Frjáls verslun - 01.09.1992, Síða 45
VELTU FJÁRH LUTFALL
Þetta hlutfall sýnir hlutfall milli
veltuijármuna og skammtímaskulda
fyrirtækis og gefur það tií kynna
hæfni fyrirtækis til að standa við
fjárskuldbindingar. Sé veltuíjárhlut-
fall lægra en 1,0 er að öllu jöfnu hægt
að álykta að grípa þurfi tii sérstakra
ráðstafana til að greiða tilfaUandi
skammtímaskuldir.
MEÐALFJÖLDISTARFSMANNA
Þessar upplýsingar eru fengnar frá
fyrirtækjunum sjálfum. Þær hafa
mörg hundruð fyrirtækja sent blað-
inu, eða að haft hefur verið síma-
samband við þau. Þessar tölur feng-
ust áður fyrr úr Tryggingagjaldaskrá.
Þau gjöld sem þar voru tíunduð hafa
nú verið aflögð. Hugtakið ársverk
þýðir vinnuframlag eins manns í eitt
ár í fullu starfi.
BEIN LAUN í MILU. KRÓNA
Sama gildir um þennan lið, upplýs-
ingar koma beint frá atvinnurekend-
um, en voru áður fengnar úr Trygg-
ingagjaldaskrá Rílvisskattstjóra. Hér
er um að ræða beinar launagreiðslur
og auk þess orlofsgreiðslur til laus-
ráðinna starfsmanna og orlof á eftir-
vinnu fastráðinna starfsmanna. Að
öðru leyti eru launatengd gjöld ekki
inni í þessum tölum.
MEÐALLAUN í ÞÚSUNDUM KRÓNA
Meðallaun starfsmanna eru reikn-
uð á þann hátt að í heildarlauna-
greiðslu fyrirtækis er deilt með tölu
meðalfjölda starfsmanna fyrirtækis-
ins. Hér er því um að ræða meðallaun
starfsmanns hjá fyrirtæki miðað við
vinnuframlag í fullu starfi í eitt ár.
FYRIRVARAR
Frjáls verslun hefur ævinlega var-
að við að menn dragi of ákveðnar
ályktanir af þeim upplýsingum sem
hér á eftir birtast. Höfundar vilja hins-
vegar ekki með þessum orðum draga
á neinn hátt úr trúverðugleika list-
anna. Þeir hafa um árabil reynst afar
traust heimild sem oft og víða er vitn-
að í. Hitt ber mönnum þó að hafa í
huga að samanburður á fyrirtækjum
með ólíkan rekstur er bæði erfiður og
vandmeðfarinn.
Mínúta til stefnn!
Minolta til taks!
Minolta er harðsnúiö lið Innbyggt minni sparar bæði
Ijósritunarvéla og í þeim hópi finnur tíma og fyrirhöfn. Með því að
þú örugglega eina tegund sem þér geyma allt að 10 algengar
hentar. Hraði, hleðsla, heftun og skipanir er Ijósritunarvélin alltaf
flokkun - allt eftir þínu höfði. tilbúin.
Ljósritunarvélarnar eru jafn fljótar Það tekur tæpa mínútu að
með einföld tveggja og þriggja lita sannfærast um yfirburði Minolta!
afrit og einlit.
liinl'öld. klár.- l iuiúldlrpa klár!
4Qcpnif
|
MINOLTA
Ekjaran
Skrifstofubúnaður
SlÐUMÚLA 14 • SIMI (91) 813022
Viltu koma á námskeið hjá okkur
Reykjavíkurdeild RKÍ heldur a.m.k. eitt 4 kvölda námskeiö í
skyndihjálp í hverjum mánuöi fyrir almenning.
Þessi námskeið eru opin öllum 15 ára og eldri. Námskeiöin eru
haldin í Fákafeni 11, 2. hæö. Einnig getur deildin boðið uppá
eftirtalin eins kvölds námskeið:
1. „Móttaka þyrlu á slysstaö". Þetta er ágætt námskeiö fyrir fólk
sem stundar óbyggöaferöir, sportsiglingar eöa dvelur á stööum,
sem ekki er hægt aö koma sjúkrabílum viö, ef slys eiga sér staö.
2. „Áfallahjálp" og stórslysasálfræði. Oft kallaö sálræn skyndi-
hjálp. Fjallaö veröur um viöbrögö á vettvangi. Andlega viörun og
hvernig megi reyna aö draga úr langtíma áhrifum vegna slysa.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 688 188 frá kl. 8-16.
Athygli skal vakin á því, aö Reykjavíkurdeild RKÍ útvegar leiö-
beinendur til að halda námskeið í skyndihjálp fyrir skóla, fyrirtæki
og aðra, sem þess óska í Reykjavík.
Skráið ykkur strax! Geymið auglýsinguna.
Reykjavíkurdeild RKÍ