Frjáls verslun - 01.03.1996, Síða 40
STOFNAÐI STAPAFELL í KEFLAVÍK
/ Keflavík hitti hann aftur skólafélaga sinn
úr Samvinnuskólanum, Hákon Kristinsson.
Þeir félagar ákváðu að drífa sig saman í
atvinnurekstur. Snemma árs 1955 keyptu
þeir Byggingavöruverslun Suðurnesja en
breyttu nafninu í Stapafell.
Sum Ljón geta sýnst
hrokafull því Ljónið ber
sig alltaf eins og það sé
konungborið hvemig
sem aðstæður þess eru.
Matthías Helgason er
ekki konungborinn í
hefðbundnum skilningi
þess orðs en af styrkum
ættum harðgerra vest-
firskra sægarpa og afla-
manna. Hann er ellefti í
röð 16 bama Helga
Guðmundssonar og
Guðrúnar Ólafsdóttur
sem lengst bjuggu í Un-
aðsdal. Unaðsdalur er
einna ystur bæja á
Snæfjallaströnd við Djúp
og mörgum gæti fundist
bæjamafnið öfugmæli
því hér verður norðan-
vindurinn kaldur og oft
vorar seint á Snæfjallast-
rönd. En Helga og Guð-
rúnu búnaðist ágætlega
við það sem landið og
sjórinn gáfu af sér. Helgi tók á móti
mörgum bama sinna sjálfur og sagt er
að Guðrún hafi sagt honum til við það
og famast vel.
Matthías ólst ekki upp hjá foreldr-
um sínum heldur var honum komið í
fóstur á Strandseljum hinumegin við
Djúpið þar sem Ólafur Kristjánsson
og Guðríður Hafliðadóttir, afi hans og
amma í móðurætt, ólu hann upp.
Þetta átti við fleiri böm Helga og
Guðrúnar í Dal en alls mun fimm
þeirra hafa verið komið í fóstur hjá
venslafólki til þess að létta undir með
þessari barnmörgu fjölskyldu. Sum-
arið sem Matthías fermdist var hann í
nokkurskonar kaupavinnu hjá séra
Þorsteini Jóhannessyni og Laufeyju,
konu hans, í Vatnsfirði en þar ólst
Sigurlína, systir hans, upp undir
verndarvæng prófastshjónanna.
HANN VAR DUGLEGT BARN
Á Strandseljum var torfbær til 1935
þegar reist var steinhús. Meðan
Matthías var að vaxa úr grasi stóð
Guðríður, amma hans, fyrir búi ásamt
Árna, syni sínum. Þau bjuggu með
kindur og kýr. Rafmagn var óþekkt
og engin vélvæðing var komin í sveit-
ina meðan Matthías sleit bamsskón-
um á Strandseljum heldur vom ljár-
inn, orfið og mannsaflið látin duga
með hestunum eins og verið hafði frá
ómunatíð. Afi Matthíasar, Ólafur, átti
bát og reri til fiskjar í Djúpi en það var
aflagt á fjórða áratugnum. í staðinn
var ræktun kartaflna og rófna dák'til
aukageta sem gaf ágætlega af sér.
Matthías fylgdi Árna og Guðríði
þegar þau brugðu búi á Strandseljum
1944 og fluttu fyrst til ísafjarðar og
síðar til Reykjavíkur og héldu ávallt
saman heimili.
„Matthías var ákaflega duglegt
bam og óragt. Hann var 3 eða 4 ára
þegar hann var farinn að geta hnýtt
upp í hest,“ sagði Ólafur, bróðir hans.
„Hann hefur alltaf verið gífurlega
vinnusamur og vinnuharður."
Þeim systkinum úr Unaðsdal hefur
flestum famast vel þótt ekki hafi verið
mulið undir þau í æsku. Matthías hef-
ur byggt sitt eigið stórveldi í viðskipt-
um, Ólafur, bróðir hans, á og rekur
Blóm og grænmeti sem margir
þekkja. Lára, yngsta systirin úr Un-
aðsdal, er þekkt fyrir störf að slysa-
vamamálum, svo aðeins fá dæmi séu
nefnd. Skyldmenni Matthíasar hafa
látið til sín taka í stjómmálum en Sól-
veig eiginkona Hannibals Valdimars-
sonar þingmanns og
verkalýðsforingja, var
systir Guðrúnar í Unað-
sdal.
FJÖLBREYTT STÖRF TIL
SJÓSOGLANDS
Matthías gekk á
bamaskóla í Reykjanesi
og gagnfræðaskóla á ísa-
firði. ísfirskur skóla-
bróðir hans gefur honum
þá einkunn að hann hafi
verið farsæll og prúður
meðalnemandi sem gat
sér gott orð meðal skóla-
systkina sinna en þótti
feiminn. Ekki varð skóla-
ganga Matthíasar lengri
að sinni og árið eftir flutt-
ist hann til Reykjavíkur
ásamtÁma, móðurbróð-
ur sínum, sem hafði hýst
hann á ísafirði og hugðist
nú flytja sig um set en um
þessar mundir lágu allar
leiðir suður til Reykjavík-
ur. Matthías fór nú til náms í Sam-
vinnuskólanum, sem þá var til húsa á
Sölvhólsgötunni, og var þar við nám í
tvo vetur og lauk námi 1950 en stund-
aði kaupavinnu á ýmsum stöðum á
sumrum, bæði í Laugardælum í Flóa
og Kjalvararstöðum í Borgarfirði,
enda sterkur og ósérhlífinn og vanur
sveitavinnu. Einnig vann Matthías í
vélsmiðjunni Keili og hjá Kristjáni Ó.
Skagfjörð. Þá vann hann hjá Ólafi,
bróður sínum, í Kaupfélaginu í Hvera-
gerði og einnig eftir að Ólafur fór að
reka Blóm og grænmeti í Reykjavík.
Meðal nafntogaðra skólasystkina
Matthíasar úr Samvinnuskólanum
mætti nefna Skúla Alexandersson, al-
þingismann Snæfellinga, Guðgeir
Ágústsson og Árna Benediktsson,
sem lengi hefur unnið fyrir Samband-
ið og Goða, og einnig mætti nefna
nafna Matthíasar, Pétursson, sem
lengi lengi hefur unnið hjá Kaupfélagi
Rangæinga.
BYRJAÐIAÐ VERSLA í KEFLAVÍK
Segja má að þáttaskil hafi orðið í lffi
Matthíasar þegar hann fór að vinna á
næturvöktum suður á Keflavíkurflug-
velli við viðhald á tækjum og skrán-