Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 55

Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 55
fyrir 50 árum. Það stafar af því að samfélagið í heild er ríkara. Það er ekki tilfærsla tekna, sem hefur aukið velmegun. Sagan kennir okkur líka að ör hagvöxtur hefur fylgikvilla svo sem stórborgargettó og ójafna tekju- skiptingu. En hægt er að ganga of langt í tillitssemi og jöfnun tekna. í velvirku hagkerfi hækkar velferð- arstig allra, ekki bara hinna ríku eða fátæku." — Eiga hagfræðingar að hafa meiri áhrif á stjórnmálum? ,,Ég hef ekki trú á hagfræðing- um, sem pólitískum ráðgjöfum. Hins vegar erum við ágætir í að benda á leiðir að settu markmiði. Hagfræðingar eiga að vera tækni- menn — Keynes sagði einu sinni að hagfræðingar ættu að vera góðir tannlæknar, að við ættum að gera við en ekki segja fólki hvernig það á að lifa lífinu. Hagfræðingar eru góðir í hag- kvæmni og hámörkun. Stjórn- málamaður getur spurt okkur hvernig best er að hámarka tekjur ríkisins og við höfum svar. En við eigum ekki að skipta okkur af því hvort ein leiðin eða önnur sé betri fyrir landbúnaðinn, atvinnulausa eöa efnamenn. Millifærslurnar eru svið stjórnmálamannanna." — Þú hefur oft skipt um rann- sóknarsvið á starfsævinni? ,,Ég vinn hratt. Kannski hef ég skipt oft, en það endurspeglar persónuleika minn. Ég vil breyt- ingar. Sjálfur tel ég að framgangur minn hefði orðið meiri ef ég hefði haldið mig við hlutverk upplýsinga ímarkaðshegðun. Ég vann við það í nokkur ár. Síðan fór ég yfir í að rannsaka orsakir og afleiðingar opinberra afskipta. Nú er það hlutverk upplýsinga í stjórnmála- lífi." Nýjar spara leiðir til að telexkostnað Stærð telex kerfisins bendir til þess að mörg ár líði, áður en það víkur sem algengasti sjálfvirki sendingarmiðillinn í notk- un hjá fyrirtækjum. Reyndar eru til kerfi sem vinna hraðar en telexið, sem sendir á hámarks hraða 400 stafi á mínútu. Slíkt kerfi eru gjarnan gagnleg fyrirtækjum sem þurfa að sendi mikinn texta til sömu, fáu viðtakendanna. — Samt sem áður veitir telex kerfið aðgang að næstum hverju einasta fyrirtæki f heiminum. Telex kerfið er enn í vexti. Talið er að þaö nái til u.þ.b. 1,2 milljón notenda, í 190 löndum og ríkjum. Notendum fjölgar samfara því að telex kostnaður minnkar í hlutfaiii við póstkostnað, og þar sem tel- exið er stöðugt betur viðurkennt til þess að gera bindandi samninga á sviði viðskipta og fjármála. Eins og telexið er uppbyggt, getur það orðið við nauðsynlegum kröfum sem gerðar eru til send- ingarmiðils. Þegar um stuttan texta er að ræða berast skilaboð tafarlaust til viðtakenda. Telexið getur sent texta stanslaust í 24 stundir, lætur báðum aðilum í té prentuð afrit af því sem þeim hefur farið á milli og leyfir bein sam- skipti, þegar báðir aðilar sitja við telex tækin Flest fyrirtæki sem hafa telex nýta sér illa þann kost einfaldlega vegna þess að tækin eru í flestum tilfellum staðsett í sérstöku telex herbergi, langtfrá þeim, sem fá og senda skilaboðin. Orsakir þess er aftur að leita til þess hávaða sem fylgir hefðbundnum telex tækjum og þess að þau krefjast oft sér- hæfðs ritara. Með því að skilaboð eru með- höndluð af starfsfólki sem hefur oft takmarkaðan skilning á inni- haldi þeirra, vilja verða tafir og villur, sem íbesta falli leiðatil reiði, í versta falli til glataðra tækifæra, en villur eru óhjákvæmilegar þeg- ar telex ritari endurritar vélritað — eða handskrifðað frumrit. Enn- fremur ná skilaboö, sem móttekin eru í telex herbergi einungis til viðtakenda, þegar einhver hefur tíma til að afhenda þau. Skrifborðstelex Hvernig má virkja nútíma tækni til þess að nýta betur kosti telex? Sendihraði verður ekki auðveld- lega aukinn, þar sem umfang kerfisins, sem sé kostir þess, virka hér sem ókostir. Samþykkja þarf allar breytingar vegna telex kerfis- ins um heim allan af CCITT (Comité Consultatif International Téléphonique et Télégraphique (nefnd skipuð af Sameinuöu Þjóð- unum)) og síðan tekur 4 ár að hrinda þeim í framkvæmd Betri nýting á kerfinu getur því einungis orðið hjá notanda sjálfum með því að bæta sjálfan tækja- búnaðinn t.d. nota telex skjái og breyta staðsetningu. Philips telur mesta þörf á því að flytja telex skjáina út úr telex her- berginu og setja þá inn ískrifstofur stjórnenda, eða einkaritara. Hröð, áreiðanleg samskipti fólks sem hefur beina hagsmuna að gæta, mun færa besta arðinn, og mun einnig spara kostnað við að hafa sérþjálfaöa telex ritara. Með því að 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.