Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 33
almenningur gæti keypt þau. Áhrif
katalóganna urðu hins vegar meiri því
íslenskir smiðir virðast hafa notað þá
sem fyrirmyndir við smíði húsa sinna í
umtalsverðum mæli.“
MIKIÐ VERK FRAMUNDAN
Þegar komið er inn í hús þeirra
Finns og Fanneyjar, hrís venjulegum
manni hugur við því gífurlega verki
sem eftir er að inna af hendi áður en
húsið telst að fullu leyti uppgert. Nú
er lokið frágangi rýmis í kjallara og
unnið að einangrun og endurbótum í
risi. Að því loknu verður miðhæðin
endurgerð.
„í sjálfu sér hefur hin mikla vinna
við þessa endurgerð ekki komið mér
á óvart því ég hafði starfað að slíkum
verkefnum áður. Hins vegar er ljóst
að flestir sem ráðast í slíkt gera sér
litla sem enga grein fyrir þeirri vinnu
sem þeirra bíður. Sama er að segja
um kostnaðarhliðina því erfitt er að
gera góðar áætlanir í þeim efnum í
upphafi verks. Hvað þetta hús varðar
hygg ég að kostnaður við kaup þess
og endurgerð verði hærri á hvem fer-
metra en ef við hefðum byggt nýtt
hús,“ sagði Finnur ennfremur.
Innandyra í Grjótagötu 11 úir og
grúir af alls kyns smíðavið og verk-
færum sem notuð eru við endurbygg-
inguna. Allt sem talið er tilheyra upp-
mnalegum klæðningum hefur verið
varðveitt og ætlunin að smíða eftir því
síðar meir. Trésmíðavélamar standa
á trégólfunum þar sem síðar verða
stássstofur hússins en þær verða
gerðar upp að síðustu eins og áður
sagði. Hefur orðið að sérsmíða tenn-
ur í fræsara til að vinna skreytilista og
panel sem víða er notaður í húsinu.
Grjótagata 11 er samtals 152.7 fer-
metrar að grunnfleti. í kjallara, sem
er 59.7 fermetrar að stærð, er
geymsla, herbergi, þvottahús, skáli
og baðherbergi. Miðhæðin er 60.6
fermetrar og skiptist í forstofu, rúm-
gott eldhús með dyrum út á verönd
og tvær stofur sem snúa til suðvest-
urs. Risið, sem er 59.7 fermetrar
skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi,
skála og bað.
„Þótt við reynum að vera uppruna
þessa húss trú, erum við þó fyrst og
fremst að byggja okkur heimili. Hér
V
i
SMi:
EMH Á ENGANvSINN LÍKAN
SANNKALLAÐ HÖRKUTÓL
EMH er einkaleyfísverndaður höggbúnaður frá Skil, sem gerir borun
í steinsteypu svo létta, að því trúir enginn nema reyna það sjálfur.
2210H
- 3,6 volta mótor
- hraði 180 sn/mín
- sjálfvirk læsing
- veggfesting
SKIL - KRAFTVERKFÆRI HENTA ÞEIM KRÖFUHÖRÐUSTU
Eigum ávallt fjölbreytt úrval SKIL rafmagnshandverkfæra og fylglhluta
jafnttil iðnaðar- sem heimilisnota.
SÖLUAÐILAR VÍÐA UM LAND.
|
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
IFALKINN
®
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 814670