Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 33
Iltaf byrjað smátt“
„Ég var 15 til 16 ára þegar BYKO
var stofnað og man því vel eftir und-
irbúningnum. Reyndar var ég í sveit
þegar verslunin var opnuð en við
systkinin tókum þátt í þessu frá byrj-
un. Faðir minn kom undir sig fótun-
um með garðrækt, sem hann stund-
aði fyrir utan fasta vinnu, og hjálpuð-
um við krakkarnir til“, sagði Jón
Helgi þegar minnst var á upphafsár-
in.
— Nú byrjaði BYKO í litlum skúr.
Renndi ykkur í grun að BYKO yrði
stærsta byggingavöruverslun lands-
ins eftir 25 ár?
„Ég held að menn hafi ekki verið
með neinar væntingar í þeim efn-
um“, sagði Jón Helgi. „Þetta var
smátt í sniðum í fyrstu en vöxturinn
hefur komið jafnt og þétt. Ég held að
menn hafi ekki verið með neinar
áætlanir aðrar en þær að gera eins
vel og hægt var enda er fáum gefið
að skyggnast inn í framtíðina. Þeg-
ar við lítum til baka sjáum við
hins vegar að það er margt sem hef-
ur stuðlað að velgengni fyrirtækis-
ins. BYKO var stofnað rétt eftir lok
haftatímabilsins þegar frjálsræði í
innflutningi opnaði verslun í land-
inu ný tækifæri. Jafnframt var mik-
ið byggt á þessum árum þannig að
við komum inn á markað sem var í
vexti. Verslun BYKO var einnig
nýjung á þessum tíma en þá þekkt-
ust ekki alhliða byggingavöru-
verslanir þar sem allt til byggingar-
innar fæst á einum stað bæði stórt
og smátt. Það sýndi sig að þörf var
á þessari nýjung. BYKO var vel í
sveit sett, lá í þjóðbraut við gamla
Hafnarfjarðarveginn. Síðast en ekki
síst var BYKO mjög heppið með
starfsfólk og stofnendurnir héldu
mjög vel utan um reksturinn og
lögðu sig í framkróka til þess að
standa við allar skuldbindingar. í
hnotskurn má segja að þarna hafi
verið réttir menn á réttum stað á
réttum tíma.“
Ekki djarfir
— Þegar BYKO var stofnað voru
grónar byggingavöruverslanir fyrir á
markaðnum. BYKO hefur nú skotið
þeim aftur fyrir sig. Jón Helgi var
spurður hvort þessi gömlu og grónu
fyrirtæki hafi verið sofandi á verð-
inum.
„í byrjun vorum við ekki ógnun
við þá sem fyrir voru. Markaðurinn
var að stækka og við tókum ekki
viðskipti frá öðrum. Ég get ekki lagt
dóm á frammistöðu annarra en það
er vitað að flest öll fyrirtæki fara eftir
ákveðnu ferli, það er bara spurning
um tíma. í fyrstu byrja menn smátt,
síðan kemur uppgangs- og blóma-
imkvæmdastjóri BYKO en fyrirtækið hefur á 25 árum
a byggingavöruverslun landsins
skeið og loks hnignun. Það er rétt að
við höfum verið í uppgangi undan-
farin ár og við vitum í sjálfu sér ekki
hvenær við höfum náð okkar besta.
Vafalaust á það fyrir okkur að liggja
eins og öðrum að reksturinn dregst
einhvern tímann saman. Markmið
okkar er að ýta þeim vatasomu
tímamótum sem allra lengst inn í
framtíðina.”
Eftir að BYKO var stofnað var Jón
Helgi viðloðandi verslunina á sumrin
og með námi á veturna. Hann sagði
að hann hefði haft hug á
því að vinna hjá fyrirtækinu að námi
loknu og var viðskiptafræðin meðal
annars valin með tilliti til þess. Strax
að loknu prófi 1972 varð Jón Helgi
framkvæmdastjóri hjá BYKO 24 ára
að aldri. Megin verksvið hans var
umsjón með timbursölu auk þess
sem ýmis önnur málefni fyrirtækins
voru á hans könnu.
BYKO menn hafa byrjað smátt í öllu því sem þeir hafa tekiö sér fyrir hendur
en mjór er til mikils vísir. BYKO á hlut í laxeldisfyrirtæki, Haflax og til að
byrja með var komiö fyrir einni girðingu fyrir kvíaeldi.
33