Frjáls verslun - 01.01.1983, Síða 79
.<.<*«* «**$»
sé sem þægilegast. Loftræst-
ing þarf að vera góð, draga
þarf úr hávaða eins og kostur
er og æskilegt er aö gott sé að
þrífa bletti og önnur óhreinindi
af gólfinu. Gervigúmmídúkur-
inn er einna grófastur af þeim
efnum sem hér eru talin upp og
verður þar smekkur og aðrar
innréttingar í herberginu að
ráða um.
h) Anddyri:
Forstofur og anddyri eru oft
mikið vandamál. Þar breytir þó
miklu um hvort gengið er inn
beint af götunni eöa hvort
anddyrið er jafnvel upp á átt-
undu hæð eða svo. En jafnvel
svo hátt uppi geta borist ótrú-
leg óhreinindi ef engar sér-
stakar ráðstafanir eru gerðar á
leiðinni til að draga úr þeim.
Hér kemur svo til allt til greina,
en ef valin eru efni sem ekki er
hægt að skúra svo sem teppi
og kókós, er æskilegt að hafa
mottur eða dregla yfir þeim til
Kokosteppi falla vel að Ijósum lltum (efst). Stein- og keramikflísar passa vel í
anddyri, eldhús og snyrtherbergi. Þar sem mikið er gegnið er rétt að heillíma
teppið niður (t.h.)
að draga úr mestu óhreinind-
unum og áníðslunni. Mottur og
dreglar eru einnig mjög hentug
til að hlífa öðrum gólfefnum,
ekki síst svonefndar „skítmott-
ur“ sem draga í sig ótrúlegt
magn óhreininda í föstu og
fljótandi formi.
Við yfirlit á töflunni hér að
framan má sjá að teppi, PVC—
dúkar og korkur hafa hvaö al-
mennast notagildi í húsnæði
eins og því sem að framan er
lýst. Öll þessi efni eru þó mis-
jöfn mjög bæði að verði og
gæðum. Til dæmis getur teppi
verið bæði ódýrasti og dýrasti
kosturinn. Dúkarnir fást í
mörgum verðflokkum og kork-
inn má einnig fá á ýmsu verði.
En lítum ögn nánar á hin mis-
munandi gólfefni.
Teppi:
Um teppi má segja að þau
séu eins misjöfn og þau eru
mörg. Fyrst af öllu er vert að
hafa í huga hvar á að nota
teppið, hversu mikinn umgang
það þarf aö þola og ekki síst er
rétt að muna eftir þrifnaðar-
þættinum. Megnið af þeim
teppum sem hér eru á boðstól-
um er innflutt. Má geta þess að
innflutningur á teppum nemur
um eða yfir 60 prósentum af
heildarinnflutningi á gólfefnum
hér. Gefur það nokkuð glögga
mynd af hversu víötækt nota-
gildi þeirra er. En það má ekki
gleyma íslensku framleiðsl-
unni, Álafossullarteppunum,
sem fyrir löngu eru búin að
vinna sér virðingarsess hér á
markaði. Álafoss hefur nú í
vaxandi mæli farið út í að sér-
vefa teppi fyrir viðskiptavini
sína, til dæmis með sérþarfir
eins og litaval eða endingu í
huga. Um gæði teppa er það
að segja að þau eru talin þeim
79