Frjáls verslun - 01.05.1987, Blaðsíða 53
Fvrirtæki
Globus fjörutíu ára
Globus hefur nú starfað í full
40 ár. Á þessum árum hefur
fyrirtækið vaxið jafnt og þétt og
er nú orðið stórfyrirtæki á ís-
lenskan mælikvarða. Sem dæmi
má nefna var veltan árið 1956
kr. 9.300, en nú stefnir heildar-
veltan í tæpar 700 milljónir
króna án söluskatts.
I upphafi snérist reksturinn svo til
eingöngu um innflutning og sölu á
Gillette rakvélum og rakvélablöðum
en í dag hefur Globus haslað sér völl
í fjölmörgum greinum atvinnulífsins.
Markvisst hefur verið unnið að því
að dreifa rekstraráhættu fyrirtækis-
ins. Starfsemin skiptist nú í 5 megin-
deildir auk fjármála- og rekstrar-
deildar:
Árni Gestsson stjórnarformaður Glöbus, Gestur Árnason framkvæmda-
stjóri fjármala-og rekstrardeildar og Börkur Árnason framkvæmdastjóri
sölu-og markaðsmála.
Heiti deildar
Heilsöludeild
Búvéladeild
Bíladeild
Iðnaðar- og útvegsdeild
Varahlutadeild og
þjónustudeild
Hlutfall
rekstrartekna
28%
26%
24%
5%
17%
Vöruflokkar
Snyrti- og
hreinlætisvörur
Hjúkrunarvörur
Áfengi og tóbak
Ræstingarvörur
Landbúnaðartæki
Bifreiðar
Bátavélar
Skurðgröfur
Ýmis iðnaðartæki
Varahluta- og
viðgerðarþjónusta fyrir
búvéla-, bíla- og
iðnaðardeild.
Þessi mikla fjölbreytni í rekstrin-
um hefur tryggt starfseminni stöðug-
leika og öryggi þrátt fyrir sveiflur í
einstökum greinum.
Globus er rekið í eigin húsnæði að
Lágmúla 5 og starfa þar nú 60
manns.
Ný kynslóð tekur við
stjórninni
Árni Gestsson hefur frá upphafi
verið forstjóri fyrirtækisins og hefur
öll ábyrgð að meira og minna leyti
hvílt á hans herðum. Aukin umsvif
kalla hinsvegar á breytta stjórnunar-
hætti.
Um síðustu áramót var stjórn-
skipulagi Globus breytt. Árni lét af
forstjórastarfinu en tók við stjórnar-
formennsku. Tveir synir Árna tóku
við framkvæmdastjórninni, Gestur
Ámason, framkvæmdastjóri fjár-
mála- og rekstrardeildar og Börkur
Ámason, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssmála. Stefnt er að aukinni
valddreifingu innan fyrirtækisins.
SAAB umboðið besta
afmælisgjöfin
Globus hefur aukið umsvif sín
verulega á bílamarkaðinum með því
að taka við söluumboði fyrir SAAB
bifreiðar á íslandi. Enginn vafi er á
því að þetta styrkir bíladeildina til
muna og verður til þess að Globus
getur veitt Citroén og Saab eigend-
um enn betri þjónustu en ella.
Viðgerðar- og varahlutaþjónusta
fyrir Saab bifreiðar verður í fyrst-
unni rekið á sama stað og áður í hús-
næði Töggs hf. að Bíldshöfða 16.
Söludeildin verður hins vegar að
Lágmúla 5.
Globus hefur þegar ráðið þrjá lyk-
ilmenn sem áður störfuðu hjá Tögg
hf. Þeir eru Ágúst Ragnarsson, sölu-
stjóri, Hrafnkell Guðmundsson, yfir-
maður verkstæðis og Sigurður
Olafsson, yfirmaður varahluta-
deildar.
Tilkoma SAAB umboðsins kallar
á enn frekari skipulagsbreytingar
innan Globus og verður framtíðar-
skipan komið á innan tíðar.
Nýtt merki
í tilefni afmælisins hefur Globus
látið hanna nýtt merki og slagorð
fyrir fyrirtækið og einnig gefið út
kynningarbækling um starfsemina.
Frönsku Citröen verksmiðjurnar
taka einnig þátt í afmælisfagnaði
Globus með því að veita afmælisaf-
slátt á ákveðnum fjölda Citroén AX
bifreiða.
53