Frjáls verslun - 01.05.1987, Page 35
Tveir af helstu stjórnendum og eigendum BYKO, nafnarnir Jón Helgi og Jón Þór Hjaltason bera saman bækur
sinar.
„Mér finnst hugtök í sambandi við
stjórnun svolítið á reiki hér á landi
og reyndar erlendis líka. Stjórnendur
hér á landi eru ýmist titlaðir fram-
kvæmdastjórar eða forstjórar. Hér
hjá BYKO erum við með fram-
kvæmdastjóra yfir ákveðnum svið-
um og aðalframkvæmdastjóra fyrir
fyrirtækið. Með þessari orðanotkun
er ég að leggja áherslu á að ég er
einn úr hópi hinna framkvæmda-
stjóranna, kannski fremstur meðal
jafningja, en umfram allt einn úr
hópnum. Ef ég hefði notað forstjóra-
titilinn fannst mér ég vera að upp-
hefja sjálfan mig.“
Hef engan stíl
— Menn rækja stjórnunarhlut-
verk sitt á margvíslegan hátt.
Einhver sérstök aðferð sem þú að-
hyllist?
„Það er þá helst að vera stíllaus.
Ég er búinn að lesa allar þessar bók-
menntir um stjórnun og niðurstaðan
er ef til vill sú að það sé ekki til neinn
stíll. Starfsfólk hér vinnur ákaflega
vel að sameiginlegum markmiðum
og finnur sig vel í því sem það er að
gera. Ég hef reynt að hafa það
þannig að fólk geti sýnt það frum-
kvæði sem það vill hafa. Ég held að
það sé mikilvægt að stjórnendur séu
markmiðum fyrirtækisins trúir og
sýni að þeir hlífi sér ekki sjálfir.
Þannig smita þeir út frá sér og aðrir
eiga auðveldara með að fylgja þeim.
Hins vegar er það ljóst að í fyrirtæki
eins og BYKO sem hefur verið í
miklum vexti hefur margt mátt betur
fara.“
— I hvað fer mestur tími þinn?
„Stundum er ég að spyrja mig að
þessu sama og það verður ekki alltaf
mikið um svör. Ég skipulegg tíma
minn ekki út í ystu æsar enda er stór
hluti af mínu starfi að vera til staðar.
Margir leita til mín og ég er með í
ráðum um lausn ýmissa vandamála.
Þá hef ég innkaupin á timbri
áfram á minni hendi. Ég geri það
bæði til þess að vera í betri snertingu
við markaðinn og hins að ég hef haft
mest gaman að því að vera í timbur-
sölunni.
Loks hafa ýmis framtíðarverkefni
verið tímafrek svo sem uppbygging-
in á Skemmuveginum en þar er verið
að stækka tréiðnaðardeildina með
byggingu 3 þúsund fermetra hús-
næðis. Einnig erum við að opna nýja
verslun í Kringlunni."
— Þegar stórar ákvarðanir
standa fyrir dyrum. Hvernig berðu
þig að?
„Við reynum yfirleitt að gefa okk-
ur eins mikinn tíma og hægt er áður
en við tökum ákvarðanir sem reynst
geta afdrifaríkar. Við reynum að leita
eins mikilla upplýsinga og hægt er
og ræða við sem flesta. Oftast er það
svo að maður fær mestan stuðning
frá mönnum innan fyrirtækisins. Á
endanum stendur maður sjaldnast
frammi fyrir því að velja á milli
tveggja ólíkra kosta. Við erum á
ákveðinni braut og ef við gefum
okkur tíma getur við fetað okkur
farsællega áfram. Þetta er meira
spurning um hliðarslóðir.”
35