Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 24
SJAVARUTVEGUR
Hér er Sighvatur fyrír framan mynd af nótabátnum Sighvati Bjarnasyni VE, sem er í
eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum sem hann tekur við stjórn á nú um mitt
ár. Báturinn heitir í höfuðið á afa og nafna Sighvatar Bjarnasonar. Um síðustu
áramót sameinuðust 6 hlutafélög í Vestmannaeyjum undir nafni Vinnslustöðvarinn-
ar og úr því fyrirtæki verður eitt allra stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áætluð
velta á þessu ári gæti numið um 3 milljörðum króna. Bókfærð eiginfjárstaða
félagsins er þolanleg en skuldir eru miklar. Ætlunin er að beita öllum ráðum til að
minnka skuldirnar með sölu eigna og endurskipulagningu. Því bíða hins nýja
framkvæmdastjóra erfið viðfangsefni. Sighvatur er þrrtugur rekstrarhagfræðingur
að mennt. Hann lærði í Danmörku en hefur frá því námi lauk starfað við markaðs-
mál hjá SÍF og verið framkvæmdastjóri dótturfyrirtækis þess í Frakklandi frá árinu
1990.
Jónatansson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Fáskrúðsíjarðar, og
Sighvatur Bjamason.
Ég tel að reynslan af rekstri þessa
fyrirtækis sé það góð að ástæða sé til
að taka fleiri skref á þessari braut — í
átt til hins endanlega neytanda. Mér
sýnist að næsta skref gæti verið, í
samvinnu við þá sem selja frosinn fisk
frá íslandi, að stofna dreifingarfyrir-
tæki á Spáni. Þetta fyrirtæki myndi
sjá um niðurskurð og pakkningu á
saltfiski og dreifa honum til neytenda í
gegnum matvælamarkaði, stórmark-
aði og með öðrum hætti. Fyrirtækið
myndi sjá um sölu og dreifmgu á ís-
lenskum fiskafurðum á spánska
markaðnum undir ISLANDIA vöru-
merkinu sem er mjög vel þekkt á
Spáni. Það þarf að auka til muna sam-
vinnu íslenskra útflytjenda á erlend-
um mörkuðum. Og hvers vegna ekki
að sameina krafta SÍF, SH og ís-
lenskra sjávarafurða úti á mörkuðun-
um? Nú er saltfiskurinn aðallega seld-
ur til framleiðenda á Spáni sem fram-
kvæma síðan það sem hér er lýst að
framan. Hins vegar tel ég ekki enn
tímabært að fara út í að setja upp
þurrfiskverksmiðju í Portúgal. Mér
virðist að skynsamlegt sé að bíða eftir
reglum EB áður en farið verður út í
það, en á einhverjum tímapunkti
verður það nauðsynlegt vegna sam-
SÉRSMÍÐUM
/
HÚSGÖGN
ásamt öllum
innréttingum
og innihurðum
í hæsta
gæðaflokki.
CERUMFÖST
VERÐTILBOÐ.
TRÉÓS h.f.
Oaaurl la - Hl. fiBir9DI4l< - •Iml HBfJDaf
fa« q6 (JSri - DIIJ Akurayrl - Vak.nr. «7503
Óseyri la ■ 603 Akureyri
96-23082 Fax 96-23571
24