Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 25
virkri tengingu við móðurtölvu og
við þær tengdir venjulegir skjala-
prentarar. Stanslaus biðröð er á
annatímum við þessi tæki þar sem
slá verður inn 5 stafa vörunúmer,
strikamerkinga, ljósstafalesara til
aflesturs á segulrönd krítar og/eða
einkenniskorta hafði verið í notkun
við afgreiðslutölvur árum saman um
allan heim áður en farið var að ræða
um slíka tækni í sambandi við PC-
tölvur.
Svo virðist sem Islendingar ætli
að fara varhluta af þessari þróuðu
grein tölvutækninnar sem blómstrað
hefur annars staðar í V-Evrópu und-
anfarinn áratug og leitt til verulegrar
framleiðniaukningar í verslun. Skýr-
ingin er sennilega að hluta til röng
og vanhugsuð skattlagning í mynd
aðflutningsgjalda þótt mann gruni
að tölvur sem líta út eins og búðar-
kassar þyki ekki nógu fínar þótt full-
komnar séu. Einstaka verslanir hér-
lendis hafa þó ekki sett fyrir sig þess-
ar hindranir, meðal þeirra er Hag-
kaup og Fríhöfnin á Keflavíkurflug-
velli.
Vegna óeðlilega hárra aðflutnings-
gjalda og söluskatts á þessum nauð-
synlegu og sérhönnuðu tölvutækjum
fyrir verslunar-, þjónustu, og veit-
ingarekstur verðum við vitni að svo
makalausum hallærislausnum í sum-
um verslunum að engu tali tekur. í
einni af byggingavöruverslunum
Samvinnuhreyfingarinnar í stórum
kaupstað á Suðvesturhominu er eitt
magnaðasta tafakerfi sem ég hef séð.
Þar em venjulegar tölvustöðvar
(innskriftarborð) notaðar sem af-
greiðslutæki. Stöðvarnar em í gagn-
Strikamerking (Bar Code) á vörum gerir kleift aö láta „rafeindaauga” lesa
vörunúmer sem táknaö er meö misbreiðum strikum og Ijósletri. í minni
tölvunnar er ákveöið verð tengt vörunúmeri og þaö kallaö upp um leið og
merkinu er brugðið yfir lesara.
Ýmsar leiðir hafa verið farnar til þess að reyna að leysa sérþarfir verslunar-
innar með venjulegum innskriftarboröum eöa einkatölvum. í fæstum tilfell-
um anna þau kerfi því álagi sem fylgir verslun og veitingasölu.
vöruheiti, fjölda og greiðslutilhögun
og bíða svo eftir að prentarinn hakki
út stór reikningseyðublöð. Þetta er
tiltölulega fljótlegt þegar keyptur er
einn vírlás fyrir 7 kr. og mætti nota
nótuna sem umbúðapappír. Þegar
iðnaðarmenn kaupa inn eftir löngum
listum myndast óþolandi biðraðir á
meðan stúlkurnar eru að leita upp-
lýsinga um vöruna og verð, slá inn
hverja vöru, línu fyrir línu og bíða
síðan eftir að reikningurinn prentist
út.
Þessi byggingavöruverslun er ekki
einsdæmi þótt skiljanlega hafi fáar
verslanir séð sér hag í að tölvuvæða
afgreiðsluna á þennan hátt enda eru
tölvurnar beinlínis til trafala í kerf-
um sem þessum. Eflaust er þetta
ástand afleiðing skilningsleysis og
þröngsýni þeirra aðila í opinbera
kerfinu sem eiga að endurskoða
tollskrána, eða þá vanhæfni þeirra
ráðgjafa sem þeir hafa sér til aðstoð-
ar. Afgreiðslutölvur, (POS-terminals)
eru einu tækin sem geta tryggt full-
komna tölvuskráningu án þess að
25