Frjáls verslun - 01.02.1998, Síða 6
RITSTJÓRNARGREIN
STJÓRNENDUR STIKKFRÍ?
Fyrirtækið Nathan & Olsen hf. hefur höfðað
athyglisvert mál á hendur fyrrverandi endurskoðanda
sínum. Það hefur gert honum að greiða rúmar 25
milljónir króna í skaðabætur vegna fjárdráttar
fyrrverandi gjaldkera fyrirtækisins á
árunum 1992 til 1996. Fjárdrátturinn
nam um 32 miUjónum króna. Gjald-
kerinn gat greitt 7 milljónir til baka.
Nathan & Olsen hf. vill að endurskoð-
andinn og endurskoðunarfyrirtæki hans
greiði mismuninn; 25 milljónir króna!
Vinni Nathan & Olsen málið reynast
stjórnir og æðstu stjórnendur fyrirtækja
stikkfrí frá ábyrgð á rekstri. Það yrði
athyglisverð niðurstaða því ársreikningur
hvers fyrirtækis er lagður fram af stjórn
og á ábyrgð hennar!
Nathan & Olsen hf. sældr málið gegn
endurskoðandanum á þeirri forsendu að
hann hafi sýnt stórkostlega vanrækslu í starfi varðandi
innra eftirfit og að það hafi gefið gjaldkeranum færi á að
draga sér fé. Og ekki nóg með það! I stefnunni segir að
endurskoðandinn og starfsmenn á endurskoðun-
arskrifstofu hans hafi beinlinis blekkt stjórn og hluthafa
Nathan & Olsen með bréfum til stjórnarinnar um innra
eftirlit fyrirtækisins og athugasemdalausum áritunum -
og með því þverbrotið ákvæði laga um endurskoð-
endur.
I viðskiptalífinu verður fylgst grannt með þessu harla
óvenjulega máli. Glæpur - fjárdráttur - er framinn í
fyrirtæki. Þar sem glæpamaðurinn getur ekki greitt til
baka er þriðja aðila - utanaðkomandi ráðgjafa sem telst
í hlutverki eftirlitsmanns - stefnt til að standa skil á
þýfinu; hann er látinn bera ábyrgðina á þjófhaðinum
vegna meintrar vanrækslu í starfi! Þetta leiðir hugann
raunar ósjálfrátt að öryggis- og löggæslumálum al-
mennt. Hversu víðtæk er ábyrgð fólks, sem sinnir eftir-
litsstörfum í fyrirtækjum, gagnvart glæpamönnum? I
tilviki Nathan & Olsen kann endurskoðandinn að vera
bótaskyldur að einhverju leyti - en að hann beri einn
ábyrgðina á þjófiiaði gjaldkerans - er í meira lagi hæpið.
Það er sláandi í máli Nathan & Olsen að forstjóri
fyrirtækisins vísar allri ábyrgð frá sér og lýsir sig
stikkfrí frá ábyrgð á eftirliti með bókhaldi
og fjárreiðum fyrirtækisins - og kemur
henni yfir á annan. Þessi skoðun hans
getur tæplegast verið almenn á meðal
forstjóra og stjórnenda fyrirtækja. Eiga
stjórnendur ekki að hafa neina tilfinningu
fyrir rekstrinum? A að vera hægt að segja
þeim að allt sé í stakasta lagi ef svo er
ekki? Og hvernig í ósköpunum getur
gjaldkeri í meðalstóru fyrirtæki stolið 32
milljónum á rúmum fjórum árum án
þess að stjórnandinn uppgöfvi að minna
fé sé í kassanum en að það ætti að vera?!
Endurskoðendur eru á einu máli um
að þrennt sé nauðsynlegt í fyrirtækjum til
að minnka líkur á fjárdrætti: 1) Að bókhald fyrirtækja
sé fært mjög reglulega; helst daglega. 2) Að hafa alls
ekki sama manninn í starfi bókara og gjaldkera. Þetta
er grundvallarregla sem aldrei má bregða út af, jafhvel
þótt fyrirtækin séu smá í sniðum. Gjaldkeri getur ekki
dregið sér fé nema finna glæpnum stað í bókhaldi undir
folskum reikningi - og slíkt uppgötvast varla nema í
úrtaksathugun endurskoðenda eða að stjórnandi hafi
góða tilfinningu fyrir rekstrinum og einstaka þáttum
hans. 3) Að stjórnandi fari ævinlega yfir útprentanir
bókhalds. Staðreyndin er sú að til eru stjórnendur sem
nenna ekki að lesa það talnaflóð sem þeir prenta út - en
um leið slaka þeir auðvitað á öllu eftirliti.
Stjórnendur og stjórnir fyrirtækja eiga að axla
ábyrgð á rekstri fyrirtækja sinna - og hafa frumkvæði
að því að koma á sýnilegu og öflugu eftirlitskerfi - kerfi
sem heldur freistingum frá mönnum. Það er
ótrúverðug afsökun hjá æðsta stjórnanda að kenna
öðrum um sé ekki staðið rétt að málum í rekstri
fyrirtækis hans! Jón G. Hauksson
mmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmm
■■r 1 - i f, f r -m yj-j- rrm
tTi T7T1
ISSN 1017-3544
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 59. árgangur
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson - AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfh Sigurgeirsdóttir -
BLAÐAMAÐUR: Páll Ásgeir Ásgeirsson - UÓSMYNDARAR: Geir Ólafsson og Kristín Bogadóttir - UMBROT: Ágústa
Ragnarsdóttir. - ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. - RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105
Reykjavík, sími: 561-7575, fax: 561-8646 -ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895kr. fyrir 1.-5. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með
kreditkorti. - LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. nema bókin 100 stærstu sem er á 1.995,- - DREIFING: Talnakönnun hf.Sími: 561
7575. - FHMUVINNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafik hf. - I.ITGRKIMNGAR: Prentmyndastofan hf. -
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
—M——MlfHmiWrBlllHIHÍlirilWn—linHWlll1IH<B«HllilliaiinilHIIIMli|iHll| U MiIiIWIIIIHI'HIIÍMH
6