Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1995, Síða 63

Frjáls verslun - 01.06.1995, Síða 63
Námskeiðið fór fram í hinu glæsi- lega Stouffer Waverly hóteli í At- lanta í Bandaríkjunum. ferla). Þessi lykilorð voru ekki ofar- lega í hugum okkar þegar við fórum af stað en áttu hug okkar allan við heim- komu og hafa einkennt þróun starf- seminnar á síðustu mánuðum. ÁRANGURINN KOM í UÓS Eitt af því fyrsta sem ákveðið var þegar við komum aftur til íslands var að miðla af reynslu okkar til yfir- stjórnar félagsins og láta í ljós þá skoðun okkar að fjárfesting í starfs- mönnum væri það sem gæti gefið okkur samkeppnislega yfirburði á vá- tryggingarmarkaðnum og væri for- senda fyrir fyrirhuguðu gæðastarfi fé- lagsins. Þessi grunnhugmynd var auðseld innanhúss af móttækilegum framkvæmdastjórum. Hugmyndin var síðan kynnt í hópi stjórnenda og var í kjölfarið mótuð fræðslustefna, ráðinn fræðslustjóri, þarfagreining framkvæmd, komið upp veglegri kennsluaðstöðu, búin til námskeið, kennarar ráðnir úr hópi starfsmanna og stefnan sett í framkvæmd og hún endurskoðuð. TÆKIFÆRI FRAMUNDAN Sjöunda alþjóðlega ráðstefiia PEPI verður haldin í Atlanta 23-26. október n.k. og ber yfirskriftina „Business as (Un)Usual: Principles and Practices for Growing Your People and Your Profits". Ráðstefnan er byggð upp á svipaðan hátt og árið áður, þ.e. tveir dagar með fyrirlestrum og kynningu á árangri nokkurra fyrirtækja og tveir dagar með hópvinnu þátttakenda. Ein af nýjungum sem sjá má þessa daga eru þrír nýir stjómunarleikir varðandi hópefli og þjálfun. Nánari upplýsingar um ráðstefnu þessa má fá hjá PEPI, 50 South Ninth Street, Minneapolis, MN 55402, USA. NÝJAR ÁHERSLUR Unnið er nú að undirbúningi þess að senda nokkra starfsmenn Sjóvá-AI- mennra á ráðstefnu þessa til að fleiri stjómendur félagins geti betur til- einkað sér þá hugmyndafræði sem þar ræður ríkjum og er að eitt af því sem skiptir máli við að reka fyrirtæki vel. Ef sjöunda ráðstefna PEPI verð- ur svipuð þeirri sjöttu þá er hægt að mæla með henni fyrir þá sem vilja kynnast nýjum áherslum á þátttöku starfsmanna í stjómun fyrirtækja. vörudreifing UM ALLT LAND Vörudreifingarmiðstöð sem spannar um 70 staði vítt og breitt um landið ■STVG VÖRUDREIFINGARMIÐSTÖÐ Héðinsgata 1-3, 105 Reykjjavik. sími: 5813030, ffax: 5812403

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.