Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 78
GOLFEFNI
híbýli sín. í tuttugu og fimm ár var
Byggir hf. eina fyrirtækið sem flutti
inn parket. Tollar voru mjög háir fram
til ársins 1975 en þá fór skriðan af stað
að sögn eiganda fyrirtækisins, Borg-
þórs Björnssonar, en hann tók við
Byggi hf. árið 1965. Síðan hefur park-
etið sótt á jafnt og þétt. Fyrirtækið
flytur inn gólfefni frá ýmsum heims-
hlutum. Parketið kemur að mestu frá
Svíþjóð og er aðallega borðaparket
unnið úr eik, beyki, aski og merbau.
Þessar tegundir segir Borgþór að séu
vinsælastar enda sígildar. Að sögn
Borgþórs er parket, sem framleitt er
úr harðviði frá heimshlutum eins og
Suður-Ameríku, Afríku og Austur-
löndum fjær, á undanhaldi. Þetta eru
viðartegundir sem vaxa í skógum
sem fara ört minnkandi af manna
völdum. Auk parkets flytur Byggir hf.
inn stein-, marmara-, plast- og leir-
flísar frá Svíþjóð og síðast en ekki síst
hefur fyrirtækið flutt inn mottur frá
Austurlöndum. Þær koma frá Kína,
Pakistan, Iran og Katmandú í Himal-
ayafjöllunum. Þessi teppi njóta geysi-
legra vinsælda um þessar mundir og
segist Borgþór geta þrýst verði
þeirra niður með því að flytja þær
beint frá framleiðslulandinu.
Hér má sja sýnishorn af skrautlögn
frá Parkethúsinu. Þetta er náttúru-
leg eik með antik-lit.
PARKETHÚSIÐ
Verslunin Parkethúsið, Suður-
landsbraut 4a, selur eingöngu gegn-
heilt parket sem, í flestum tilfellum,
límist beint á stein. Friðrik G. Frið-
riksson, eigandi verslunarinnar, segir
að það hafi orðið gífurleg breyting á
þekkingu viðskiptavinanna á parketi
frá því verslunin tók til starfa fyrir
einu og hálfu ári síðan. Auk þess hafi
verðið á þessu parketi lækkað tölu-
vert og því sé verðmunurinn á gegn-
heilu og fljótandi parketi ekki svo ýkja
mikill núorðið. Helsti kostur gegn-
heila parketsins, fyrir utan að það
glymur ekki í því, segir Friðrik vera
að hægt er að slípa það niður og gera
það sem nýtt ef parketið skemmist
t.d. af völdum vatns.
Fyrirtækið Insúla innflutningur
flytur inn allan við sem seldur er í
Parkethúsinu. Að sögn Friðriks selst
viðartegundin eik, sem flutt er inn frá
Póllandi, mest um þessar mundir.
Þessi eikartegund er mjög hörð og
einkennist af sígildum lit sem má
nefna antik lit.
Friðrik segir þá hafa sérhæft sig í
skrautlagningu parkets en allt parket
sem selt er í Parkethúsinu er fram-
leitt á þann hátt að stafirnir eru allir af
nákvæmlega sömu stærð. Það gefur
möguleika á því að leggja parketið í
UUHUITOiR
• Vandaðar útihurðir úr furu, oregon pine og mahóní tilbúnar 1
uppsetningar. Þeim fyigir karmur, lamir, skrá, húnar og
þéttilistar.
• Við sérsmíðum einnig hurðir og glugga eftir þínum óskum.
Gerum föst tilboð í alla smíði.
• Góðir greiðsluskilmálar.
Áratuga reynsla í hurða- og gluggasmíði.
B.Ó.
RAMMI
við Reykjanesbraut í Hafnarfirði - Símar 54444 og 654444
78