Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1995, Qupperneq 55

Frjáls verslun - 01.01.1995, Qupperneq 55
„Hann er mikill áhugamaður um trjárækt og kann vel við sig í moldar- gallanum í garðinum við að snúast í kringum trén,“ segir íjölskylduvinur. „Vinnan er númer er eitt, tvö og þrjú hjá honum. Hann hugsar vel um sinn rekstur og skilur trúlega vinnuna aldrei við sig. Hann gefur sér ekki mikinn tíma til að ferðast með ijöl- skyldunni, helst að hann skreppi með konunni til útlanda í stuttar ferðir en hérna heima er hann ekki dæmigerð- ur Þingvallahringsmaður.“ Fjölskyldan stundaði áður hesta- mennsku en þar kom að það var látið víkja vegna anna í vinnu. Sama á við um veiðiferðir sem Ólafur hafði um tíma áhuga á en hefur ekki sinnt nú í nokkuð mörg ár. Ólafur er félagi í Lionsklúbbi Garðabæjar og tekur virkan þátt í því starfi sem þar fer fram. A sumrin fer hann iðulega með fjölskyldunni í sum- arbústað, sem hans fólk á við Álfta- vatn, og tekur einnig k'tillega þátt í því uppbyggingarstarfi sem fjölskyldan vinnur að norður í Ófeigsfirði en þar er unnið að endurbótum á gamla íbúð- arhúsinu. Til styrktar því starfí eru haldnir sérstakir fjáröflunardansleikir innan ættarinnar og fjár aflað með bögglauppboðum en þar hefur Ólafur einmitt verið uppboðshaldari við góð- an orðstír. Hann er glaðlyndur og kátur í dag- legri umgengni og kemur oft fram sem mikill brandarakall. Ólafur er bindindismaður á tóbak en lyftir glasi í góðra vina hópi. Hann stundar ekki trimm með reglulegum hætti en reynir að fara að jafnaði einu sinni í viku í líkamsrækt og sund í sundlaug Garðabæjar. Þá fer Torfi, yngsti bróðir hans, með honum og Ólafur, yngsti sonur hans. Þeir feðg- ar og frændur fara hring í tækjasaln- um og fá sér góðan sundsprett á eftir. Ólafi og Torfa, bróður hans, er vel til vina og vinna þeir saman í Garða- kaup þar sem Torfi er kjötiðnaðar- maður. Einn besti vinur Ólafs til margra ára er Heiðar Vilhjálmsson, kaupmaður í Straumnesi í Breiðholti. „Við höfum þekkst síðan 1977 þegar ég keypti af þeim búðina,“ sagði Heiðar. „Ólafur er ákaflega skipulagður í vinnubrögðum og áræð- inn. Okkur hefur orðið vel til vina og höfum farið saman með okkar fjöl- skyldum í ferðalög um Evrópu og víð- ar.“ Ólafur er sagður strangur yfirmað- ur sem geri miklar kröfur til starfs- fólks síns og líði ekkert hangs og slæpingshátt. Hann er ekki það sem stundum er kallað „hvítflibbayfirmað- ur“ heldur vinnuforkur sem hikar ekki við að vaða í vinnu með sínum mönn- um og gengur þannig á undan með góðu fordæmi. Hann hreinsar sjálfur timbrið í sínum byggingum og vasast í flestu, sem fer fram á byggingarstað, ef því er að skipta. „Hann er góður samstarfsmaður og yfirmaður,“ segir Bjarni Ásgeirs- son, hótelstjóri á Hótel Reykjavík, sem unnið hefur með Ólafi í nokkur ár og hefur þekkt til hans lengi. Bjarni hefur einnig tekið við starfi hótel- stjóra á Grand Hótel. Hann verður yfirhótelstjóri beggja hótelanna. „Óli er mjög skarpur og fljótur að átta sig á hlutunum og sér oft tæki- færi í því sem aðrir sjá ekki. Hann sér heildarmyndina oft á undan öðrum. Það er aldrei logn í kringum hann og hann þrífst best í hæfilegum látum. Hann er vissulega skapmikill og getur verið óvæginn en mér finnst hann ekki misnota það.“ Ólafur er maður sem heldur fast í þúsundkallinn ef honum finnst verðið ekki rétt en hikar ekki við að festa 100 milljónir í því sem hann trúir að eigi eftir að skila arði. Hann hefur barist áfram í 20 ár af eigin rammleik og aldrei misst trúna á það að ijárfesta í steinsteypu og byggingum. vörudreifiiig UM ALLT LAND Vörudreifíngarmiðstöð sem spannar um 70 staði vítt og breítt um landið ■STVG VÖRUDREIFIIMGARMIÐSTÖÐ Hé&lnsgata 1-3. 106 Roykjavfk. sfml: 6813030, fax: 6812403 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.