Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 47

Frjáls verslun - 01.01.1995, Page 47
Einnig er hægt að hafa þann háttinn á að 10 sekúndum eftir að símtólinu er lyft af, án þess að síminn sé notaður, virki hann sem öryggistæki og hringi sjálfkrafa í hjálparnúmerið. LANGLÍNULÆSING er möguleg í sérþjónustu Pósts og síma. Aðgerð- in er auðveld, slegið er inn lykilorð og þar með er læst fyrir langlínusamtöl. Með einni aðgerð á símanum er svo hægt að taka læsinguna af. Til lang- línulæsingar er til dæmis hægt að grípa telji foreldrar að unglingar og böm hringi út á land eða þess vegna til útlanda. Fleiri læsingar eru mögulegar og er hægt að velja um ákveðna flokka sem innihalda lokun á ýmsum þjón- ustum, til dæmis farsímum, boðtækj- um, símatorgi og svo framvegis. Sótt er um þessar lokanir til Pósts og síma. Hægt er síðan að taka þessa þjónustu af og setja á með lykilorði. Þess má geta að foreldrar hafa gripið til þess ráðs að LÆSA SÍMATORG- INLF. Það er sérstök aðgerð sem Póstur og sími framkvæmir og er fyrir utan hefðbundna langh'nulæs- ingu. INNANHÚSSKERFI í HEIMAHÚSUM Að lokum má skjóta því inn í að það hefur færst vöxt að fólk fái sér h'tið INNANHÚSSKERFI í stór HEIMA- HÚS. Þannig er hægt að hringja á milli herbergja án þess að fara út í kerfi Pósts og síma. Sé til dæmis unglingurinn með herbergi niðri í kjallara eða uppi á lofti, og með síma, er hægt að gefa samtal beint til hans, án hrópa og kalla. Innanhússkerfið gefur líka möguleika á símvakningu innan þess. í þessu tilviki er þó um að ræða litla einkasímstöð. En einkasímstöð er skilgreind þannig að hægt er að hringja á milli síma í kerfí án þess að fara út í almenna kerfið hjá Pósti og síma. Hægt er að fá litlar símstöðvar fyrir um 20 þúsund krónur. Síðan er hægt að kaupa venjuleg símtæki til viðbótar fyrir 4 til 5 þúsund krónur. Lítil símstöð ásamt tveimur til þrem- ur símum kosta því á bilinu 30 til 40 þúsund krónur. Loks má geta þess að hægt er að tengja dyrasíma við símstöðina og svara þeim sem hringja við útidyrnar. NOKKRIR PUNKTAR Skammvalsminni Hátalandi Símafundir Símvakning Símtalsflutningur Láta símatal bíða Öryggistæki Langlínulæsingar Læsa símatorginu Þetta er blaðsíða 21 í símaskránni (þeirri bláu). Þar er fjallað um Sérþjónustu símans. Möguleikarnir eru margir - og raunar miklu fleiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir. í sambandi jafnt xnnan lands sem utan Þmðlaiis Dancall sími Fjarskipti íslendinga byggjast mikið á notkun farsímans en þar hefur Dancall farsíminn sannað yfirburði sína. Nýr og fullkominn Dancall Logic hefur nú innbyggðan símsvara. DANCALL mcst keypti farsíminn. Eitt mesta úrval GSM farsíma á landinu! DAIMCAU.) ERICSSON $ MOBIRA IMOKIA SONY öhogenok radiomidun. Grandagarði 9, 101 Reykjavík Sími 562 2640 , Fax 562 6475 Nýi þráðlausi síminn frá Dancall er sá langdrægasti á markaönum með 800 metra langtirœgni, sem hefur mikið að segja við erfið SKilyröi og hentar því vel á alla vinnustaði jafnt til sjós og lands. 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.