Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1983, Side 34

Frjáls verslun - 01.02.1983, Side 34
þjóðerni er að ræða, og fátt getur komið í stað þess að fulltrúar okk- ar hér fari utan og sjái með eigin augum hvernig að framleiðslunni er unnið. Þetta hefur haft í för með sér mikil ferðalög, og sjálfur hef ég komið til all flestra þeirra framleið- enda, sem við seljum frá, hvort heldur þeir eru í Evrópu, Asíu eða Ameríku. Þetta hafa oft verið mikil ferða- lög, og stundum hefur mérfundist, sem ég væri of mikið í burtu frá fyrirtækinu, en að öllu athuguðu tel ég þó, að þeim tíma og fjár- munum, sem í ferðalögin hafa farið, hafi verið vel varið." Mikil áhersla lögð á markaðsrannsóknir — Gerið þið nákvæmar mark- aðsrannsóknir hér á landi áður en þið setjið nýjar vörur á markað. Kannið þið til dæmis verð á sam- keppnisvörum, stærð markaðar- ins, gerið þið áætlanir um mark- aðshlutdeild og hversu miklu skal varið í auglýsingar og þess háttar. ,,Já, við leggjum mikla áherslu á markaðsrannsóknir, þær eru eitt af grundvallaratriðunum í mark- aðssetningu okkar, auglýsingum og síðar sölu. — Spurningin finnst mér hins vegar merkileg fyrir þá sök, að ég hef aldrei verið spurður spurningar sem þessarar áður, þótt oft hafi ég rætt við menn um starfsemi fyrirtækisins. Almennt séð, þá held ég að menn geri sér ekki grein fyrir mikilvægi þessara hluta, sem þú nefndir. Við gerum mjög nákvæma markaðsúttekt hér, áður en nokkrar ákvarðanir eru teknar um nýjar vörur eða söluherferð á þeim, sem fyrir eru. Yfirleitt eru þessar athuganir gerðar í sam- vinnu starfsmanna Þýsk-íslenska, og sérfræðinga á ýmsum sviðum, sem við ráðum sérstaklega til slíkra starfa. Við könnum stærð markaðarins hér, gæði þeirrar vöru sem á boðstólum er í saman- burði við okkar vöru, verð, hlut- deild ýmissra vörumerkja í mark- aðnum hér og erlendis, gerum auglýsingaáætlanir og svo fram- vegis. Um mikilvægi þessa þáttar í Sigurjón Einarsson forstöðumað- ur toll- og verðútreikningadeildar: „Hin síaukna pappírsvinna vegna opinberrar skattheimtu gerir vax- andi kröfur til nákvæmni, og hraðra og skipulegra vinnu- bragða.“ Guðmundur Þórðarson fjármála- stjóri: „Hér er tekist á við hin sí- gildu vandamál fyrirtækja af þessu tagi; Innheimtuerfiðleika og rekstrarfjárskort." Magnús Bjarnfreðsson kynn- ingarstjói. Hann leggur á ráðin um margháttaða kynningu, fræðslu og upplýsingavinnu þýsk—l's- lenska. rekstri fyrirtækisins þarf ekki að fjölyrða.“ — Hvað getur þú sagt um markaðshlutdeild ykkar á einstök- um vörum. Hvað er Grohe mikils ráðandi á markaði blöndunar- tækja til dæmis? ,,í Evrópu mun um 25% seldra blöndunartækja vera frá Grohe. Þetta hlutfall er að sjálfsögðu mun hærra í Þýskalandi og norður Evrópu, og hér á fslandi er hlut- fallið einnig talsvert hærra en einn fjórði. Grohe-blöndunartæki hafa náð gífurlegri útbreiðslu hin síðari ár, og þau má sjá í öllum heims- hornum. í Sovétríkjunum voru til dæmis sett upp Grohe-tæki í byggingar sem reistar voru vegna Olympíuleikanna þar, og hið sama gildir um nýju flugstöðina í Moskvu, sem nýlega var tekin í notkun.“ — Og þið auglýsið mikið, er það ekki einn þátturinn í vel- gengninni? „Vissulega auglýsum við mikið, og útilokað er að ná umtalsverðum tökum á markaðnum án auglýs- inga. Við höfum hins vegar haft þann hátt á að við komum vörum á markað áður en auglýsingar hefj- ast, við þreifum fyrir okkur á markaðnum áður en við hellum okkur út í miklar auglýsingar. Fyrst þegar varan er tekin að seljast, tekin að skapa sér nafn, þá fylgjum við henni eftir með auglýsingum. Við höfum því ekki lent í því að auglýsa upp vonlausar vörur, ég held að segja megi að arðsemi auglýsinga okkar hafi undantekn- ingalítið verið mjög góð. — Oft stafar þetta af því, sem ég var að segja hér fyrr, að merki þau sem við bjóðum eru löngu kunn áður en þau eru boðin til sölu hér. Bæði þekkir fólk þau af umtali og af lestri erlendra blaða, og svo hafa margir íslendingar kynnst þeim erlendis. — Þetta síðast nefnda á til dæmis við um Marabou-súkkulaðið frá Sviþjóð. Mjög margir þekkja það þaðan, og það byrjaði þegar að seljast eftir að við fluttum það hingað inn. Auglýsingunum var síðan ætlað það hlutverk að fylgja þessari fyrstu sölu eftir. Svipaða sögu má segja um 34

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.