Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 44
INNRETTINGAR
jafnaði um tvöfalt dýrari en þær frá
Kvik. Þar gætir meiri fjölbreytni í lit-
um og efnisvali. Þegar innrétting er
keypt hjá Fit er boðið upp á að setja
hana upp þannig að kaupandinn þuríi
ekki að hafa frekari áhyggjur af neinu
sem innréttingunni viðkemur. Því er
verð innréttinganna þrískipt; kaup-
andi getur séð um alla vinnuna, fengið
dygga aðstoð eða látið verslunina al-
farið um málið. Rétt er að minnast á
að Fit hefur yfir að ráða mjög góðum
tölvubúnaði sem gerir fólki kleift að
sjá hvemig óskainnréttingin komi til
með að líta út.
Ellen Tyler innanhússarkitekt við innréttingu sem hefur reynst mjög vel.
Hún kostar um 150.000 kr. án eldhústækja. Lakkaðar og plastklæddar
spónaplötur eru í hurðum og það er eftirtektarvert að lamirnar eru utan á og
þola mikinn þunga. Höldur eru úr stáli en geta einnig verið úr viði eða plasti.
Borðplötur eru plastklæddar.
HARÐVIÐARVAL
Harðviðarvalh.f., Krókhálsi4, sel-
ur innréttingar frá Danmörku sem
heita HTH og Uno-Form. HTH eru
einar af fyrstu erlendu innréttingun-
um, sem voru seldar á íslandi, og um
helmingur allra seldra innréttinga í
Danmörku er frá HTH. Ellen Tyler
innanhússarkitekt segir að viður, t.d.
askur, eik eða kirsuberjaviður, og
lakkað plast séu vinsælustu efnin í
innréttingum hjá Harðviðarvali. Þar
fást einnig klæðaskápar og baðinn-
réttingar og því er auðvelt að skapa
heildarlínu fyrir heimilið. Ódýrasta
eldhúsinnréttingin kostar um 119.000
kr., að sögn Ellenar, en meðalverð er
á bilinu 290.000-400.000 kr. Uno-
Form innréttingamar eru þó dýrari.
Á þessari mynd, sem er tekin í
heimahúsi, er ný og vönduð innrétt-
ing frá trésmiðjunni Tak á Akureyri.
TAK
Trésmiðjan Tak, Réttarhvammi 3,
Akureyri, var stofnuð fyrir tveimur
árum en stendur á gömlum merg í
þessum iðnaði á Akureyri. Tak fram-
leiðir eldhús- og baðinnréttingar auk
fataskápa en raunar má fá þar allar
aðrar tegundir innréttinga, allt frá
plastinnréttingum upp í vandaðri
gerðir úr gegnheilum viðartegund-
um. Algengustu innréttingamar eru
sprautulakkaðar og er litaúrvalið mik-
ið. Hvítt er vinsælast sem fyrr en
»» SÉRSMÍÐI
VIÐ SÉRSMÍÐUM INNRÉTTINGAR OG HÚSGÖGN
EFTIR ÞÍNUM ÓSKUM.
GERUM FÖST VERÐTILBOÐ EFTIR TEIKNINGUM
ARKITEKTAÞJÓNUSTA:
Arkitekt, Sigurjón Pálsson, húsgagna- og innanhússarkitekt.
Trésmiöjan KOH/IPANIIÐ tífm
BÍLDSHÖFÐA 18, 112 REYKJAVÍK, SÍMI OG FAX 91-670001
44