Frjáls verslun - 01.05.1987, Síða 7
Frjáls
verslun
itstjórnargrein
Erfið verkefni fyrir
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
nýja ríkisstjórn
RITSTJÓRIOG
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Kjartan Stefánsson
LJÓSMYNDIR:
Grímur Bjarnason
Gunnar Gunnarsson
Kristján Einarsson
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÚTGEFANDI:
Frjálstframtakhf.
Tímaritið er gefið út í samvinnu
við samtök í verslun og viðskiptum
SKRIFSTOFA OG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, sími 82300
Auglýsingasími 31661
RITSTJÓRN:
Bíldshöfði 18, sími 685380
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðvíksson
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ:
1155 kr. 4 blöð
(eintak í áskrift 288,75 kr.)
LAUSASÖLUVERÐ:
297 kr.
SETNING, PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
og myndir.
Ríkisstjóm Þorsteins Pálssonar hefur ekki fengið gott brautargengi
þótt flokkarnir sem að henni standa styðjist við mikinn meirihluta þjóð-
arinnar. Er það fátítt að ríkisstjóm mæti slíku mótlæti eða tómlæti á
fyrstu vikum og mánuðum sem hún starfar. Það er auðvitað of snemmt
að spá um hvernig þessi ríkisstjórn muni reynast. Fyrstu aðgerðir,
skattahækkanirnar og hvernig þeim er hagað, lofa ekki góðu. A hitt ber
þó að líta að vandinn sem við blasir er mikill og það hefði komið fólki og
fyrirtækjum ver ef ekkert hefði verið að gert.
Það er ekki í fyrsta sinn á íslandi sem góðæri er vandamál. Sveiflurnar
í íslensku efnahagslífi hvort sem þær eru upp eða niður hafa alltaf haft
verðbólguhættu í för með sér. Að þessu sinni er það þenslan sem leitt
hefur til umframeftirspurnar með tilheyrandi launaskriði sem velt hefur
verið út í verðlagið. Þetta rýrir kjör þeirra sem ekki hafa notið launa-
skriðsins. Hefðbundin leið í þessari stöðu er vísitölubætur á laun ekki
aðeins til þeirra sem ekki höfðu notið launaskriðsins heldur til allra. Þar
með er víxlhækkun kaupgjalds og verðlags komin af stað en hún getur
haldið verðbólgunni gangandi árum og áratugum saman. Síðustu ár
hefur verið víðtækt samkomulag um að rjúfa þetta víxlgengi. Þótt verka-
lýðsleiðtogar vilji að vonum ekki þjóðarsátt um misræmi í launamálum
og óstjórn í peningamálum er mikilvægt að menn hrekist ekki inn í
gamla verðbólgufarið.
í batnandi árferði eykst framkvæmdagleði og menn vilja einnig njóta
aukinna tekna í meiri neyslu. Það er samt vandratað meðalhófið. Aðeins
á fyrstu sex mánuðum ársins hefur erlend lántaka ríkissjóðs aukist að
raunvirði um 1.8 milljarða. Rikisfjármálin eru öflugt hagstjómartæki.
Þeim má beita til þess að jafna sveiflur í þjóðarbúskapnum; örva eftir-
purn á samdráttarárum en beita ströngu aðhaldi þegar peningavelta er
mikil í þjóðfélaginu. Þessu hefur verið öfugt farið hér. Hallarekstur rík-
issjóðs hefur aukið á þensluna í þjóðfélaginu. Þarna hafa stjórnvöld
brugðist hlutverki sínu.
Allir eru sammála um nauðsyn þess að reka ríkissjóð án halla. Best
hefði verið að draga úr ríkisútgjöldum til þess að ná jöfnuði. Þrátt fyrir
fögur orð og góðan ásetning stjómmálamanna hefur ekki tekist að halda
ríkisútgjöldum í skefjum hingað til og það verður ekki auðveldara hér
eftir. Það er því ærið verk að glíma við þann halla sem nú þegar er búið
að stofna til að ekki sé talað um þá raun að verjast þrýstingi um enn
aukin útgjöldum. Þetta verður prófsteinn á styrk ríkisstjómarinnar. Þótt
lag komist á ríkisfjármálin em ýmsar blikur á lofti varðandi þróun verð-
bólgunnar og búast má við því að næstu ár verði átakatími í þjóðfélaginu
ekki síst vegna þess misræmis sem komið er í launamálum.
Fleiri spjót standa á ríkisstjóminni en hallarekstur ríkissjóðs og vax-
andi verðbólga. Neytendur í þéttbýli una illa þeirri Iandbúnaðarstefnu
sem rekin er í krafti fámennra en óbilgjarnra hagsmunahópa. Þessi
stefna hefur leitt til þess að verðlag er hátt á landbúnaðarvörum, fram-
leiðendum utan hefðbundinna búgreina er mismunað og takmarkanir á
verslun með nýtt grænmeti jafnt innlent sem innflutt eru þannig að ekki
verður við unað. Neytendur eru smám saman að verða meira meðvitaðir
um þetta ófremdarástand og kröfur um úrbætur verða sterkari. Þetta er
kannski ekki eitt af stóru málunum en á erfiðum tímum er gott að hafa
fjöldann með sér þó í smáu sé.
7