Frjáls verslun - 01.09.1992, Side 32
FRÉTTASKÝRING
verslunarmáti. í dönsku Nettó-búð-
unum er að jafnaði greitt með um 150
vörumerkjum af um 750 til 800 vöru-
merkjum sem fást í búðunum.
Það, sem býr þama að baki, er vit-
neskja neytenda um að búðimar bjóði
mjög lágt vöruverð. Þessi vitneskja
kemur í gegnum verðkannanir og því
þarf mjög lítið að auglýsa. Dæmi: í
staðinn fyrir að eyða 500 þúsund
krónum í að láta hanna og birta heil-
síðuauglýsingu í dagblaði um að kaffi
sé ódýrt er kaffið frekar niðurgreitt
um 500 þúsund í versluninni. Budda
viðskiptavinarins verður strax vör við
slíkt.
ÆGIVALD GAGNVART HEILDSÖLUM
0G FRAMLEIÐENDUM INNANLANDS
Bónus og Hagkaup hafa bæði rekið
mjög harða pólitík gagnvart framleið-
endum og heildsölum. Fast og ákveð-
ið hafa forráðamenn þessara verslana
sagt: „Fáist varan ekki á lágu verði
verður hún ekki keypt heldur sam-
bærileg vara fengin í staðinn fijá öðr-
um innanlands eða þá að ut-
an.“ Það hefur lengi verið
vitað að Bónus hefur keypt
beint inn, fram hjá íslensk-
um heildsölum, frá erlend-
um vöruhúsum. Þannig hef-
ur einn maður í Kaupmanna-
höfn í Danmörku ekki gert
neitt annað en kaupa inn
fyrir Bónus og senda vör-
urnar til íslands. Þetta hefur
farið mjög fyrir brjóstið á ís-
lenskum heildsölum.
Sameiginleg innkaup
Hagkaups og Bónus á þeim
vörum, sem báðar verslan-
irnar bjóða, er orðið ægivald
gagnvart íslenskum fram-
leiðendum og heildsölum.
Hótunin, sem þeim þótti
áður mikil, er orðin enn
meiri: Fáist varan ekki
keypt inn á ákveðnu verði
verður hún ekki keypt af
viðkomandi heldur fengin
ódýrt að utan. Á bak við hót-
unina er sú staðreynd að
batteríið er með 50 prósent
af markaðnum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Þetta þýðir á að íslenskir
framleiðendur munu fram-
leiða vöruna með eins hagkvæmum
hætti og frekast er kostur til að bera
eitthvað úr býtum. Með beinum stór-
innkaupum erlendis frá næst einnig
fram mikill afsláttur. Þess má geta að
um 30 prósent af sölu Bónus eru inn-
fluttar vörur og því 70 prósent inn-
lendar. Hjá Hagkaup er þetta hlutfall
40-60, innlendum vörum í hag.
FÆRRIEN STÆRRIHEILDSALAR
Sameiginlegt innkaupakerfi Hag-
kaups og Bónus mun þess vegna
verða til þess að íslenskum heildsöl-
um fækkar hratt á næstu árum. Þeir
verða færri en stærri og panta inn í
miklu stærri einingum en til þessa
með tilheyrandi afslætti.
Verði þetta raunin verða heildsalar
betur í stakk búnir til að bjóða öðrum
matvörukaupmönnum betri kjör og
lægra verð en til þessa. Það þýðir
aftur að þeir eiga auðveldara með að
lækka sitt verð og keppa við Bónus
og Hagkaup. Niðurstaðan af sameig-
inlegu innkaupakerfi Hagkaups og
Bónus gæti því orðið til að lækka inn-
kaupsverð annarra matvöruverslana.
Það er að sjálfsögðu mjög þýðingar-
mikið fyrir landsmenn. Hagvöxtur
heimilanna ykist stórlega.
Tökum dæmi um þennan hagvöxt.
Barnmörg fjölskylda eyðir 100 þús-
und krónum á mánuði í mat og hrein-
lætisvörur. Ef hún nær að koma
matarinnkaupunum sínum niður í 70
þúsund með lækkuðu vöruverði hefur
hún sparað 30 þúsund krónur á mán-
uði. Þessi 30 þúsund króna sparnaður
jafngildir 50 þúsund króna launa-
hækkun á mánuði.
Það er einnig fengið að ef viðkom-
andi hefði ekki náð að spara hefði
hann þurft að fá 50 þúsund króna
launahækkun á mánuði, um 20 þús-
und fara í skatta, til að eiga 30 þúsund
krónur eftir í buddunni. (Til að gera
dæmið ekki of flókið er ekki reiknað
með hluta af persónuafslættinum.)
Það er því mikið í húfi fyrir neytendur
að matvöruverð sé lágt og hvergi
slakað á í samkeppninni.
VALD SIGURÐAR 0G
JÓHANNESAR
MEIRIEN
STJÓRNMÁLAMANNA
Af þessu sést að vald
þeirra Sigurðar Gísla Pálma-
sonar og Jóhannes Jónsson-
ar er ótrúlega mikið. Þeir
ráða miklu meiru um afkomu
heimilanna en stjómmála-
menn og svonefndir aðilar
vinnumarkaðarins sem
semja um kaup og kjör í
þjóðfélagi sem býr við
minnkandi þjóðarfram-
leiðslu og hefur ekkert til
skiptanna.
Vald þeirra sést enn bet-
ur í eftirfarandi dæmi. Um
70 prósent af útflutningi
landsmanna er fiskur. Náist
að selja fiskinn á hæsta verði
í útlöndum með nýjungum
og vörugæðum og lækka
matarinnkaup til landsins
þýðir það að íslendingar
selja dýrt og kaupa inn
ódýrt.
Það vita allir hvað mis-
munurinn þarna á milli heit-
ir.
Valdameiri en stjórnmálamenn
&
Hagvöxtur heimila
100
Sparn-
aður
20 30
Launa- Skattar Sparn-
hækkun aöur
Þeir Sigurður Gísli Pálmason og Jóhannes Jónsson
eru nú valdameiri en nokkrir stjórnmálamenn á ís-
landi. Þeir ráða mestu um afkomu heimilanna.
32