Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 45
markaði, aó hún ásamt þeim
rekstraraðgerðum, sem stjórn
félagsins hefur gripió til nái aó
rífa það upp úr táradalnum,
skal ósagt látið. Eitt er þó víst
að hvort atriðið eitt sér mun
tæpast duga. Draga margir
kunnugir það í efa að sú mikla
aukning hlutafjár, sem ákveðin
hefur verið muni verða til ann-
ars en aó lengja dauðastríð
fyrirtækisins gerist ekki krafta-
verk á sjálfum markaðnum.
Svo erfið er staöa félagsins.
Auk vandamála, sem stafa af
áóurnefndu offramboði á
flutningsgetu, lágum farm-
gjöldum og lítilli eftirspurn,
hefur Cargolux borið þungar
greiðslu og vaxtabirgðir. Fyrir
nokkrum árum fjárfesti félagið í
tveimur nýjum Boeing 747
vöruflutningavélum en um
sama leyti urðu miklar hækk-
anir á vöxtum, sérstaklega í
Bandaríkjunum. Fjármagns-
kostnaður varð því óheyrilegur
um leið og rekstrargrundvöllur
þessara dýru flugvéla veiktist
stööugt af markaðslegum or-
sökum. Kreppan í fluginu varð
jafnframt til þess aó framboó
jóks verulega á notuðum flug-
vélum þannig að flugvélaverö
snarlækkaði. Cargolus hefur
því verió ómögulegt að selja
þessar vélar nema með miklu
tapi, þar sem markaðsverð
þeirra er langt fyrir neóan bók-
fært verð þeirra.
Nú er svo komið að Cargolux
hefur aðeins eina flugvél í
rekstri, þ.e. aðra Boeing 747
þotuna. Hinni hefur verið lagt
ásamt tveimur DC 8 þotum þar
til verkefni hafa fundist fyrir
þær.
Playboy að brenna út
Playboy veldið, sem eitt sinn bar svo ríkulegan
ávöxt man nú sinn fífil fegri. Eftir að hafa gert
margar tilraunir, flestar misheppnaðar, til að
dreifa rekstrinum á fleiri rekstrarþætti er eigand-
inn og stofnandinn, Hugh Hefner nú neyddur út í
mjög óþægilega fjármála strip-tease. Bresk yfir-
völd hafa stöðvað gróðapottinn mikla, spilavítin,
og blaðið, sem allir lesa „vegna hinna merkilega
greina“ hefur hrapað í upplagi og misst auglýs-
ingar. Dóttir Hefner, hin þrítuga Christie
ætlar nú að snúa þróuninni við með því að leggja
vaxandi áherslu á kapalsjónvarp.
Fyrir nokkrum vikum síðan
krýndi tímaritið Playboy
„Playmate of the year“, leikfé-
laga ársins, í veislu í Beverly
Hills í Los Angeles, sem mun
vera í röð fínni íbúðarhverfa í
veröldinni. Veisluna hélt Hugh
Hefner, sem stofnaði Playboy
fyrir rúmlega 25 árum.
Veislan var haldin í „Playboy
Mansion", en sú bygging líkist
meir höll en húsi og þar er að
finna bústaó og skrifstofu
Hugh Hefners. Framan viö ólg-
andi foss í blómstrandi grasa-
garði tilkynnti Hefner val leik-
félaga ársins, Shannon Tweed,
en svo hittist á að hún var jafn-
framt nýjasti ,,leikfélagi“ hans.
En kampavínið flaut ekki í jafn
stríðum straumum og áður við
svipuð tækifæri. Frá því í októ-
ber 1981 hefur Playboy sam-
steyþan dansað strip tease og
þurft að kasta af sér átta af tólf
starfsgreinum.
Af veldi, sem fyrir rúmu ári
síðan réði yfir hótelum, nætur-
klúbbum, bókaútgáfu, spilavít-
um, kvikmyndaverum og allt
niður í plötuútgáfu stendur
varla meira eftir en mánaðar-
blaöið Playboy, sem keypt er af
5,2 milljónum karlmanna út um
allan heim ,,vegna hinna
merkilegu greina og viötala".
En uppskurðurinn á Playboy
hefur ekki gengið átaklaust
fyrir sig. Hugh Hefner, stjórn-
arformaðurinn, hefur talið sér
þægilegra að stjórna aðgeró-
um frá lystihýsi sínu í Beverly
Hills en aðalstöðvunum í Chic-
ago. Forstjóra fyrirtækisins,
sem sat í Chicago hefur verið
sagt upp störfum og í staóinn
hefur Hefner ráðið dóttur sína
Christie Hefner til aö stjórna
fyrirtækinu.
Vandamál Playboy byrjuðu
fyrir alvöru þegar stjórnvöld í
Bretlandi ákváöu að endurnýja
ekki leyfi til að reka spilavíti
þar. Sú ákvörðun varð mikið
áfall fyrir Playboy. Síðasta
sumarið sem þau voru starf-
45