Frjáls verslun - 01.05.1987, Qupperneq 24
ItjSvo viröist sem íslendingar ætii aö fara
varhluta af þessari þróuöu grein tölvutækn-
innar sem blómstraö hefur annars staöar
í Vestur- Evrópu undanfarinn áratug og leitt til
verulegrar framleiöniaukningar í verslun”
áfastri peningaskúffu eða ekki. Af
þeim skal því greiða 35% toll, 24%
vörugjald (á innkaupsverð, flutnings-
gjald, tryggingariðgjald og toll) 1%
tollafgreiðslugjald og 25% söluskatt.
Enginn greinarmunur er gerður í
tolli á svonefndum „POS-Terminals“
(POS = Point of Sale) sem kalla
mætti afgreiðslutölvur og s.n. ECR
(Electronic Cash Register) þ.e. raf-
eindabúðarkössum þótt afgreiðslu-
tölvurnar séu með forritanlegu
minni og auk þess með forritanlegri
úrvinnslu. Á þessum tækjum er
enn frekari eðlismunur þótt „sér-
fróða“ ráðgjafa tolladeildar Fjár-
málaráðuneytis hafi brostið þekk-
ingu til að láta til skarar skríða: Af-
greiðslutölva (POS) er búin hraðvals-
hnöppum til hraðvirkrar skráningar
afgreiðslna. Hún verður að fylgja
sama hnappastaðli og búðarkassar
til þess að tryggja sem mest afköst
og minnstar tafir. Að öðru leyti er
varla um samanburð við búðarkassa
að ræða.
Afgreiðslutölvan byggir á vélar-
málsforritun með mjög ófullkominni
skel þ.e. Macro Assembler-máli (ekki
ósvipað þeirri makró-forritun eða
fjölvum sem nú tíðkast með alls kon-
ar viðskiptahugbúnaði). Minni er
tvenns konar, annars vegar forritun-
arminni en hins vegar tiltölulega
stóru geymsluminni.
Ástæðan fyrir tvískiptu minni er
sú að nauðsynlegt er að vernda öll
skráð gögn verslunar þótt straumur
fari af húsi og aukið öryggi fæst með
því að nota orkuvægari minni
(CMOS) og vernda þau með tvenns
konar rafhlöðum. Forritunarminni er
fljótlegt að afrita með þar til gerðu
segulbandi og getur því forritari átt
afrit af þeim til endurinnsetningar ef
eitthvað færi úrskeiðis. Gagnaminn-
ið er hins vegar í sífelldri endumýjun
og erfiðara að afrita nægilega títt til
að gagni komi. Það er því varið með
mjög öflugum rafhlöðum sem gera
jafnframt kleift að nota afgreiðslu-
tölvuna þótt straumrof hafi orðið.
Þessar rafhlöður endurhleður tölvan
sjálfkrafa þegar straumur er aftur
kominn á.
Forritunin er tvenns konar, forrit-
un innsláttarhnappa (skel) og skrán-
ing og úrvinnsla. Núorðið er hægt að
forrita afgreiðslutölvur á Basic t.d.
með tilkomu nýrra stýrikerfa sem
gera kleift að nota t.d. AT- tölvu sem
aðgengil (interface). Hér má til gam-
ans skjóta því inn að stýrikerfið
Concurrent PC-DOS sem IBM býður
með nýju afgreisðlukerfi (IBM 4680)
og gerir kleift að forrita afgreiðslu-
tölvur á Basic með AT vél er gamall
kunningi frá Digital Research og
nefnist CP/M86 áður en því var
breytt og samræmt PC-DOS. Af-
greiðslutölvur geta tengst í neti með
til þess gerðum samskiptabúnaði
(kort) og sameinast margar um eina
móðurstöð sem geymir allt gagna-
kerfið og upplýsingar svo sem um
birgðir, pantanir, verð og stöðu við-
skiptamanna. Frá móðurstöðinni er
hægt að gera upp allar afgreiðslu-
tölvur netsins í lok dags eða hvenær
sem er. Um sérstakan færslubúnað
(forrit, þýðandi og samskiptakort)
má síðan yfirfæra skráningar úr
minni móðurstöðvar til bókhalds-
tölvu fyrirtækis. Sjálfvirkur aflestur
verðs með strikamerkjum (Bar Code
Scanner) sem jafnframt er sjálfvirk
skráning sölu- og birgðahreyfingar
og fer fram með jaðartæki af-
greiðslutölvunnar og hugbúnaði
hennar.
Afgreiðslutölvur (t.d. frá Data
Terminal Systems) eru t.d. fyrstu
míkrótölvumar sem fáanlegar voru
með öflugum gagnagrunni sem hluta
af aðalforriti. Þessi gagnagrunnur er
t.d. með sérstöku fyrirspumarkerfi
t.d. til að gefa upplýsingar um verð
(PLU), stöðu viðskiptamanna, um há-
mark uppsafnaðrar úttektar o.fl. Af-
greiðslutölvur vom einnig fyrstar
allra míkrótölva með þróað netkerfi
og samskiptabúnað (t.d. ANS-R-
TRAN) sem gerir þeim kleift að
skiptast á gögnum við bókhaldstölv-
ur fyrirtækja (megin,mið-, eða míkró-
tölvur). Notkun skanna til aflesturs
i
\m
ram
IBM 4680 afgreiðslukerfiö er á vissan hátt afturhvarf til kerfa sem krefjast
mikils vélbúnaðar. Data Terminal Systems hafði markað aðra stefnu, ein-
faldara kerfi sem virtist ætla aö veröa ofaná.
24