Frjáls verslun - 01.05.1984, Blaðsíða 47
um tekjumissi af þessum sökum.
Sem fyrr segir mun flutninga-
getan samtals aukast um 3,5
milljónir TEU eöa um 40% á
árunum 1984—1986. Eftirspurn
eftir flutningum mun ekki aukast
til jafns við þetta, meö öðrum orð-
um, nýting skipanna mun minnka
a.m.k. þar til óhagkvæmustu
skipin falla út.
Staöreyndin er sú aö áöur en
þessi mikla aukning á flutnings-
getu á sér staö er talið aö flutn-
ingsgjöld á þessum siglingaleið-
um hafi lækkaö aö raunvirði
stööugt siöan 1979. Flutnings-
gjöldin hækkuðu ekki fyrr en á
allra siðustu mánuöum og höföu
skipafélögin vonast eftir bættri
afkomu og auknum hagnaöi á
næstu mánuðum og árum. Þess-
ar vonir eru nú í þann veginn aö
þreytast í martröð hjá mörgum
skipafélaganna.
Þannig mun ennfrekari lækkun
flutningsgjald hafa veruleg áhrif
og þvi næst knésetja hinn verst-
settu skipafélög.
Hin nýju skip sem eru aö koma
á markaðinn eru flest s.k. deep-
sea ro-ro skip sem taka milli
2000—3000 gáma, þau eru meö
stórum innkeyrsluramp á skut
sem hægt er aö sveigja til hliöar.
Skip þessi eru mjög fjölhæf og
taka gáma á þilfar og i lestar en
umramp skipanna sem tekur allt
aö 400 tonna þunga er ekiö inn í
skipiö nær hvers kyns varningi
vinnuvélum, þungastykkjum, bil-
um, timburvörum o.þ.h. Barber
Blue Sea skipin sem eru 9 talsins
og ACL skipin sem eru alls 5 auk
pólsku skipanna eru öll aö þess-
ari tegund. Evergreen skipin sem
Nýjar aðferðir viö losun og lestun
eru alls 24 og US-Lines alls 12
eru hins vegar venjuleg gáma-
flutningaskip. US-Lines skipin
hafa þá sérstööu aö þau eru
stærstu gámaskip i heiminum
meö flutningagetu alls yfir 4000
gáma. (TEU) Þessi skip eru ekki
eins fjölhæf og ro-ro skipin en eru
ódýrari i smiðum. Hvert þessara
skipa kostar á bilinu 40—70
milljónir dollara og er heildarfjár-
festing i skipum hjá ofangreind-
um skipafélögum á bilinu 4—5
milljaröar dollara. Mjög athyglis-
vert er aö fylgjast með þessum
miklu breytingum sem framund-
an eru og þau áhrif sem þessi
aukna samkeppni kemur til meö
aö hafa á siglingarnar, mun senn
koma i Ijós.
Heimildir Cargo Systems
Coutaineisation Internatinoal
SEATRADE. ofl.
47