Frjáls verslun - 01.01.1995, Blaðsíða 44
SIMAR
Afar skemmtileg mynd af gömlum síma. Tækninni hefur
fleygt örlítið fram, ekki satt? (Myndir birtar með góðfúslegu leyfi
Pósts ogsíma. Myndir: Guðmundur Ingólfsson).
Helsta tækninýjungin í símtækjum síðustu 20 árin er eflaust
breytingin úr skífusíma yfir í tónvalssíma, svokallaðra takka-
síma.
MIKLAR TÆKNINYJUNGAR
HAFA ORDIÐ í SÍMTÆKJUM
Málið snyst um að ná sambandi auðveldlega. Símtækiþarfað vera lykill að
þeirri þjónustu sem í boði er. Sérþjónusta Pósts ogsíma ergott dæmiþar um
tórstígar tækninýjungar hafa
orðið í gerð símtækja. Þar
stendur upp úr breytingin úr
hefðbundnum skífusíma í tónvals-
síma, svonefndan takkasíma. Hann
býður upp á að nota margs konar
tækni sem ekki var fyrir hendi áður,
eins og sérþjónustu Pósts og síma í
almenna símakerfinu. Tónvalssímar
eru nú allsráðandi í fyrirtækjum og á
flestum heimilum.
Grunnurinn að tækninýjungum í
símtækjum hefur lotið sömu lögmál-
um og nýjungar í símstöðvum. í
stuttu máli snýst hann um svonefnda
silicon-flögu sem er undirstaða raf-
rænna kerfa og þar með aukinnar
sjálfvirkni. Eftir að silicon-flagan varð
lág í verði varð hægt að gera hina
ýmsu hluti í litlu símtæki sem ekki var
hægt áður.
Þetta sést samt betur í stafrænum
og sjálfvirkum símstöðvum nútímans.
Áður unnu margir starfsmenn í sím-
stöð við að tengja saman númer og
erfitt var oft að ná í gegn. Silicon-
flagan breytti þessu. Símstöðvar,
sem þjóna margfalt fleiri notendum en
á árum áður, taka lítið rými og eru
alsjálfvirkar.
MÖGULEIKARNIR MARKAST
AF ÞJÓNUSTUNNI
Möguleikar símtækis markast
mest af þeirri þjónustu sem það er
lykill að. Sérþjónusta Pósts og síma
er gott dæmi þar um. Hún er mest
notuð á heimilum en einnig í fyrir-
tækjum, ekki síst í tengslum við sím-
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINNARSSON
44