Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 46

Frjáls verslun - 01.05.1987, Side 46
minni pokann fyrir þessum risum í smásöluversluninni, Hagkaup og kaupfélögunum. En ég var þarna að taka við verslun sem hafði geysigott orð á sér. Og mitt stóra lán var það að þeir Nonni og Bubbi vildu starfa áfram við fyrirtækið og gera enn þann dag í dag. Ég stóð því föstum fótum í ein- hverri allra mestu samkeppni, sem til er í smásöluversluninni á íslandi. Þessi samkeppni var satt að segja eitilhörð og er enn. En með því að bjóða upp á góða þjónustu og góða vöru, tókst okkur að halda velli og vel það. Verslunin Nonni & Bubbi er með mjög umtalsverðan hluta af matvörudreifingunni á Suðurnesjum í dag“. Engu að síður er það staðreynd að með tilkomu nýrra stórverslana varð hrun í smásöluverslun á Suðurnesj- um á árunum 1984 og 1985 og hver búðin af annarri hefur orðið að hætta starfsemi, ekki síst matvörubúðirnar, fimm eða sex hættu rekstri, en Jónas hélt sínu og vel það, því veltuaukn- ing hefur orðið mikil á hverju ári. AÐ FJÁRFESTA í SJÁLFUM SÉR Jónas Ragnarsson er greinilega félagslyndur maður. Hann tók sér fljótlega stöðu innan Kaupmanna- samtaka íslands og gerðist einn stofnenda K-samtakanna, sem hafa reynst fjölmörgum matvörukaup- mönnum mjög vel s.l. þrjú ár, og er Jónas formaður K-samtakanna í dag. Hann gerðist virkur félagi og stjórn- armaður í Félagi kaupsýslumanna á Suðumesjum og er formaður þess félags. „Það hefur verið mér mikill styrk- ur að starfa innan Kaupmannasam- takanna og í rauninni skil ég ekki kaupmenn sem starfa án þess að halda félagslegu sambandi og standa utan samtakanna. Raunin hefur orð- ið sú með mig eins og fleiri, að ég hef hagnast verulega á því að taka þátt í félagsstarfinu, auk þess sem ég hef eignast marga góða vini innan sam- takanna. Þar er mikið og gott sam- starf milli manna og í gegnum samtökin hef ég náð sambandi við erlend kaupmannasamtök, t.d. þau dönsku, sem hafa unnið ómetanlega vinnu við skipulagningu fyrir versl- anirnar. Þá hef ég fengið hingað til starfa danskan kjötiðnaðarmann, sem hefur unnið hjá okkur í ár, og ætlar að starfa áfram. Danir eru sér- fræðingar í markaðssetningu og í kjötiðnaði bera þeir af öðrum þjóð- um. Það er ekki lítils virði að ná sambandi við slíka menn. Daninn annast kjötborðið í búðunum okkar ásamt fastaliðinu okkar, sem er frá- bær starfskraftur. Ég get nefnt sem dæmi að svínakjötsalan hérna hjá okkur hefur aukist um 70-80% síð- an að hann fór að vinna hjá okk- ur”. „En ekki þarf að sækja alla hluti til útlanda. Hér heima hefur mér reynst vel að afla þeirrar þekkingar sem á skorti, þ.e. innan Kaupmannasam- takanna. Ég er þeirrar skoðunar að besta fjárfestingin sé í sjálfum sér, það er að afla sér þekkingar, læra af þeim sem eldri eru. I þessu efni lærir maður mest hér heima, og það höf- um við bræðumir gert“. REKSTURINN EYKST ENN í ársbyrjun 1986 ákvað Hannes bróðir Jónasar að taka boði hans um að gerast félagi í Nonna & Bubba. Hann seldi bróður þeirra, Sigurði, fasteignasöluna, og sneri sér að mat- vörusölunni. „Það var ánægjulegt að fá Hannes með í fyrirtækið. Hann kom með nýj- ar hugmyndir, sem hafa reynst vel. Hannes stækkaði enn reksturinn, við keyptum 900 fermetra hús í Hólm- garði, sem við gátum nýtt fyrir jóla- sölu um síðustu hátíðar. Við keypt- um einnig Holtsgötu 24 í Njarðvík, en þar höfum við opnað útibú. Versl- unarhúsnæðið í Hólmgarði bíður enn um sinn opnunar, það verður mjög nútímalegt, teiknað af íslenskum inn- anhússarktitekt, sem dönsku kaup- mannasmtökin sendu til okkar. Aður en Hannes kom hafði ég komið á fót Brauðhúsi N&B héma við hlið- ina á búðinni á Hringbrautinni, og húsið allt var okkar eign“. Jónas sagði að þeir bræðurnir, hann og Hannes ásamt Guðmundi, sem er eigandi Starmýrarbúðanna tveggja í Reykjavík, hefðu keypt 50% í kjötiðnaðarstöðinni við Bolholt í Reykjavík, en þar var Vörumarkað- urinn áður með kjötvinnslu. Fyrir- tækið heitir Kjötsalan h.f. og hjá henni starfa 9 manns. Keypt vom ný tæki og búnaður og öllu bylt og gert sem nýtískulegast. Þarna fer fram kjötvinnsla fyrir verslanir þeima bræðra og jafnframt selja þeir öðmm búðum, sem óskað hafa eftir við- skiptum. Innflutningsfyrirtækið IMPEX stofnaði Jónas Ragnarson ásamt tveim öðmm, sem nú eru hættir í rekstrinum, fyrir 3 árum. Með Jónasi starfar Hannes í Impex og hjá fyrir- tækinu starfa 4-5 manns að staðaldri og selja þeir um landið allt. A boð- stólum em 220 vömtegundir, inn- flutningurinn stöðugur og jafn. Hjá Impex og hjá Nonna & Bubba hefur allt verið tölvuvætt og allt bók- hald fyrirtækjanna hefur verið tekið inn á skrifstofur þeirra, þannig að fylgjast megi sem gerst með öllum málum. Jónas sagði að hægt og bítandi væri unnið að því að byggja upp heildverslunina, sem hefði reynst smásöluverslunum þeirra happa- drjúg, því eigin innflutningur hefði gert þeim kleyft að bjóða góðar vör- ur á hagstæðum verðum. Hjá Nonna & Bubba starfa 40-50 manns og velta verslananna á síð- asta ári var um 300 milljónir króna. PÍPUHATTASKEIÐIÐ í STJÓRNUN ER LIÐIÐ „Maður hefur eignast marga góða vini í gegnum allt þetta brambolt, en fáa eða enga óvildar eða öfundar- menn“, sagði Jónas. „Ég tel að menn megi aldrei týna trúnni á athafnafrelsi einstakling- anna, það er alltaf af hinu góða. Kaupfélögin vom að mínu mati góð og gild á sínum tíma, en oft finnst mér að þau séu orðin lík konungs- versluninni dönsku sem þau tóku við af á sínum tíma. Þau em orðin ríki í ríkinu. ísland hefur byggst fólki sem trúði á frelsi einstaklinganna, þannig var þetta allt frá landnámi. Núna mega einstaklingarnir sín lítils í verslunarrekstri, þeir fá ekki aðstoð til að komast að í verslunarrekstrin- um, þar hafa aðeins risarnir bolmagn 46

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.