Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 19
Níu vinsælustu fyrirtækin
Jóhannes Jónsson í Bónus:
HÖLDUM ÁFRAM
Á SÖMU BRAUT
gert mögulegt að koma upp mjög
stórri dreifingarmiðstöð hérlendis.
„Það hafði verið draumur minn í tutt-
ugu ár að slíkt fyrirtæki væri til. Enda
er það afar óhagkvæmt að matvöru-
verslanir þurfi vikulega að hafa sam-
band við hundruð heildsala þegar
pantað er inn.“
- Nú seldir þú eigendum Hagkaups
helminginn í Bónus fyrir bráðum
þremur árum og fyrirtækin hafa með
sér samvinnu í gegnum innkaupafyr-
irtækið Baug. Hvemig svarar þú
þeim sjónarmiðum að þessi fyrirtæki
séu orðin of stór og að samráð í verði
sé afar freistandi fyrir þau?
„Ég vek athygli á því að eigendur
Hagkaups keyptu helminginn í Bón-
us, ekki meirihlutann. Bónus er því
rekið algerlega sjálfstætt frá Hag-
Jóhannes Jónsson í Bónus. „Frá-
bærar viðtökur neytenda hafa gert
Bónus að stóru fyrirtæki.“
kaup. Þeim er ætlað að keppa og þau
gera það grimmilega. Þetta eru Kka
gjörólílcar verslanir. Kannanir sýna að
verðmunur fyrirtækjanna er mikill og
hefur aldrei verið meiri. Það sem
meira er, verðið hefur lækkað hjá
báðum fyrirtækjunum.
Upphafleg verðstefna Bónuss
hefur því algerlega haldið sér - og
gott betur. Enda hefur Bónus
stækkað og dafnað. Það hefur eng-
inn gert Bónus stórt á þessum sex
árum nema neytendur. Þeir hafa
komið hingað vegna verðsins. Og
ég spyr: Ætlar einhver að banna
neytendum að skipta við okkur? Á
að setja kvóta á okkur? Neytendur
ráða ferðinni og þeir eiga val. Þeir
sjá til þess að við munum aldrei
slaka á og gerast gráðugir.
Stærð fyrirtækja er líka tvíbent
hugtak. Þau er kannski stór á ís-
lenskan mælikvarða en k'til á alþjóð-
legan þar sem þau þurfa að keppa í
innkaupum. Þau selja á litlum ís-
lenskum markaði en kaupa að stór-
um hluta inn á alþjóðlegum markaði.
Staðreyndin er sú, að áður en Baug-
ur kom til, var hvorugt fyrirtækj-
anna nógu stórt til þess að njóta
nægilegra góðra kjara í innkaupum á
Evrópumælikvarða. Á þessu er nú
munur og fyrir vikið hafa íslenskir
neytendur færst nær evrópskum
neytendum hvað verð á matvörum
snertir," segir Jóhannes Jónsson.
19