Frjáls verslun - 01.01.1995, Síða 12
FRETTIR
Námsstefna Stjórnunarfélagsins og ímarks:
JflCK TROUT FJALLAR UM
22 LÖGMÁL MARKAÐARINS
Einn kunnasti markaðs-
maður heims, Jack Trout,
fjallar um „22 lögmál
markaðarins“ á náms-
stefnu sem Stjórnunarfé-
lag Islands gengst fyrir á
Hótel Loftleiðum 23.
febrúar næstkomandi í
samstarfi við ÍMARK.
Þetta er í annað sinn
sem Jack Trout kemur til
íslands. Síðast var hann
hér á landi fyrir fimm ár-
um. Fyrirlestur hans þá
var geysilega vel sóttur
og komust færri að en
vildu.
Jack Trout er ásamt fé-
laga sínum, A1 Ries, höf-
undur byltingarkenndra
kenninga um markaðs-
setningu þar sem þeir
vega harkalega að ýms-
um áratuga gömlum
kenningum markaðs-
fræðinnar.
Jack Trout mætir brátt til fs-
lands í annað sinn. Hann þyk-
ir með allra skemmtilegustu
fyrirlesurum.
Bækur Jack Trout og A1
Ries, Positioning og
Marketing Warfare &
Bottom-up Marketing,
þar sem kenningar þeirra
eru útlistaðar, eru taldar
í hópi áhrifaríkustu bóka
sem komu fram á síðasta
áratug.
A námsstefnunni 23.
febrúar, sem stendur frá
kl. 09:00 til 15:00 áHótel
Loftleiðum, fjallar Jack
Trout um þau 22 lögmál
markaðarins sem skilja á
milli sigurs eða skipbrots
í nútíma viðskiptalífi. En
um þetta efni fjallar hann
raunar í nýjustu bók sinni
og félaga síns, A1 Ries.
Þess má geta að Flug-
leiðir bjóða þeim, sem
sækja námsstefnuna,
30% afslátt af flugfar-
gjöldum í tilefni af náms-
stefnunni. Innifalið í
fargjaldinu er ein gisti-
nótt á Scandic Hótel Loft-
leiðum með morgunverð-
arhlaðborði.
Guðmundur Hauksson, for-
stjóri Kaupþings, kynnir
skuldabréfaútboð AGA.
BRÉFIN
RUNNU ÚT
Sala á skuldabréfum í
200 milljóna króna
skuldabréfaútboði Kaup-
þings fyrir sænska stór-
fyrirtækið AGA, sem
hófst 19. janúar síðastlið-
inn, gekk afar vel. Bréfin
seldust á 2 dögum.
Utboðið markaði viss
tímamót í sögu fjár-
magnsmarkaðar á íslandi
því þetta var í fyrsta sinn
sem erlent fyrirtæki býð-
ur út skuldabréf með
þessum hætti hérlendis.
Markmið útboðsins var
að afla fjár til að draga úr
gengisáhættu við rekstur
dótturfélags AGA á ís-
landi, ÍSAGA hf.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Námskeið um stjórnun, rekstur og markaðsmál
Hagnýtir þættir í starfsmannastjórnun
Þórður S. Oskarsson vinnusálfræðingur
23. og 27. febrúar kl. 8:30-12:30. 8.500 kr.
Þarftu að hressa upp á markaðsstarfið?
Emil Grímsson fjármálastjóri, Magnús Pálsson
framkvæmdastjóri, Þórður Sverrisson
markaðsstjóri og Páll Kr. Pálsson forstjóri.
27. feb., 1. og 3. mars kl. 8:30-12:30. 9.500 kr.
Forysta og stjórnun
Þórður S. Oskarsson vinnusálfræðingur
1. og 6. mars kl. 8:30-12:30. 8.500 kr.
Erlendir fjármagnsmarkaðir
og áhættustjórnun
Þorsteinn Þorsteinsson, forstöðumaður hjá
Norræna fjárfestingabankanum.
16. mars kl. 15:00-19:00. 6.500 kr.
Skráning og nánari upplýsingar í símum: 569 4923 og 569 4924
12