Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Blaðsíða 42

Frjáls verslun - 01.06.1995, Blaðsíða 42
ERLEND VEITINGAHUS Haddon Hall er lúxushótel. Þar er eitt besta veitingahúsið á Nova Scotia. Matreiðslumeistarinn, Rainer Fulkendorf, er Svisslendingur. Matseðillinn er lítill og oft er skipt um rétti á honum. LÚXUS í KANADA amskipti íslendinga og Kanadamanna hafa verið óvenju lítil á viðskiptasviðinu. Þetta er í raun furðulegt því ekki er svo langt á milli landanna og eru ýmsir hagsmunir sameiginlegir. Að vísu hafa Kanadamenn og íslendingar átt í hatrammri baráttu á hinum ýmsu fisk- mörkuðum og þá aðallega í Banda- ríkjunum. Nú eru breyttir tímar. Þorskstofninn við strendur Kanada hefur hrunið. Kanadískur sjávarút- vegur á því í verulegum erfiðleikum. Athafnamenn í sjávarútvegi hér á ís- landi og í Kanada hafa komist að þeirri skynsamlegu niðurstöðu að aukin samvinna á sviði útgerðar og fisk- vinnslu sé báðum aðilum til mikilla hagsbóta. Þá hafa íslenskar vörur, einkum þær er tengjast sjávarútvegi, vakið verðskuldaða athygli í Kanada. Þá fjölgar stöðugt þeim íslendingum sem starfa við sjávarútveg og fisk- vinnslu í Kanada. Skip Eimskipafélags íslands sigla til Halifax - Nova Scotia og nú mun vera í bígerð að Flugleiðir hefji flug til Halifax á vori komanda. Það eru því horfur á að samskipti Kanada og ís- lands muni aukast til muna á næst- unni. Halifax er afskaplega þægiieg borg, en hún er svipuð að stærð og Reykjavík. Þar er fjöldi mjög góðra veitingastaða og verslana. Ekki ætti það að saka að gengi Kanadadollars er lægra en þess bandaríska. Ekki er því ólíklegt að fjölcli íslendinga muni bregða sér í verslunarferðir til Halifax því verðlag er þar mjög hagstætt - þá bæði á vamingi og veitingum. íslenskir athafnamenn munu ef- laust margir fljúga til Halifax. Nú þegar eru töluverð viðskipti íslenskra fyrirtækja við fyrirtæki á Nýfundna- landi og viðskipti við fyrirtæki á Nova Scotia munu eflaust aukast all veru- lega. Nova Scotia er einn fallegasti hluti Kanada. Skammt frá Halifax eru mörg falleg lítil þorp við ströndina. Hér áður fyrr var helsti atvinnuvegur íbúanna útgerð og fiskvinnsla. Veður- far er einstaklega ljúft á þessum stöð- um, enda er Halifax á sömu breiddar- gráðu og Mflanó á Italíu. í um það bil 40 mínútna akstri frá Halifax er lítið þorp er nefnist Chest- er. í hæðunum fyrir ofan þorpið er lítið en einstaklega faflegt hótel Haddon Hall. Eigandi hótelsins, sem minnir frekar á herragarð en hótel, er þýsk kona Dr. Viola Hallman að nafni. Þessi ágæta kona tengist íslandi á sinn hátt, því hún á um 100 íslenska hesta. Dr. Hallman á því góða kunn- ingja hér á landi. Á Haddon Hall er eitt besta veit- ingahúsið á Nova Scotia. Matreiðslu- meistarinn Rainer Fulkendorf er Svisslendingur. Matseðillinn er frek- ar lítill og er oft skipt um seðil. For- réttimir eru sex og aðalréttirnir níu. Meðal rétta mætti nefna Laxasneið með sítrónu-appelsínusósu og glóða- steiktan hörpuskelfisk með sætum pipar og fetaosti - þetta var einstak- lega bragðgóður réttur. Þá mætti nefna ofnsteikta önd með greip pesto (eða þykkni). Lambakjötið var aldeilis frábært, en það var borið fram með úrvali af grænmeti og þunnri sítrónu- hvítlaukssósu. Á vínlistanum var gott úrval öndvegisvína á mjög hagstæðu verði. Öndin kostar tæpar 1000 krón- ur íslenskar, lambið 1.100 kr. - her- bergið, sem í raun er svíta, kostar um 10.000, en það verður að hafa í huga að Haddon Hall er lúxus hótel. Haddon Hall sími (902) 275 - 3577 Chester fax (902) 275 - 5159 Nova Scotia. 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.