Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 16
ÍSLESSKA AUCITSISCASTOFAN Hf
FRETTIR
i
Frá athöfn vegna skóflustungunnar í Smárahvammi. Frá vinstri, Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra, Jón Þór Hjaltason framkv.stj. Faghúsa, dr. Gunnar Birgisson
form. bæjarráðs, Sigurður Geirdal bæjarstjóri, Magnús Hreggviðsson stj.formaður
Frjáls framtaks og Erla Haraldsdóttir eiginkona Magnúsar.
(JPPBYGGING HAF1N Á ATVINNUSVÆÐIISMÁRAHVAMMI:
JÓN SIGURÐSSON TÓK FYRSTU SKÓFLUSTUNGU
Jón Sigurðsson, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra,
tók nýlega fyrstu skóflu-
stunguna vegna bygging-
ar atvinnuhúsnæðis í
Smárahvammslandi.
Byggingarfyrirtækið
Faghús hf. hefur keypt
lóðir til að reisa skrif-
stofu- og þjónustuhús-
næði á 11.000 fermetra
gólffleti. Nú var að hefj-
ast bygging fyrsta húss-
ins sem verður 3.500 fer-
metrar. Framkvæmda-
hraði vegna byggingar
annarra húsa á svæðinu á
vegum Faghúsa hf. ræðst
svo af eftirspurn og horf-
um á markaðnum.
Á árunum 1989 til 1991
seldi Frjálst framtak all-
ar lóðir sínar á svæðinu
vegna íbúðarbygginga.
Nú eru fyrstu húsin að
rísa á því svæði en um er
að ræða fjölbýlishús og
raðhús. Það eru ýmsir
byggingarverktakar sem
standa fyrir byggingu
íbúðarhúsanna.
Nú eru um 87% allra
lóða Frjáls framtaks hf. í
Smárahvammslandi seld-
ar en fyrirtækið keypti
landið árið 1988.
▲
rr./J FRÁBÆR ÞAKDÚKUR
A JlKöL k FRAMURSKARANDIÞJONUSTA
Reykjavikurvegi 60,222 Hafnaríjörður,
Sími: 91-54644, Fax: 54959
Margir húseigendur þekkja það af sárri og kostnaðarsamri reynslu að vatn er oft
til vandræða.
SIKA PVC þakdúkarnir eru varanleg vatnsvörn á svalir og þök. Öll samskeyti eru
soðin saman og vatnið á enga leið í gegnum dúkinn sem er níðsterkur og
algerlega viðhaldsfrír. SIKA þakdúk má leggja allt árið um kring og
sjá sérmenntaðir starfsmenn okkar um að leggja allan dúk
sem við seljum. Það ásamt óbilandi trú okkar á
gæðum SIKA þakdúkanna gerir okkur kleift
að bjóða 15 ára ábyrgð á efni og vinnu.
Komdu eða hringdu og fáðu nánari
upplýsingar um SIKA þakdúkana. Við
gerum föst verðti I boð kaupendum að
kostnaðarlausu.
BYGGÐAVERK HF.
Áratuga reynsla og 15 ára ábyrgð á
efni og vinnu tryggja að þegar þú
reiknar dæmið til enda er SIKA
hagkvæmasti kosturinn.