Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 87

Frjáls verslun - 01.01.1983, Page 87
lýsingar og hafa líklega þegar* hugsað sig um. Láttu fundinn hefjast á tilsettum tíma, haltu þig við efnið og reyndu að komast að einhverri niðurstöðu um hvert ein- stakt atriði eða koma því þannig fyrir að einhver beri ábyrgð á framkvæmdum/aðgerðum. Láttu ekki fundinn dragast fram úr fyrir- fram ákveðnum tímamörkum. Til að gera fundi árangursríka er sennilega mikilvægast að lesa upp í lok fundarins ákvarðanir sem teknar voru og störf sem úthlutað var. Of oft enda fundir án þess að öllum sé Ijóst hvaða ákvarðanir voru teknar og hver beri ábyrgð á hverju. Eftir fundinn — helst samdæg- urs, skaltu senda minnismiða til fundarmanna sem staðfestir ákvarðanir og ábyrgð þeirra sem í hlut eiga, ásamt hugsanlegum tímatakmörkunum sem áfram- haldandi aðgerðir eru háðar. Gleymdu aldrei þessu atriði. Það fastbindur ákvarðanir og eykur ábyrgð. Einnig neyðir það þig til að horfast í augu við spurninguna um það hvort þú hafir náð markmiði þínu. En hvað um fundi sem einhver annar boðar til, t.d. yfirmaður þinn, þar sem hann sóar tíma allra með því að hundsa allar ráðleggingar sem hér hefur verið minnst á? Láttu ekki tímann fljúga frá þér án þess að gera eitthvað í málinu. Ef yfirmaður þinn undirbýr ekki fundi, skaltu segja honum að það væri góð hugmynd, ,,það myndi halda okkur við efnið.“ Ef fundirnir dragast langt fram úr áætlun, skaltu segja honum í einrúmi að gott ráð væri að hafa þá framvegis um hálf tólf eða um hálf fimmleytið, ,,til þess að koma í veg fyrir að hinir málglöðu gleymi sér.“ Ef yfir- maður þinn á bágt með að ákveða endanlega eitt atriði áður en ann- að er tekið fyrir, skaltu bjóðast til að skrifa fundargerð. Það gefur þér tækifæri til að trufla og segja t.d. „Andartak, hver var niður- staðan um þetta atriði? Ég vil vera viss um að fundargerðin sé rétt, áður en við tökum næsta mál fyr- ir.“ Sigurður rekur skíðaskóla í Bláfjöllum. Hér er hann á skíðum á heimaslóðum — Ísafirði. Á skíöum í íslenskri vorsól Þeir sem reynt hafa vita aö vart er til nokkuö dá- samlegra en að stunda skíði á íslandi seinni hluta vetrar þegar sól fer að hækka á lofti. Aðbúnaður og aðstaða hefur stórbatnað víðast hvar á landinu á undanförnum árum enda eru innlendar skíðaferðir að verða ný grein ferðaiðnaðar. Hér á eftir verður gerð nokkur grein fyrir aðstöðu á fimm helstu skíðamið- stöðvum á ísiandi: Reykjavík, ísafirði, Siglufirði, Akureyri og Húsavík. 87

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.