Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 89
því ljóst að brostnir álversdraumar hafa
snúist í martröð fyrir verktaka og það fólk
sem hefur framfæri sitt af hvers konar
verklegum framkvæmdum, hönnun og
fleiru sem að þeim lýtur.
Stundum er rætt um nauðsyn þess að
hið opinbera auki við framkvæmdir þegar
samdráttur ríkir í hagkerfmu. Vissulega
má þetta til sanns vegar færa en um leið er
hollt að minnast þess að opinberir aðilar
dæla nú þegar gífurlegu fjármagni til fram-
kvæmda af hvers konar tagi.
Áður er minnst á virkjanaþáttinn, en
Landsvirkjun hefur varið tugum milljarða
króna til þess málaflokks á síðustu árum.
Af einstökum dæmum má nefna að Hita-
veita Reykjavíkur hefur varið milljörðum
króna til byggingar Perlunnar og á þessu
ári mun hún verja 750 milljónum króna til
framkvæmda við stofn- og dreifikerfi veit-
unnar. Reykjavíkurborg hefur varið mil-
ljörðum króna á ári til framkvæmda að
undanfömu því auk þess fjármagns sem
hefur runnið til Ráðhússins ver borgin ár-
lega gífurlegum upphæðum til viðhalds- og
stofnframkvæmda. Sama er að segja um
önnur sveitarfélög.
Á þessu ári er fyrirhugað að verja um
8,300 milljónum króna til opinberra bygg-
inga í landinu. Þar af renna um 3,300 mill-
jónir til skóla- og íþróttamannvirkja og
1,700 milljónir til sjúkrahúsbygginga. í
fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1992 er
áætlað að veija 10,700 milljónum til sam-
göngumannvirkja af ýmsu tagi og að fjár-
festing í opinberum framkvæmdum verði
tæplega 23 milljarðar á árinu 1992.
0FFRAMB0Ð AF ÍBÚÐUM?
Mikil deyfð hefur verið yfir sölu nýrra
íbúða í Iandinu á síðustu tveimur árum og
Verktakasamband íslands áætlar að 200-
300 íbúðir, fokheldar og lengra komnar,
séu óseldar á markaðnum. Auðvitað má
ætla að þessu valdi ýmsar ástæður, m.a.
offramboð á ákveðnum svæðum og af
ákveðnum tegundum íbúða en ekki síður
það efnahagsástand sem nú ríkir.
Talið er að fjárfesting í íbúðarhúsnæði
hafi dregist saman á árinu 1991 um 2% en
þjóðhagsspá gerir ráð fyrir 3% samdrætti
á þessu ári. Verktakasamband íslands er
enn svartsýnna og spáir 5-7% samdrætti í
ár. Þrátt fyrir þennan samdrátt mun þjóðin
veija ríflega 16 milljörðum til íbúðabygg-
inga á þessu ári.
Þessar tölur segja þó ekki allt. Verk-
takasambandið gerir ráð fyrir því að meg-
inverkefnin á þessu ári verði í tengslum
við innréttingar og frágang íbúða en að
10-20% samdráttur verði í uppsteypu á
þessu ári. Það mun auðvitað gera það að
verkum að offramboð á íbúðalóðum mun
ríkja um sinn.
Það sem vekur hins vegar athygli er sú
staðreynd að þrátt fyrir hið mikla framboð
af nýjum íbúðum er enn gífurleg umfra-
meftirspum eftir lánum til byggingar fé-
lagslegra íbúða. Umsóknir um lán vegna
slíkra íbúða á vegum sveitarfélaganna
vegna ársins 1992 vom 2,150 talsins en á
síðasta ári úthlutaði Húsnæðisstofnun 597
lánum til slíkra íbúða.
Þessi áhugi sveitarstjómarmanna, sem
auðvitað byggist á því að fá til sín fram-
kvæmdir og lága vexti, er sérkennilegur í
ljósi þess að talið er að árleg byggingar-
þörf í landinu öllu sé um 1400-1500 íbúðir á
ári. Þá er auðvitað verið að ræða um allar
tegundir íbúða. En meðan stjómvöld halda
uppi margs konar vaxtastigi á íbúðamark-
aði, mun það gerast um allan aldur að
menn sæki í lága vexti sem greiddir eru
niður af almenningi.
FTARÐARSTÁL sf.
KAPLAHRAUNI 22, SÍMI 91-652378, FAX 652379
• Handrið
• Stigar
• Fatahengi
• Hurðir
• Gluggagrindur
• Brunastigar
• Hringstigar
• Hlið fyrir sumarhús
• Baðinnréttir.gar
• Borðfætur
• O.fl.
Stigar • Handrið • Sérsmíði • Ál — Stál ryðfrítt
§f§|
89