Frjáls verslun - 01.05.1987, Síða 50
Guðmundur Ragnarsson kaupmaður íStarmýri:
Veltan jókst um 90 prósent
á fyrsta starfsári
næsta ári og þar mun Star-
mýrarbúðin fá mun veg-
legri aðstöðu.
„Ég fór ungur að læra múrverk,
við höfum sótt í byggingariðnaðinn
bræðurnir, þrír múrarar og fjórir
trésmiðir, enda þótt við höfum ekki
allir staðnæmst í okkar greinum.
Múrverkið var erfitt og ég fór mjög
fljótt í bakinu, var ekki nema eitt og
hálft ár í iðninni eftir sveinspróf",
sagði Guðmundur.
Hann fór að starfa hjá Slökkviliði
Keflavíkurflugvallar undir stjóm
Sveins Eiríkssonar heitins, sem Guð-
mundur segir að hafi verið mikilhæf-
ur stjórnandi, og af honum hafi hann
margt lært, sem komi að góðum not-
um í dag. Auk þess að vera í störfum
á Vellinum stofnaði Guðmundur
Hellugerð Suðurnesja og rak hana
samhliða störfum sínum, hafði þrjá
menn í vinnu. Fyrirtækið lagði hann
síðar niður, en seldi vélar og tæki til
Sandgerðis. Á tímabili vann Guð-
mundur í aukavinnu hjá Nonna og
Bubba hjá Jónasi bróður sínum, og
gerðist fastur starfsmaður, þegar
hann hætti í slökkviliðinu.
Guömundur Ragnarsson kaupmaöur og Sigrún Kristjánsdóttir eiginkona
hans en hún sér um bókhald verslunarinnar.
Guðmundur Ragnars-
son 33 ára sá eini þeirra
Ragnarsbræðra, sem hef-
ur haslað sér völl utan
Keflavíkur. Hann er kaup-
maður í Versluninni Star-
mýri, sem áður var Víðir.
Þar hefur hann nú verslað
í hálft annað ár, en núna
nýlega færði hann út
kvíarnar og opnaði útibú
í Árkvörn í nýja íbúðar-
hverfinu uppi á Ártúns-
höfða. Verslunin þar er
reyndar aðeins til bráða-
birgða, því ætlunin er að
hefjast handa um að reisa
nýtt hús á lóðinni þegar á
„Ég fékk ágæta reynslu hjá Jonna
bróður, vann í kjötvinnslunni allt til
ársins 1983 að ég keypti Bílasöluna
Blik í Reykjavík ásamt félaga mínum
og rak hana til ársloka 1985, þegar
ég keypti Víði í Starmýrinni af þeim
Víðisbræðrum. Bílasalan var ágæt
að mörgu leyti, en hentaði mér þó
ekki að öllu leyti. Þetta var mikið arg
og þvarg, síminn hringdi stanslaust á
sama tíma og skrifstofan var full af
fólki að skoða og kaupa. Þetta gat
verið erfitt. Vinnudagurinn var líka
langur, og unnið flesta daga. Það var
því lítið um frítíma, sem verður
þreytandi til lengdar, enda er ég far-
inn að draga úr slíkri vinnuþrælk-
un“, sagði Guðmundur Ragnarsson.
50