Frjáls verslun - 01.01.1983, Blaðsíða 15
sem stærstu liðirnir eru kaup á
húsnæði, og innrétting og
uppsetning á stúdíói. Mér virð-
ist hins vegar lítil ástæða til að
gera jafn miklar gæðakröfur til
lítilla, staðbundinna útvarps-
stöðva, enda munu þær ekki
njóta jafn tryggra tekna og
Ríkisútvarpið gerir.“
14 milljónir í rekstur
rásar tvö á ári?
Samkvæmt heimildum
Frjálsrar verslunar hefur undir-
búningsnefnd, sem unnið hef-
ur að tillögum að starfrækslu
rásar tvö hjá Ríkisútvarpinu,
lagt fram hugmyndir sínar um
umfang útvarpsdagskrár og
mannaflaþörf. I' nefndinni eru
þeir Hallgrímur Thorsteinsson
fréttamaöur, Þorgeir Ástvalds-
son útvarpsmaður, Ólafur
Guðmundsson verkfræðingur
Ríkisútvarpsins og Guömund-
ur Jónsson framkvæmdastjóri.
Miðað við útsendingar sextán
klukkustundir á sólarhring
gerir nefndin ráð fyrir að þurfi
ellefu fastráöna starfsmenn og
tíu lausráðna starfsmenn,
samtals tuttugu og einn starfs-
mann ífullu starfi. f þessari tölu
eru meðal annars auglýsinga-
stjóri, tæknimenn, dagskrár-
gerðarmenn og maður er ann-
ast gerð auglýsinga, skrif-
stofumenn og fleiri.
Þessi rás tvö á aö kosta
samkvæmt hugmyndum undir-
búninganefndarinnar um 14
milljónir króna í rekstri á ári.
Reiknað er meö að stofnkostn-
aður miðaó viö einn sendi í
Skálafelli og miðað viö sextán
klukkustunda útsendingatíma
á sólarhring, verði 22 milljónir
króna. Sé á hinn bóginn miðað
við fimm senda, og ná þannig
til meginhluta landsins, er
stofnkostnaðurinn 30.8
milljónir króna, miðað við
verðlag í desember 1982.
Sérstaklega skal tekið fram,
að þessar tölur eru aðeins til-
lögur undirbúningsnefndar-
innar, sem raunar eru enn
merktar ,,trúnaðarmál“, og lík-
legt er að yfirvöld Ríkisút-
varpsins hafi allt aðrar hug-
myndir um umfang rásar tvö.
Þessar tölur sýna aftur á móti
glöggt hve stórt menn hugsa
hjá Ríkisútvarpinu, enda er þar
verið að ráðskast með al-
mannafé, en ekki áhættufé
hlutafélags eða fárra einstak-
linga.
Nýtt Útvarpshús á
247 milljónir króna.
„Áætlaður heildarkostnaður
við byggingu nýja Útvarps-
hússins er 247 milljónir króna,
og er þá átt við að húsiö sé til-
búið og nálega fullgert árið
1986“ sagði Höróur Vilhjálms-
Þótt nýtt húsnæði
sé dýrt mun því
fylgja margvísleg
hagkvæmni
son fjármálastjóri Ríkisút-
varpsins í samtali við blaðið.
,,Þetta hús á aö hýsa bæði
hljóðvarp (rás 1 og rás 2) og
sjónvarp“ sagöi Hörður, ,,og
miðað er við svipaðan fjölda
starfsmanna og nú er. Miðað
við 1. mars 1983, þá starfa við
útvarpið 97 menn, við sjónvarp
139, sameiginlegir starfsmenn
eru 28, og starfsmenn á Akur-
eyri teljum við þrjá. Þetta eru
samtals 267 starfsmenn hjá
Ríkisútvarpinu."
— Starfsmenn verða viðlíka
margir, en hversu stórt er hið
nýja hús?
,,Leiðslukjallari, sem allur er
neðanjarðar er 2.270 fermetr-
ar. Fyrsta hæð, þar sem eru
þílastæði, er 1.160 fermetrar,
vélahús á sömu hæð er 175
fermetrar; geymslur og fleira
eru 1.920 fermetrar, og annað
rými er 3.845 fermetrar, fyrir
stúdíó, skrifstofur og fleira.
Flatarmál fyrstu hæðar er þá
7.100 fermetrar, og við það
bætast síðan um 350 fermetrar
fyrir tökubíl sjónvarpsins og
verkstæði honum tengt. Önnur
hæð skiptist þannig: Geymslur
og fleira 250 fm. og annað rými
fyrir stúdíó og skrifstofur er
4.000 fm. — Þar af verður rás 2
með um 500 fm. Síðan er þriðja
hæö: Geymslur og tæknirými,
svo sem hita- og loftjöfnunar-
rými, um 800 fm. Fjórða hæð er
630 fm og verður aðallega fyrir
skrifstofur sjónvarpsins og
væntanlega einnig að ein-
hverju leyti fyrir rás 2. Á fimmtu
hæð verða skrifstofur, mötu-
neyti og fleira, svo sem skrif-
stofa útvarpsstjóra og útvarps-
ráðs, þessi hæð er einnig 630
fm. Síðan er smáturn, sjötta
hæð, tæknirými 50 fermetrar.
Alls er Útvarpshúsið þá 15.800
fermetrar, með geymslukjallar-
anum, og við þetta bætast síð-
an 350 fermetrarnir fyrir töku-
bílinn.“
— Hvernig er þá heildar-
skipting húsnæðisins eftir
þeirri starfsemi sem þar á að
fara fram?
„Skrifstofur, stúdíó og önnur
íverusvæði, eru 9.105 fm.
Geymslur: 2.170 fm. Vélahús
og leiðslugöng: 3.365 fm. Bíla-
stæði 1.160 fm.“
— Rás tvö tekur til starfa í
haust. Hversu margir starfs-
menn munu vinna við hana?
,,Það er ekki endanlega
ákveðið, en væntanlega verða
þar um það bil sex fastráðnir
menn, og sex til átta lausráðnir,
eða samtals tólf til fjórtán
manns.“
— Þýðir það að hugmynd-
um eöa tillögum undirbúnings-
Framhald á bls. 89
15