Frjáls verslun - 01.01.1995, Side 20
FORSIÐUGREIN
Marel fellur úr 8. í 29. sæti. Olís var í
5. sæti síðast en nú í 11. sæti. Þetta
segir samt ekki allt. í sérkönnuninni í
desember, þegar spurt var sérstak-
lega um sextán efstu fyrirtækin,
skákaði það mörgum öðrum fyrir-
tækjum í vinsældum.
Svipaða sögu má segja um BYKO.
Það jók að vísu fylgi sitt á aðallistan-
um frá því síðast, fór úr 27. í 14. sæti.
En þegar kom að sérkönnuninni fékk
það þriðja mesta fylgið af fyrirtækjun-
um sextán. Ekkert þeirra hafði jafn-
mikið fylgi á meðal „frekar jákvæðra"
og Byko og neikvæðir í garð þess
voru áberandi fáir.
Fyrirtækjum á aðallista hefur fjölg-
að. Þau eru núna 45 á móti 37 í fyrra.
Á meðal fyrirtækja sem koma inn á
listann núna eru: Atlanta, RUV, Stöð
2, Hekla, Sjóvá-Almennar, Nóatún,
Morgunblaðið, Vero Moda, Toyota,
Póstur og sími og Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna.
/
Oskar Magnússon, forstjóri Hagkaups:
ÁNÆGJULEGT FYRIR
OKKUR STARFSFÓLKIÐ
aetta er afskaplega
ánægjuleg niðurstaða
fyrir okkur starfsmenn
Hagkaups og mér er efst í huga að
þakka fólkinu í landinu fyrir þann
góða hug sem það ber til fyrirtækis-
ins. Þetta er okkur hvatning til að
halda okkar striki og gera enn bet-
ur,“ segir Óskar Magnússon, for-
stjóri Hagkaups, um niðurstöður
könnunar Frjálsrar verslunar á vin-
sældum fyrirtækja.
Hagkaup varð í öðru sæti, á eftir
Bónus. Þessi tvö fyrirtæki skera sig
nokkuð úr hvað vinsældir fyrirtækja
snertir. Fyrirtækin hafa sætaskipti
á toppi listans. Bónus sest í topp-
sætið. Bæði fyrirtækin bæta örh'tið
við sig í fylgi frá því fyrir einu ári,
Bónus þó sýnu meira.
„Þótt vart sé merkjanlegur mun-
ur á fylgi þessara tveggja fyrirtækja
get ég svo sem vel unnt Bónus þess
að sitja í efsta sætinu í eitt ár. En
það verður ekki mikið lengur,“ segir
Óskar.
Könnunin var gerð í nóvember.
Henni var síðan fylgt eftir með ann-
arri könnun í desember þar sem
spurt var beint um afstöðu til fimm-
tán efstu fyrirtækjanna í nóvember-
könnuninni. Seinni könnunin gefur
vísbendingar um það hvemig fylgið
skiptist eftir kynjum, aldri, búsetu
og stjórnmálaskoðunum.
Óskar segir að hið góða fylgi fólks
við Hagkaup sé fyrst og fremst góð-
um starfsmönnum - og stefnu fyrir-
tækisins - að þakka. „Hjá Hagkaup
era yfir 1.100 manns á launaskrá, að
vísu margir í hlutastarfi, og nánast
allir eru í miklum samskiptum við
kröfuharða neytendur á degi hverj-
um. Þetta eru neytendur sem gera
miklar kröfur til þjónustu og viðmóts
starfsfólks sem og verðs, gæða og
Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups: „Ég get svo sem vel unnt
Bónus þess að sitja í efsta sætinu í
eitt ár. En það verður ekki mikið
lengur.“
vöruúrvals f verslununum. Þess
vegna skiptir það afar miklu máli
hvernig fyrirtækið og starfsmenn
standa sig á degi hverjum gagnvart
viðskiptavinunum. “
- Nú eiga eigendur Hagkaups helm-
inginn í Bónus. Þau tengsl hafa orðið
til þess að í umræðum manna í við-
skiptalífinu heyrast æ oftar þær radd-
ir að Hagkaup og Bónus séu orðin of
mikil veldi á markaðnum. Óttastu að
þessi umræða muni skaða orðstír
Hagkaups á næstu árum?
„Á meðan Hagkaup stendur sig
áfram í að bjóða góða vöru, góða
þjónustu og lágt vöruverð óttast ég
ekki orðspor þess. Hagkaup og
Bónus eru í harðri samkeppni við
hvort annað þrátt fyrir eignaleg
tengsl - og þrátt fyrir að eigendur
þeirra eigi innkaupafyrirtækið Baug
sem báðar verslanimar skipta við.
Það er beinlínis stefna eigend-
anna að þau keppi sín á milli. Enda
hefur það komið áþreifanlega í ljós
að þau eru að keppa eins og þeim er
ætlað að gera. Er skemmst að
minnast ágreinings og árekstra á
milli þeirra á síðasta ári út af kjöti og
fór það ekki leynt í fjölmiðlum.
Það verður Mka að hafa í huga að
um ólíkar verslanir er að ræða. Hag-
kaup er með mikið vöruúrval, býður
um 9 þúsund vörumerki. Bónus
flokkast hins vegar undir afsláttar-
verslun og er með miklu takmark-
aðra vöruúrval.
Raunar held ég að það séu fyrst
og fremst aðrir keppinautar á mark-
aðnum sem haldi þessari umræðu
um stærð og styrk til streitu. Þeir
hafa sótt að báðum fyrirtækjunum
og reynt að koma því inn hjá fólki að
eitthvað sé athugavert við stöðu
þeirra. í ljósi þessa er niðurstaðan
úr könnuninni enn ánægjulegri.
Fólkið í landinu veltir því nefni-
lega fyrst og fremst fyrir sér hvar
það geti fengið góða vöru á góðu
verði. Ekkert fyrirtæki verður stórt
af sjálfu sér á markaði þar sem mörg
fyrirtæki berjast í harðri samkeppni
eins og á matvælamarkaðnum.
Fyrirtæki verður stórt vegna þess
að fólk vill skipta við það. Það eru
kröfuharðir neytendur, sem greiða
atkvæði daglega með buddunni
sinni, sem ráða stærð og umsvifum
fyrirtækja," segir Óskar Magnús-
son.
TEXTI: 1ÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON
20