Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 92
LITAVAL
Skrifstofur Ráðhússins eru látlausar. Jatobaviður á gólfum.
íslendingar eru miklir bygginga-
meistarar og fátítt er að annarra þjóða
menn verji eins mikilli orku og við
íslendingar í húsbyggingar. Það er
ekki nóg með að meðalmörlandinn
byggi 2-3svar sinnum á ævinni því
hann ver auk þess drjúgum tíma
hennar til endurbóta á því húsnæði
sem hann dvelur í, ævidaga langa.
HVÍTUM HÚSUM FÆKKAR
Þegar ekið er um nýbyggingar-
hveríi höfuðborgarsvæðisins kemur í
ljós að um val á málningu utandyra er
fólk mun djarftækara til glaðlegra lita-
samsetninga en það var fyrir nokkr-
um árum. Þá voru hús gjarnan hvít
með rauðu eða grænu þaki en ómáluð
hús hulin skeljasandi eða með ein-
hvers konar grófri áferð, ómálaðri.
Þar var ekki fyrir að fara fjörugum
litasamsteningum og heildaryfirbragð
byggðanna bar ekki hugmyndaauðgi
eigendanna gott vitni.
Nú bregður svo við að fjöldamörg
íbúðarhús eru máluð í alls kyns litum
og eru litir eins og blátt, daufgrænt og
bleikt mjög algengir. Þó notar fólk
einnig mikið hvíta litinn á veggi en
ákveðnir húshlutar eru þá gjaman
málaðir í sterkari tónum. Og þar sem
gluggaumbúnaður var nær alfarið í
viðarlitum fyrir nokkrum árum má
segja að gráir og drapplitaðir tónar
hafi náð yfirhöndinni í dag. Allt stuðlar
þetta að auknum frískleika og bjartara
yfirbragði.
Arkitektúr húsa dregur einnig dám
af þessari auknu birtu sem fólk vill
kalla fram. Þunglamalegur stíll með
mikilli steinsteypu er á undanhaldi en í
staðinn ber æ meira á stórum glugg-
um, léttum þökum og trévirki sem
notað er til að mynda skjólveggi eða
palla umhverfis húsin.
Arkitektar, sérstaklega þeir sem
hafa komið frá námi á allra síðustu
árum, hafa verið duglegir að nýta sér
litakortin. Þó gildir þetta ekki ein-
göngu um þá sem nú eru að hanna hús
því gengnir gæðaarkitektar á borð við
Sigvalda Thordarson, notuðu gjarnan
sterka liti á sín hús. Eru bláu og dökk-
gulu litirnir hans Sigvalda þekktir á
fjölmörgum húsum sem hann teikn-
aði.
Að sögn Ólafs Más Sigurðssonar
markaðsstjóra hjá Málningarverk-
smiðjunni Hörpu, er sá árstími að
ganga í garð þar sem eftirspurn eftir
glaðlegum litum eykst dag frá degi.
„Sól fer hækkandi á lofti og málning-
arsalan eykst því fólk vill taka þátt í
vorinu með því að hreinsa til í kring-
um sig og mála hús og hýbýli í hressi-
legum sumarlitum,“ sagði Ólafur
Már.
SPILAÐ Á RÝMIÐ
Og við íslendingar byggjum ekki
aðeins íbúðarhús. Hvers konar at-
vinnuhúsnæði hefur þanist út á liðn-
um árum og því miður verður að segj-
ast eins og er að eigendur þess virð-
ast halda að önnur lögmál gildi þar en
heima fyrir. Oftast er skrifstofuhús-
næði kassalagaðar byggingar og hafa
sumar þeirra fengið þá einkunn að þau
minni einna helst á frystikistur. En
sem betur fer eru á þessu undantekn-
ingar og satt að segja fer þeim fjölg-
andi.
92