Frjáls verslun - 01.01.1995, Síða 33
UPPSKRIFT AÐ BREYTTU FYRIRTÆKI
1. Ráðið eingöngu starfsfólk sem er forvitið.
2. Ráðið nokkra með frjótt ímyndunarafl.
3. Losið ykkur við litlaust og dauft fólk.
4. Ráðið yngra fólk, það er sveigjanlegra.
5. Hvetjið starfsfólk til að taka sér frí reglulega.
6. Skapið aðstæður til að örva samvinnu starfsfólks.
7. Hvetjið til endur- og símenntunar starfsfólks.
8. Alið á og mælið með forvitni starfsfólks.
9. Skapið pannig vinnustað að starfsfólk hlakki til að
mæta í vinnu.
10. Gerið oft eitthvað óvænt, breytið reglulega til.
búið þessum eiginleika og skapa því
aðstæður þannig að ímyndunarafl og
sköpunargleði þess fái að blómstra.
Slíkt fyrirtæki myndi ávallt hafa það
að leiðarljósi að gera viðskiptavininn
ekki aðeins ánægðan heldur koma
honum alltaf skenuntilega á óvart.
Hluti af þessari þekkingarleit er
endurmenntun og símenntun sem er
fólgin í því að halda ekki að þegar
skólabókum og heimavinnunni sleppir
séu menn lausir um aldur og ævi við
að „lesa heima fyrir næsta dag“.
Þekkingin er tvímælalaust upp-
spretta virðisauka í nútímafyrirtækj-
um. Mikilvægt er að finna leið til að
þróa og virkja hana innan fyrirtækja.
En þekking er líka vald (sbr. mennt er
máttur). Sá, sem veit meira en annar,
hefur ákveðið forskot og þess vegna
sitja margir á upplýsingum og þekk-
ingu án þess að deila henni með öðr-
um. Það er því algjör nauðsyn fyrir
fyrirtæki að starfsfólk þess sé hvatt
til að deila þekkingu sinni meðal sam-
starfsmanna en haldi henni ekki bara
fyrir sig. Höfundurinn telur að þetta
sé nánast „landlægt" í fyrirtækjum og
geta margir tekið undir það. Þeir,
sem hafa þekkingu og geta deilt henni
með öðrum, eru fyrirtækinu mikil-
vægastir. Áður fyrr var það viðkvæði
stjómenda ef starfsfólk sást tala sam-
an: „Hættið að tala og farið að vinna“
en núna er það ekki aðeins hluti af
vinnunni heldur jafnvel undirstaða
hennar að starfsfólk tali meira saman.
Tom Peters finnst flest stórfyrir-
tæki leiðinlegir og óspennandi
vinnustaðir og að þess vegna
þurfi að bylta þeim. En þegar
búið er að skapa nýtt fyrirtæki
með nýja hugsun er það þá sjálf-
krafa orðið áhugaverður vinnu-
staður? Forsenda þess
er að búið sé til fyrir-
tæki sem er forvitið
(curious corpora-
tion).
UMFJÖLLUN
Hér er um af-
skaplega hressi-
lega lesningu að
ræða þar sem höf-
undurinn talar tæpit-
ungulaust og er með
vægast sagt óhefð-
bundnar leiðir og
lausnir í huga.
Bókin ber það
með sér að vera saman-
tekt úr fyrirlestrum sem
byggja á punktum og
glærum höfundar sem
greinilega flytur þá að
mestu blaðlaust og
talar eins og andinn
Tom Peters klæðist hér Ber-
muda buxum við jakkann sinn til
að leggja áherslu á mikilvægi
ímyndunarafls í rekstri fyrir-
tækja.
blæs honum í bijóst hverju sinni og
kannski þess vegna er Tom
Peters talinn einhver besti
fyrirlesari sem völ er á. Vand-
inn er bara sá að fyrir sKka
fyrirlesara er eríitt að ætla að
koma slíkum flutningi á
viðfangsefni á prent.
Þannig verður
bókin stundum
svolítið rugl-
ingsleg og það
koma fyrir
endurtekning-
ar á dæmum
og dæmisögum
þar sem margar
þeirra eiga við um
fleiri en eitt við-
fangsefni en koma
illa út í samfelldum
lestri texta. Þetta
kemur eflaust ekki að
sök í ólíkum fyrirlestr-
um sem jafnvel eru
ekki fluttir fyrir sama
hóp áheyrenda og
þannig fá þeir aðeins
eina frásögn hverju sinni.
Höfundurinn hefur unnið mjög vel
alla heimildarvinnu og því er auðvelt
að verða sér úti um mikið af nýlegu
lesefni um hvert viðfangsefni. Allar
tilvitnanir hafa mjög ítarlegá skír-
skotun og eru þau vinnubrögð til
mikillar fyrirmyndar þannig að ekki
verður Tom Peters sakaður um að
gera hugmyndir annarra að sínum.