Frjáls verslun - 01.03.1996, Blaðsíða 69
FOLK
HELGA HRÖNN ÞORLEIFSDÓTTIR,
INGVARIHELGASYNIHF.
Helga Hrönn Þorleifsdóttir sér um markaðs- og auglýs-
ingaherferðir Ingvars Helgasonar hf.
nngvar Helgason hf.
er eitt stærsta bíla-
sölufyrirtæki lands-
ins og hefur í mörg ár verið
með umboð fyrir Nissan og
Subaru bifreiðamar. Fyrir
þremur árum keypti fyrir-
tækið rekstur Jötuns hf. og
stofnaði Bflheima ehf. Þar
hafa verið til sölu Opel, GM,
Isuzu og nú nýverið bættist
SAAB við. Þar að auki feng-
um við mörg umboð fyrir
vinnuvélar og breiða k'nu
landbúnaðartækja, þar á
meðal Massey Ferguson,
sem heyra undir Véladeild
Ingvars Helgasonar hf.,“
segir Helga Hrönn Þorleifs-
dóttir, auglýsingastjóri
Ingvars Helgasonar hf. en
fyrirtækið hefur vaxið mikið
frá því Trabant var kynntur
fyrir landsmönnum á Soga-
veginum. Trabantinn er nú
að mestu horfinn af götun-
um og aðrar tegundir komn-
ar í bflasölu Ingvars Helga-
sonar. Húsnæðið við Sæv-
arhöfða hefur verið
stækkað með auknum um-
svifum og nú eru Bflheimar
komnir undir þak í norður-
endanum. Við Sævarhöfð-
ann er því mikið úrval bif-
reiða, auk þess sem Bfla-
húsið selur þar notaða bfla.
Varahlutaverslun IH og Bfl-
heima er þar einnig til húsa,
nýtt verkstæði og heild-
verslunin Bjarkey með leik-
föng og gjafavörur.
ALLAR AUGLÝSINGAR UNNAR
INNAN FYRIRTÆKISINS
Helga Hrönn hefur um-
sjón með auglýsingum og
markaðssetningu allra ofan-
greindra vöruflokka. Hún er
menntaður auglýsingateikn-
ari og hannar flestar blaða-
og tímaritsauglýsingar fyrir-
tækjanna en Litróf sér um
frágang fyrir prentun. Auk
þess skipuleggur hún aug-
lýsingaherferðir fyrirtækj-
anna í samráði við stjóm-
endur. Hún segist fá margar
fyrirspurnir á dag um aug-
lýsingar en slíkt sé skipulagt
fram í tímann og ekki mögu-
leiki að sinna öllum þeim
sem vilja selja auglýsinga-
pláss í alls konar rit.
„Það er oft mikið að gera í
markaðs- og auglýsinga-
gerð þegar svo margvísleg
þjónusta er í boði og mikið
að gerast undir einu þaki.
Stundum eru margar aug-
lýsingar í vinnslu á sama
tíma,“ segir hún. „Sam-
keppnin á markaðnum er
gífurleg sem sést á þeim
fjölda tegunda sem er í boði.
En okkur gengur vel, við er-
um með þeim söluhæstu á
markaðnum og þar ætlum
við að standa. Það er mikil
hagkvæmni í því að starf-
semi fyrirtækjanna er nú öll
komin í þetta nýja og glæsi-
lega húsnæði þar sem allir
ættu að geta fundið sér far-
artæki við hæfi. Hag-
kvæmnin mun skila sér í enn
betri þjónustu og betra
verði til okkar viðskipta-
vina.“
Ingvar Helgason hf. hefur
alltaf verið fjölskyldufyrir-
tæki og kemur því ekki á
óvart að Helga Hrönn sé
einn fjölskyldumeðlima.
Eiginmaður hennar er Ingv-
ar Ingvarsson, heilsugæslu-
læknir á Reykjalundi.
„Nú starfa sjötíu manns
hjá fyrirtækjunum og starfs-
menn löngu orðnir langtum
fleiri en bara fjölskyldan,
eins og gefur að skilja,“ seg-
ir Helga Hrönn og hlær.
HESTAR OG SKÍÐI
Helga Hrönn er 33 ára,
fædd og uppalin í Reykjavík.
Hún lauk stúdentsprófi frá
MS og tók síðan lflé frá námi
í nokkur ár áður en hún
skráði sig í Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Hún
lauk námi í grafískri hönnun
frá MHÍ árið 1990. Ári síðar
byrjaði hún í núverandi
starfi sínu hjá Ingvari Helga-
syni hf. en hafði áður sinnt
ýmsum störfum þar innan-
dyra um lengri eða skemmri
tíma.
Helga Hrönn og Ingvar
eiga fjögur böm; Þorleif
Þorra, 14 ára, Játvarð Jökul,
11 ára, og tvíburana Hall-
dóru Huld og Sigríði Sjöfn
sem em sjö ára. Tómstun-
dir hennar miðast við fjöl-
skylduna.
„Við fömm töluvert á
hestbak og emm að koma
okkur upp hesti á hvem fjöl-
skyldumeðlim, þannig að
það stefnir í fjölgun í hest-
húsinu. Við fömm mikið á
skíði þegar færi gefst. Á
sumrin fömm við í veiði og
oft í sumarhús á Snæfells-
nesi þar sem er mikil nátt-
úrufegurð og yndislegt að
vera,“ segir Helga Hrönn.
TEXTI: JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
69