Frjáls verslun - 01.05.1987, Blaðsíða 45
Jónas Ragnarsson kaupmaður íNonna & Bubba:
Keypti þegar flestir spáðu
hruni ísmásöluversluninni
JÓNAS RAGNARSSON
er kaupmaður í Keflavík
hann er þriðji elstur
bræðranna átta, 35 ára að
aldri. Við hittum hann fyr-
ir á heimili hans í Keflavík
einn laugardagseftirmið-
dag fyrir skömmu og báð-
um hann að segja okkur af
sjálfum sér í stuttu máli.
„Ég fór ungur út á vinnumarkað-
inn, kláraði ekki skólann og fór að
vinna hjá Landssímanum 14 eða 15
ára gamall. Það þótti nú víst mörgum
ekkert góð latína þá, en við fórum
snemma að heiman strákarnir og
gátum vel staðið á eigin fótum, vor-
um vel undir það búnir.
f ÚTGERÐ 17ÁRA, -
HÚ S ASMÍÐAR 19 ÁRA
Seinna fór ég á snurrvoð og svo
fór ég að læra húsasmíði og var víst
baldinn nemi skilst mér. Sjórinn átti
ekki allskostar við mig, en ég eignað-
ist góða vini og félaga til sjós.
Sautján ára fór ég út í trilluútgerð
ásamt Þorsteini Sigurðssyni, sem er
æskufélagi minn og mikill vinur, raf-
virkjameistari í dag. Við gerðum út
frá Höfnunum, — þetta gekk nú
svona upp og niður eins og gengur",
segir Jónas og hlær við þessari end-
urminningu, sem er nánast bernsku-
minning, en óneitanlega hafa þeir út-
gerðarmennimir verið í hópi þeirra
yngstu í þeirri stétt.
Húsamíðanáminu lauk Jónas, en
var í miðju námi farinn að vinna sem
verktaki, sem var látið gott heita á
þeim árum, enda þenslan mikil í
byggingabransanum um þetta leyti.
Nítján ára gamall var Jónas kominn
með verkstæði ásamt Hannesi bróð-
ur sínum í skúr sem þeir fengu til
umráða. Byggingamennskunni héldu
þeir áfram árum saman. Á tímabili
kynntist Jónas starfi lögreglumanns-
ins, en það starf hentaði honum eng-
an veginn, sagði hann.
„Það var erfitt að vera í smíðinni
og ekki heillavænlegt til frambúðar
að mínum dómi, allt of mikið um
brjálæðisleg undirboð. Ég ákvað
1979 að reyna fyrir mér í verslun,
sem ég hafði nú ekki komið nálægt
fram að þeim tíma. Ég stofnaði gjafa-
vöruverslunina Róm, litla búð, sem
ég rak síðan í tvö ár. Hannes fór síð-
ar yfir í fasteignasölu hérna í bæn-
um. Þetta var mikið stökk fyrir okk-
ur báða, en fór kannski betur en
margir spáðu“.
KAUPMENNIRNIR
SELDU REKSTURINN,
OG GERÐUST
LAUNÞEGAR!
Það var svo árið 1981 að Jónas
frétti að Verslunin Nonni & Bubbi
væri til sölu. Þetta var virt verslun,
sem þeir kaupmennirnir Jón Axels-
son og Þorbjöm Einarsson höfðu
stofnað lýðveldisárið 1944. Verslun-
in hafði á tíma verið með 6 sölubúðir,
fjórar í Keflavík, eina í Sandgerði og
eina í Garði. Nú vildu þeir félagar
eiga rólegri daga og áhyggjulausari
en þá sem kaupmenn almennt eiga.
Jónas gekk til samninga við þá
félaga, og eftir 3 mánuði var kaup-
samningurinn undirritaður. Um
þetta sama leyti var það á allra vit-
orði að Kaupfélag Suðumesja væri
með stór plön um meiriháttar mark-
aðsverslun í Njarðvík, Samkaup. Þá
þóttu það ekki minni tíðindi að Hag-
kaup ætluðu að byggja veglega yfir
stafsemi sína í Njarðvík. Þótti mönn-
um þá að kaupmaðurinn á horninu
ætti ekki glæsta framtíð á Suður-
nesjum, markaðimir mundu gleypa
allt með húð og hári. En Jónas hlust-
aði lítið á efasemdarmennina, en tók
til að versla að Hringbraut 92.
„Yfirleitt hafa menn orðið að láta í
Jónas Ragnarsson kaupmaður.
45