Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 26
IjjÓhætt er að fullyrða að öll fullkomnustu
sérhæfð tölvutæki til veitinga- og hótelrekstrar
falli undir skilgreiningu fjármálaráðuneytisins
á þvíhvað sé búðarkassien ekki tölva-
Þetta er dulbúin skattlagning á framieiðni
ogþvívont mál fyrir alla.99
tefja afgreiðsluna. Þessi tæki ásamt
þeim vandaða íslenska hugbúnaði
sem nú erá boðstólum fyrir verslanir
gætu leitt til verulega aukinnar
hagkvæmni í verslun og lægra vöru-
verðs um leið-, ef misræmi varðandi
aðflutningsgjöld væri leiðrétt. Þá
myndu t.d þeir aðilar sem þróa og
selja hugbúnað sjá ástæðu til þess að
kynna sér þessi kerfi sérstaklega og
sérþjálfa fólk til að þjónusta þau af
nægilegri kunnáttu.
Víða erlendis eru þau fyrirtæki
sem hafa sérhæft sig í sölu af-
greiðslutölva og þjónustu bæði
þróttmikil og vaxandi. Hérlendis er
þetta dauð grein tölvuviðskiptanna.
Öruggari skráning —
f undið f é
„Point of Sale Terminal" er eins
og mörg snjöll ensk orð nákvæmt og
gagnsætt. Þessi tæki gera kleift að
nota það uppgjör sem fram fer við af-
greiðslu vara samtímis til gagna-
skráningar, milliliðalaust og án tví-
verknaðar. Það þarf tæplega sér-
staka könnun til að leiða í ljós að
þegar sölu- og birgðaskráning fer
fram með síðari innslætti af hand-
skrifuðum nótum er hætta á villum
og klúðri ávallt fyrir hendi. Nútíma
fyrirtæki hafa ekki ráð á slíkum los-
arahætti. En það er ekki aðeins auk-
ið öryggi skráningarinnar sem næst
með afgreiðslutölvum. Ekki má
gleyma því að á markaðinum eru
mjög þróuð afgreiðsluforrit fyrir
þessi tæki sem gefa þýðingarmiklar
upplýsingar til nota við rekstrar-
'stjóm.
Hér verða nefnd dæmi um hvað
það er sem afgreiðslutölva gerir með
venjulegu forriti. Auk þess að gera
upp sölu hvers dags, færa birgða-
stöðu jafnóðum, lista út vörur sem
komnar em á pöntunarstig getur af-
greiðslutölva gefið eftirfarandi upp-
lýsingar fyrir rekstrarstjórn: -
Yfirlit yfir afgreiðsluálag á mismun-
andi tíma dags.-
f Bretlandi (”A Nation of Shop-
keepers”) eru seldar afgreiðslutölv-
ur sem hérlendis eru náanst óþekkt-
ar en þær eru af tegundinni TFB
RAIR.
Sundurliðað söluafköst einstakra
starfsmanna.-
Sundurliðað sölu eftir vörudeildum-.
Haldið skrá yfir vöruúttektir starfs-
manna-.
Skráð afgreiðsluferli hvers dags svo
sem hve oft er selt, hve oft er
greitt úr kassa, opnuð peninga-
skúffa án sölu o.s.fr. -
Sundurliðað greiðsluform (peningar,
ávísanir, greiðslukort, skrifað). -
Reiknað sjálfkrafa veltuhraða ein-
stakra vöruflokka-.
Reiknað sjálfkrafa veltu á klst., fer-
metra, starfsmann o.s.fr-.
Listað birgðabreytingar í lok dags-.
Skráð sérstaklega öll reikningsvið-
skipti og stöðu viðskiptamanna-.
Haldið aðskildu uppgjöri vara með
sérkjömm eða sértilboði-.
Skráð fjölda og tíma uppgjörs og
leiðréttinga yfir daginn.
Þetta er aðeins brot af þeim mögu-
leikum sem bjóðast með þessum
tækjum sem versluninni er ekki gert
kleift að kaupa enn sem komið er.
Og þá hef ég ekkert fjallað um þá
stórkostlegu möguleika sem af-
greiðslutölvur geta skapað í veit-
inga-og hótelrekstri en sennilega er
engin önnur atvinnugrein hérlendis
sem gæti aukið framleiðni sína jafn
mikið með þessum tækjum sem
iðulega er ruglað saman við búðar-
kassa. Jafnframt er óhætt að full-
yrða að öll fullkomnustu sérhæfð
tölvutæki til veitinga- og hótelrekst-
urs falla undir skilgreiningu Fjár-
málaráðuneytisins á því hvað sé
búðarkassi en ekki tölva. Þetta er
dulbúin skattlagning á framleiðni
og því vont mál fyrir alla aðila.
26