Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 72
ELDVARNIR
„Það tæki er vart til sem veitir jafn
mikið öryggi fyrir jafn lítið verð,“ full-
yrðir Bjami. Ekki er rétt að hafa
reykskynjara í eldhúsi eða í stofu hjá
reykingafólki heldur er best að stað-
setja hann sem næst miðju hússins
eða íbúðarinnar. Einn skynjari ætti
yfirleitt að duga nema um sé að ræða
híbýli á fleiri en einni hæð. Nauðsyn-
legt er að hreinsa skynjarann stöku
sinnum og auðvitað þarf að skipta um
rafhlöður í honum þegar þær gömlu
eru ónýtar. Eins og sést á töflunni hér
til hliðar eru nokkur fyrirtæki á höfuð-
borgarsvæðinu með mismunandi
reykskynjara til sölu á mismunandi
verði.
Vart þarf að taka fram að slökkvi-
tæki ætti að vera til á hverju heimili.
Eitt tæki ætti að duga en þá er hins
vegar spurning hvort sé betra að eiga
vatns- eða duftslökkvitæki. Vatns-
tæki má nota á eld í húsgögnum, viði
og trefjaefnum, svo dæmi sé tekið,
en ekki á logandi potta eða pönnur og
ekki á rafmagnstæki nema þau séu
fyrst tekin úr sambandi. Þrátt fyrir
þessa ókosti ráðleggja Hrólfur og
Bjami fólki að verða sér úti um vatns-
tæki frekar en dufttæki. Duftslökkvi-
tæki má nota á alla elda en af þeim
hljótast mikil óhreinindi sem erfitt
getur reynst að hreinsa. Þar að auki
er ekki hægt að slökkva algerlega í
glóð með dufttæki. Slökkvitæki ætti
helst að vera uppi á vegg við útgang
húss eða íbúðar. Verð fer eftir stærð,
gerð og gæðum. Almennt er sagt að
10 lítra vatnstæki og/eða 6 kg duft-
tæki henti hverju heimili ágætlega.
Síðast en ekki síst ættu allir hús- og
íbúðareigendur að verða sér úti um
eldvarnarteppi til að hafa til taks í eld-
húsinu. Slíkt teppi getur einmitt kom-
ið í staðinn fyrir slökkvitæki í eldhúsi
þannig að dufttækis sé ekki þörf. Lítill
sem enginn verð- eða gæðamunur er
á eldvamarteppum sem em til sölu
hér á landi.
Heimili með reykskynjara í lofti,
slökkvitæki uppi á vegg og eldvamar-
teppi í eldhúsinu er vel í stakk búið til
að mæta eldsvoða. En ekki er nóg að
eiga réttu tækin, eins og Hrólfur og
Bjarni undirstrika, það verður líka að
kunna að nota þau. Ef beita þarf
slökkvitæki á eld er mikilvægt að
beina stútnum að rótum hans og þeir
félagamir nefna einnig að það gerði
fólki eflaust gott að prófa að nota
slökkvitækið einu sinni eða tvisvar og
fá þannig tilfinningu fyrir því. Auðvelt
er að nota eldvamarteppi; taka á í
hom þeirra og vippa þeim yfir svo
hnúar fólks snúi inn í það. Teppinu er
smeygt yfir eldinn og hann kæfður.
Ekki má gleyma að teppinu verður að
halda yfir eldinum í dágóða stund því
annars gæti hann blossað upp aftur.
Annars vilja Hrólfur og Bjami að
fólk hiki ekki við að hringja á Slökkvi-
liðið, sama hversu smávægilegur eld-
urinn sýnist. Jafnvel þótt fólk haldi
að það geti slökkt eldinn sjálft á það að
kalla á okkur,“ segir Bjami. Og sé
eldurinn þeim mun meiri er forgangs-
röðin þessi: Fyrst á að vekja alla í
húsinu, svo ná í slökkvilið og því næst
reyna að slökkva eldinn eða halda
honum í skefjum. Einnig ítreka þeir
að fólk reyni að vera viðbúið eldsvoð-
um og geri sér grein fyrir hvemig
bregðast skuli við, hvar næstu út-
gangar séu, til dæmis aðaldyr, svala-
hurðir og manngengir gluggar, og
hvert númer slökkviliðsins á staðnum
sé
Botninn í þetta viðtal slógu þeir
Hrólfur og Bjarni með því að benda á
að ástand eldvama í heimahúsum
væri almennt í ágætu lagi hér á landi
ef miðað væri við nágrannalöndin.
Ótrúlega lítið væri um manntjón af
völdum eldsvoða hér. Hins vegar má
alltaf gera betur og þeim finnst báðum
að of mikið sé um smábruna í heima-
húsum sem auðvelt væri að koma í
veg fyrir með meiri aðgæslu. „Ég hef
líka gmn um að reykskynjara vanti á
mörg heimili og mér finnst ég ekki sjá
slökkvitæki á nógu mörgum heimil-
um,“ segir Bjarni að lokum.
Þeir, sem þurfa að bæta ráð sitt, og
þeir, sem em að stofna heimili, ættu
því að hafa gagn af töflunni hér til
hliðar þar sem birt er verð á reyk-
skynjurum, slökkvitækjum og eld-
varnarteppum sem nokkur fyrirtæki í
Reykjavík flytja inn.
THOR - ofnana vinsælu
Ofnarnir eru afgreiddir fulllakkaðir.
Tökum einnig aö okkur
steinsteypusögun og
kjarnaborun hvar sem er á
landinu
OFNASMIÐJA BJÖRNS ODDSSONAR
Lagarbraut 7, 700 Egilsstööum
Símar:97-11665 og 97-11491
72