Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 34

Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 34
ERLEND VEITINGAHÚS JOEY’S PAESANO - NEW YORK Sigmar B. f % Hauksson skrifar m ‘ iHm reglulega um ®T'\ , þekkta erlenda 'fej, bisnessveitinga- staði fyrir Frjálsa B « vcrshm. „New York is a great place.“ Já, það má með sanni segja. Þessi full- yrðing á ekki síst við hvað varðar veitingahús þar. í New York eru sennilega um 15.000 veit- ingastaðir. Hvergiíheiminum er eins mikil fjölbreytni í teg- undum veitingahúsa. Talið er að fólk af 150 þjóðemum búi í „borginni sem aldrei sefur“, og öruggt má telja að þar séu í það minnsta 100 tegundir veitingahúsa sem hafi á boð- stólum mat frá einhverju ák- veðnu landi eða menningar- svæði. Eitt er víst að allir ættu að fmna eitthvað við sitt hæfi. New York er því tilvalin borg fyrir sælkera að heim- sækja, allavega ættu þeir, sem heimsækja borgina, að gefa þessum þætti nánari gaum. Á hverjum degi dvalarinnar er hægt að heimsækja nýjan og nýjan veitingastað sem hefur eitthvað spennandi og áhugavert á boðstólum, eða eins og borgarbúar segja sjálfir; „Eat out — from Kentucky to Katmandu“. New York búar fara mun oftar út að borða en aðrir Banda- ríkjamenn. Þeir, sem dvalist hafa í New York skilja það mætavel. í New York er mikill fjöldi kín- verskra og ítalskra veitingahúsa og á síðari ámm hefur veitingahúsum frá Mexíkó fjölgað mjög. Flestir hinna betri kínastaða eru í Chinatown eða á þvergötunum við Canal Street og suður um Bowery. Víða í New York eru mörg hveríi þar sem nær ein- göngu býr fólk af ítölskum uppruna. Nefna mætti hverfi vestur af Bronx Zoo á 187 götu nálægt Bishop Pem- icone Plaza og svo á svæðinu í kring- um Carroll Gardens í Brooklyn. Þá eru margir ágætir ítalskir veitinga- staðir í Greenwich Village. Skemmtilegt er að heimsækja Little Italy sem er skammt frá China- town. Eins og gefur að skilja ríkir ítölsk stemning á Little Italy. Þar em margir ljómandi ítalskir veitingastaðir og verslanir sem selja ítalskar vörur. Einn af skemmtilegri stöðunum í Little Italy er Paesano. Þetta er ekki mjög dýr staður en þar er jafnan líf og §ör enda staðurinn vinsæll. Eigandi staðarins er líflegur og glaðlegur ná- ungi kallaður Joey. Joey stjórnar öllu ákveðinn með bros á vör. Hann spjall- ar við alla enda eru fastagestirnir margir. Að snæða á Paesano er svip- að og að koma í eldhúsið hjá ítalskri íjölskyldu. Aðalumræðuefnið eru gæði matarins og ef maður er í vafa hvað með maður eigi að panta þá þyk- ir það sjálfsagður hlutur að spyrja aðra gesti hvað þeir séu að borða og með hverju þeir mæli. Joey er ekta „New York ítali“. Hann er fæddur í borginni og ólst þar upp en foreldrar hans komu frá gamla landinu — Ítalíu. Þó svo að Paesano sé „ekta“ ítalskur veitingastaður, leggur Joey mikið upp úr því að nota bandarískt hráefni „Það besta í heiminum, “ segir Joey. Þó segist hann nota ít- alska ólífuolíu, ýmsa osta og pylsur. Við notum aðeins það besta hráefni sem til er á markaðnum, endurtekur Joey stoltur. „Sjáðu þessa tóm- ata,“ segir hann stoltur og sýnir mér littla eldrauða tó- mata. „Þessir eru frá Kalif- orníu, þú færð ekki betri tó- mata í góða sósu.“ „Sjáðu þetta,“ segir hann og dregur mig afsíðis og hellir rauðvíni í glas og réttir mér. „Þetta er bandarískt Chianti, frábært vín.“ Ég verð að viðurkenna að vínið er ljómandi. „Banda- rískar vörur eru ódýrari," segir Joey og heldur áfram: „Ef þær eru jafn góðar eða betri en þær ítölsku þá notum við aðeins bandarískt hráefni en það er algjört skilyrði að þær séu jafngóðar, helst betri,“ segir Joey með ákafa. Paesano er góður og skemmtilegur veitingastað- ur, maturinn er vel útilátinn og á mjög sanngjörnu verði. Það er þó umfram allt stemningin sem gerir staðinn svo hrífandi. Joey’s Paesano 205 West Street N.Y.10036 sími 212-997-8700 fax 212-730-5505

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.