Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 41
McDonnell Douglas DC8-63 þota Flugleiða, TF-FLC í litum Saudia í Saudi Arabíu. Flugleiðir leigja tvær slíkar vélar til
Saudia til vöruflutninga. Var samningurinn nýlega endurnýjaður til tveggja ára.
nánast allan síðasta áratug og
fram á þennan dag, sem dró
verulega úr þeirri árvissu
aukningu, sem verið hafði á
vöruflutningum. Samhliða
þessu jókst framboð þannig að
stöðugt fleiri urðu til að bítast
um stöðugt færri lausa farma.
Mestu munaði um fjölgun
breiðþota í farþegaflugi, sem
urðu til að auka flutningsgetu
næstum upp í það óendanlega.
Ein Boeing 747 þota ber í lest-
um nánast sama flutnings-
magn og heil DC 8-63 fraktvél
og mörg stærri áætlunarflug-
félögin nota breiðþotur í
blönduðu farþega og fraktflugi.
í samræmi við alkunnug lögmál
um framboð og eftirspurn hef-
ur farmverð hrapað og er nú
nánast hægt að tala um upp-
boðsmarkað íalþjóða flugfrakt.
Þá hafa mörg stóru flugfé-
laganna komið á fót dótturfyr-
irtækjum til að fljúga með frakt.
Dæmi um slíkt er German
Cargo Services (GCS), dóttur-
fyrirtæki Lufthansa. GCS á sér
heimahöfn í næsta nágreinni
við Luxemborg og starfar með
svipuðum hætti á nánast sömu
mörkuðum og Cargolux og er
því skæður keppinautur. GCS
rekur fjórar Boeing 707 frakt-
vélar, en því til viðbótar á Luft-
hansa tvær 747 vöruflutninga-
þotur og níu kombi vélar af
sömu gerð auk DC-10 kombi-
véla.
Asía: Besti markaðurinn
Besti markaðurinn fyrir flug-
frakt hefur verið í Austurlönd-
um, reyndar bæði nær og fjær.
Þar hefur bæði verið um að
ræða mikla innflutningsþörf
landanna í kringum Persaflóa
og stöðugt vaxandi útflutning
hinna fjarlægari Austurlanda,
Hong Kong, Taiwan, Kóreu og
Japan. Framboð hefur hins
vegar aukist mikið á þessum
markaði eins og öðrum og er
mikið um undirboó. Asíu félög-
in hafa yfirleitt lægri launa-
kostnað en vestræn félög og
rekstrarkostnaður er í flestum
tilvikum minni. Þetta gerir þeim
kleift að bjóða verðið niður úr
öllu valdi. Mikil aukning á far-
þegaflugi með breiðþotum
hefur orðið til þess að stórauka
1
Finnist ekki viðunandi verkefni verður hluta af flugflota Cargolux lagt.
41