Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 46
SIMAR
beinan síma í vinnunni, getur með
einni skipun flutt beina vinnunúmerið
heim til sín að loknum starfsdegi. Sé
hringt í beina símann eftir vinnu
hringir heima hjá viðkomandi. Þótt
beini vinnusíminn sé fluttur heim
verður heimilisnúmerið ekki óvirkt.
Bæði númerin eru virk á heimilinu.
Af sama toga er flutningur á beina
símanum yfir á annað númer innan
fyrirtækisins yfir daginn, til dæmis til
ritarans eða yfir á skiptiborðið. Þetta
kemur sér vel þegar starfsmaður er
að tala í beina símann og einhver
hringir á sama tíma í hann. Hringingin
flyst til ritarans sem svarar og tekur
skilaboð.
Þeir, sem eru með venjulegan síma
heima hjá sér, þ.e. ekki með skamm-
valsminni, geta með sérþjónustunni
fengið SKAMMVALSMINNI í sím-
stöð Pósts og síma. Ef viðkomandi er
með tvo eða þrjá síma heima hjá sér, í
sitt hverju herberginu, þarf hann ekki
að setja skammvalið inn í hvert sím-
tæki fyrir sig, heldur getur haft sam-
eiginlegt skammval fyrir alla símana í
símstöðinni hjá Pósti og síma.
Ýmsir fleiri möguleikar tengjast
símtækjum nútímans og sérþjónustu
Pósts og síma. Þannig er hægt að
koma með aðgerð sem lætur SÍM-
TAL BÍÐA. Viðkomandi er þá að tala
í símann og annar hringir á sama tíma í
númerið. Tónn kemur inn í samtalið
og gefur vitneskju um hringinguna.
Samtímis fær sá, sem hringir, að vita
að hann sé kominn á bið. Sá, sem í er
hringt, getur einnig með þessari
tækni, rofið samtalið og beðið þann,
sem hringdi, að bíða. Þannig virkar
þjónustan eins og viðkomandi sé með
tvær línur heima hjá sér.
ÖRYGGISTÆKIOG
LANGLÍNUHRINGINGAR
Með sérþjónustunni er ennfremur
hægt að nota símtækið sem ÖRYGG-
ISTÆKI til að kalla á hjálp. Þetta er
hentug þjónusta fyrir gamalt og sjúkt
fólk. Símtækið er þá forritað þannig
að aðeins þarf að lyfta símtólinu og þá
hringir sjálfkrafa í annað númer og
vitneskja berst um að eitthvað sé að.
KOSTIR GSM FARSÍMA
ostir GSM farsíma fyrir
stjómendur eru margir. Það
er auðvelt fyrir þá að ná sam-
bandi við starfsmenn sína og við-
skiptamenn. Og það gengur auðvitað
í báðir áttir, auðvelt er fyrir starfs-
menn og viðskiptamenn að ná í þá.
Tökum dæmi. Stjórnandinn þinn
er staddur í viðskiptaferð í Dan-
mörku. Það kemur upp mál á skrif-
stofunni sem þarf að bera undir
hann. Hringt er beint í GSM-farsí-
mann sem vitað er að stjómandinn
beri á sér þar sem GSM farsímar
eru litlir og nettir. Hringt er í 989 og
fimm stafa númerið hans. Engin
vandræði eru með að hringja inn og
út úr löndum hvað varðar svæðis-
númer. Og að sjálfsögðu er hægt að
hringja úr almenna símkerfinu í
GSM farsíma og öfugt.
Stjómandinn svarar að bragði.
Hann er staddur í leigubíl í miðri
Kaupmannahöfn. Enhanngætiþess
vegna einnig verið uppi á hótelher-
bergi, á veitingahúsi, á fundi, í flug-
stöð á leið í tengiflug eða hvaðeina.
Hann svarar. Það er gott aðgengi að
honum með GSM farsíma við hend-
ina.
Á sama hátt á hann einnig mjög
Kostir GSM farsíma eru þessir
helstir: Auðvelt er að ná sambandi í
þá á milli landa, þeir eru flestir með-
færilegir, passa vel í vasa og eru
léttir og fyrirferðarlitlir.
auðvelt með að hringja hvert sem er,
hvar sem hann er staddur í Kaup-
mannahöfn. Hann getur þess vegna
hringt úr leigubilnum þar sem hann er
staddur í miðjum umferðarhnút á leið
sinni á milli funda. Líklegast er
stjómandinn þó staddur á hótelher-
bergi sínu og notar GSM farsímann
sinn þar sem mjög dýrt er að hringja
af hótelum. Álagning þeirra á síma-
þjónustu er himinhá.
íslendingar hafa gert notenda-
samning við margar þjóðir Evrópu um
GSM farsímakerfið. Hafi stjórnand-
inn símakort fyrir GSM farsíma get-
ur hann fengið lánaðan síma og fær-
ist kostnaðurinn við hringinguna á
kortið hans. Raunar er það svo að
notkunin skráist á númerið hans hér
á landi hvar sem hann er annars
staddur.
Því má svo bæta við að ef fyrir-
tæki hér á landi færi að reka GSM
kerfi gæti það samið við erlent
rekstrarfyrirtæki með samningi
sem myndi gilda í mörgum löndum.
Fyrir utan gott og auðvelt að-
gengi að GSM farsímum er sam-
merkt með þeim hversu léttir og
fyrirferðarlitlir þeir eru. Þeir eru
með þrjár tegundir af rafhlöðum
sem gera þá mislétta og mismun-
andi fyrirferðarlitla eftir tegundum.
Gæði þeirra GSM farsíma, sem
eru til sölu hér á landi, eru yfirleitt
mikil. Flestir eru meðfærilegir,
passa vel í vasa og eru léttir. Sumir
eru með innbyggð lotnet, á öðrum
er um 5 sentimetra loftnet sem
stendur upp úr þeim. Síðast en ekki
síst ræður útlit símanna nokkru um
val manna á milli tegunda.
Menn rífast hins vegar ekki um
smekk eða útlit. Sitt sýnist hverjum
í þeim efnum.
46