósteþpi fást
sem fyrr segir í mörgum gæða-
flokkum og jafnframt á mis-
munandi verði. Er rétt að
hugsa málið vel áður en þau
eru valin á umferðarþyngri
staði. Kostirnir eru þeir helstir
að kókós er hlýlegt og
skemmtilegt efni og gefur
prýðilega hljóðeinangrun. Það
andar einnig vel í gegnum þau
og loftið verður gott, þangaó til
að óhreinindi hafa náðst að
safnast saman undir þeim.
Þeim óhreinindum getur verið
erfitt að ná í burtu, en kröftug
ryksuga gerir þó mikió gagn.
Fljótandi gólfefni
og máining:
Þó fljótandi gólfefni sé talið
hér með, er næsta víst að fáir
myndu nota slíkt á skrifstofu-
húsnæði. Efni þessi hafa þó
marga og mikla kosti. Þau eru
mjög slitsterk og þola vel heitt
vatn og ýmis sterk efni. Hió
Framhald á bls. 89
83